Skessuhorn - 25.08.2021, Page 20
MiðviKUdagUr 25. ÁgúST 202120
„Einn af fallegustu stöðum á Íslandi,
í einungis tveggja tíma akstursfjar-
lægð frá reykjavík. Heillandi and-
rúmsloft og veitingastaður sem er
hvað þekktastur fyrir að bera fram
sælkeramat úr sveitinni í algjör-
um sérflokki.“ Þannig er tilteknum
stað hér á vesturlandi lýst. Um er
að ræða Hótel Búðir á Snæfellsnesi
og getur blaðamaður Skessuhorns
hæglega tekið undir lýsinguna sem
finna má á heimasíðu hótelsins.
Hótel Búðir býr yfir stórbrotinni
sögu en allt frá 17. öld voru Búðir
verslunar- og útgerðarstaður. Seint
á fimmta áratugnum opnaði í fyrsta
skipti gistiheimilið Búðir sem rek-
ið var af Átthagafélagi Snæfellsness
og Hnappadals fyrstu árin. Hótelið
varð strax afar vinsælt og laðaði til
sín stóran hóp gesta. Spólað áfram
til örlagadagsins 21. febrúar 2001
varð hótelið eldi að bráð og brann
til grunna. Nýtt hótel var byggt frá
grunni og þann 14. júní 2003 hófst
fullur rekstur hótels að nýju. Í dag
er hótelinu stýrt af Berglindi arnar-
dóttur sem tók við kyndlinum sum-
arið 2019 eftir að hafa verið aðstoð-
arhótelstjóri í nokkur ár þar á und-
an. „Ég hef verið að vinna á Hótel
Búðum síðan 2012,“ segir Berglind
í samtali við Skessuhorn.
Vilja veita framúrskar-
andi þjónustu
Berglind er menntaður hársnyrt-
isveinn og starfaði við það í nokk-
ur ár. Hún hefur aftur á móti unn-
ið hin ýmsu þjónustustörf áður en
hún hóf störf á Hótel Búðum. Nú
hefur hún verið hótelstjóri síð-
ustu tvö ár og leggur mikla áherslu
á að hafa gott teymi í kringum sig.
„Þegar ég tók við þá lagði ég mesta
áherslu á að byggja upp sterkt og
gott teymi, byggja á þeim kjarna af
frábæru fólki sem starfar með okk-
ur og setja okkur skýr markmið að
veita framúrskarandi þjónustu og
hafa góða stemningu á vinnustaðn-
um. Ég hef alltaf haft það að leiðar-
ljósi að koma fram við fólk eins og
ég vil að það sé komið fram við mig,
vera til staðar og biðja ekki um neitt
sem ég er ekki sjálf tilbúin að gera,“
segir Berglind um andrúmsloftið á
Hótel Búðum.
Aukin afþreying
á Snæfellsnesi
Á Hótel Búðum eru 28 herbergi;
ein svíta, níu deluxe herbergi, tíu
standard herbergi og átta loft-her-
bergi. Þar er einnig veitingastað-
ur sem fær allt sitt ferska hráefni
úr nærumhverfinu í góðu samstarfi
við bændur og sjómenn í nágrenn-
inu ásamt því sem hægt er að kíkja á
barinn og njóta ýmiss konar drykkja
og léttra veitinga. „við erum að
vísu ekki með spa en það er hægt
að skella sér í ískaldan sjóinn,“ segir
Berglind létt í lund. „Undanfarin ár
hefur mikil aukning orðið á afþrey-
ingu og ferðum á Snæfellsnesi sem
viðskiptavinir okkar eru dugleg-
ir að nýta sér. Samstarf ferðaþjón-
ustuaðila er alltaf að aukast sem er
mjög mikilvægt því það laðar að
fleiri viðskiptavini á Snæfellsnesið
og eykur ánægju og upplifun,“ bæt-
ir hún við.
Þakklát fyrir
Íslendingana
Sem fyrirtæki í ferðaþjónustu seg-
ir Berglind reksturinn á Búðum
hafa gengið vonum framar í Co-
vid sem hefur geisað í samfélaginu
síðasta árið og á einhverjum tíma-
punkti, gjörsamlega lamað ferða-
þjónustuna og aðra þjónustugeira.
„við höfum ekki þurft að segja upp
neinu starfsfólki. Það lögðust allir
starfsmenn á eitt að berjast í gegn-
um þetta með okkur sem lýsir hversu
ótrúlega heppin við erum með starfs-
fólk. við drógum saman framboðið
síðasta vetur og höfðum opið lang-
ar helgar, alla frídaga og vorum
meira og minna fullbókuð af stór-
skemmtilegum ferðaþyrstum Íslend-
ingum. Þegar takmarkanir voru hvað
mestar þá drógum við einnig saman
þann fjölda herbergja sem við seld-
um til að uppfylla þær takmarkanir
sem giltu hverju sinni,“ rifjar Berg-
lind upp. „við erum ótrúlega þakk-
lát fyrir hvað Íslendingar stóðu þétt
við bakið á okkur þegar landamær-
in voru lokuð og fylltu hótelið. Yfir
sumartímann eru þetta mest megnið
erlendir ferðamenn víðs vegar að úr
heiminum. Núna í sumar eru flest-
ir okkar erlendu gesta frá Bandaríkj-
unum.“
Sumarið verið frábært
Berglind segir sumarið hafa geng-
ið frábærlega á Hótel Búðum og
í raun mun betur en hún þorði að
vona. „Sumarið hefur gengið frá-
bærlega og í raun mun betur en okk-
ar bjartsýnustu spár,“ segir Berglind
glöð. „Það gekk að vísu erfiðlega að
ráða starfsfólk og reyndum við eft-
ir fremsta megni að nýta okkur öll
þau úrræði sem voru í boði. Því mið-
ur gekk erfiðlega að ráða starfsfólk
hér innanlands þannig að við leituð-
um út fyrir landsteinana eftir starfs-
fólki,“ bætir Berglind við sem er jafn-
framt spennt fyrir komandi vetri. „
við erum ótrúlega spennt fyrir vetr-
inum og vonum að Íslendingar haldi
áfram að fylla hótelið um helgar og
að það verði meira um túrista í miðri
viku. Bókanir inn í fyrri part vetrar
lofa mjög góðu, en við þurfum hins
vegar að vera viðbúin hverju sem er
hvað varðar takmarkanir og eða frek-
ari hömlur á landamærunum.“
Hvetur Íslendinga að
kíkja við á Búðum
Berglind segir svo margt koma upp í
hugann þegar hún er spurð út í sér-
stæðu Hótel Búða en lætur þó reyna
á að svara spurningunni. „Það sem
rís hæst er þá helst starfsfólkið, nátt-
úran og sú einstaka stemning sem
okkur, og öllum þeim sem áður hafa
starfað hér, hefur tekist að skapa og
viðhalda. Það hefur alltaf verið mik-
il áhersla lögð á það að viðhalda því
einstaka andrúmslofti og gæðum sem
Hótel Búðir er þekkt fyrir og þar róa
eigendur, stjórnendur og starfsfólk
í takt,“ segir Berglind. „Og svo má
ekki gleyma þeim fjölmörgu brúð-
kaupum og veislum sem við höfum
haldið hér. Það er fátt skemmtilegra
en að taka þátt í slíkum undirbúningi
með fólki víðs vegar að úr heimin-
um sem hefur valið að gifta sig hér á
Hótel Búðum,“ bætir hún við. „Mig
langar bara að hvetja Íslendinga til
að halda áfram að heimsækja Snæ-
fellsnesið og njóta þeirrar stórkost-
legur náttúru og þjónustu sem hér er
að finna. Já og endilega kíkið við hjá
okkur í leiðinni, hvort sem er í kaffi-
bolla, hádegismat, eða kvöldmat. Það
er alltaf gott að aftengja sig og njóta
á einstökum stað í einstakri náttúru,“
segir Berglind að endingu.
glh/ Ljósm. Hótel Búðir.
„Endilega kíkið við hjá okkur í leiðinni, hvort sem er
í kaffibolla, hádegismat, eða kvöldmat“
-rætt við Berglindi Arnardóttur, hótelstjóra á Hótel Búðum á Snæfellsnesi
Berglind Arnardóttir, hótelstjóri á Hótel Búðum á Snæfellsnesi.
Mikið er lagt upp úr að skapa afslappað andrúmsloft á Hótel Búðum ásamt því að
varðveita sögu staðarins.
Hótel Búðir á
Snæfellsnesi.