Skessuhorn


Skessuhorn - 25.08.2021, Síða 29

Skessuhorn - 25.08.2021, Síða 29
MiðviKUdagUr 25. ÁgúST 2021 29 Getir þú barn þá birtist það hér, þ.e.a.s . barnið! www.skessuhorn.is Akranes – miðvikudagur 25. ágúst ÍA og KR mætast á Akranesvelli í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu kl. 18:00. Dalabyggð – miðvikudagur 25. ágúst Staðarhaldarar á Hótel Laugum í Sæ- lingsdal ætla að fagna frábærum mót- tökum í sumar og bjóða upp Tónlist- arveislu og þriggja rétta máltíð. Tón- listarmennirnir Tómas R. Einarsson kontrabassaleikari og tónskáld ásamt Ómari Guðjónssyni gítarleikara verða með tónleika kl. 21:00 en veitinga- staðurinn opnar kl 18:30. Verð 6.950 kr. Pantanir á hotellaugardalabyggd@ gmail.com. Akranes – laugardagur 28. ágúst Kassabílarallý verður haldið milli kl. 13 og 17. Keppendur þurfa að vera á aldr- inum 3 til 16 ára og þurfa að lágmarki tveir að vera saman í liði, einn til að ýta og annar til að stýra. Skráning á kassa- bilarally@gmail.com. Ólafsvík – laugardagur 28. ágúst Víkingur Ó fær Selfyssinga í heimsókn í Lengjudeild karla í knattspyrnu kl. 14:00. Helgafellssveit – sunnudagur 29. ágúst Söguslóðir á sunnudegi kl 14:00 við Berserkjagötu. Þekkt saga um Berserk- ina sænsku er sögð í Eyrbyggju. Sýni- legar minjar eru í Berserkjahrauni um söguna og fer Magnús A. Sigurðsson minjavörður Vesturlands yfir tengsl þeirra í göngunni. Búðardalur – mánudagur 30. ágúst Fyrirlestur á Vínlandssetrinu kl. 17:00. Dr. William Short og Reynir A. Óskar- son flytja fyrirlestur um nýja bók sína Men of Terror eða Ógnvalda, sem er af- rakstur rannsókna þeirra undanfarin ár um bardagatækni víkinga. Akranes – mánudagur 30. ágúst ÍA og HK mætast í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu á Akranesvelli kl 18:00. Óska eftir húsi eða sveitabæ Óska eftir húsi eða sveitabæ í lang- tímaleigu, helst í póstnúmeri 301 eða 311. Er reglusöm með fastar tekjur. Hafið samband í tölvupósti á netfang- ið tungl@mail.com. Heyrúllur óskast Óska eftir að kaupa stórrúllur af úrvals- heyi, mega einnig vera fyrningar. Helst frá kúabúi. Ég er staddur á Kjalarnesi svo það er ekki verra ef staðsetningin er þar nálægt. Upplýsingar í tölvupósti á netfangið hmargeir@gmail.com. Honda Jazz Til sölu Honda Jazz. Bensínbíll, ár- gerð 2008, ekinn aðeins 115 þúsund km. Bíllinn er skoðaður með nýlegum dekkjargangi. Verð 350 þúsund. Upp- lýsingar í síma 862-2031. Bíllinn er til sýnis hjá Árna við Skúlagötu 5 í Borg- arnesi, sími: 662-4542. Heyrúllur til sölu Til sölu 187 rúllur af þurru ábornu síð- slegnu heyi. Rúllað með McHale 3+, saxað með 12 hnífum, belgplast og sexfalt pakkað. Verð 4.000 + vsk ef sótt er strax, hægt að komast að á vörubíl inn á túnið. Staðsett á sunnanverðu Snæfellsnesi í hreinu hólfi. Frekari upp- lýsingar í síma 849-6868 – Gunnar. Á döfinni TIL SÖLU LEIGUMARKAÐUR Smáauglýsingar ÓSKAST KEypT SK ES SU H O R N 2 02 1 Úthlutun lóða í Skógarhverfi 3A Lóðirnar Skógarlundur nr. 2, Skógarlundur nr. 3, Skógarlundur nr. 5 og Skógarlundur nr. 7 eru til úthlutunar og unnt verður að sækja um þær þriðjudaginn 31. ágúst næstkomandi á vef Akraneskaupstaðar http://300akranes.is. Opnað verður fyrir umsóknir kl. 12:45 þann 31. ágúst og verður opið fyrir umsóknir í sólarhring til kl. 12:45 á miðvikudeginum 1. september næstkomandi. Úthlutað verður samkvæmt úthlutunarreglum bæjarráðs en samkvæmt þeim þarf að sækja um lóðirnar á vefnum og greiða svo umsóknargjaldið að fjárhæð kr. 200.000 og er þess óskað að kvittun fyrir greiðslu verði send á netfang Akraneskaupstaðar stjornsysla@akranes.is Umsókn telst gild þegar sótt hefur verið um lóðina á vefnum og umsóknargjald greitt. Umsóknir sem berast fyrir opnunartíma teljast ekki gildar og tekur það einnig til greiðslunnar. Bæjarráð úthlutar eftir röð umsækjanda þannig „að fyrstur kemur fyrstur fær. Bæjarráð hefur sett það skilyrði að umsækjandi og greiðandi umsóknargjalds sé einn og sami aðilinn. Hjón og sambýlisfólk geta sótt um að hámarki eina einbýlishúsalóð og sama regla gildir um lögaðila. Nýfæddir Vestlendingar 10. ágúst. Stúlka. Þyngd: 3.830 gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar: Karen Elsu Bjarnadóttir og Styrmir Örn Hans- son, Kópavogi. Ljósmóðir Hrafnhild- ur Ólafsdóttir. 12. ágúst. Drengur. Þyngd: 3.244 gr. Lengd: 49 cm. Foreldrar: Halla Jóns- dóttir og Heiðmar Eyjólfsson, Akra- nesi. Ljósmóðir: Jenný Inga Eiðsdótt- ir. 17. ágúst. Drengur. Þyngd: 4.032 gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar: Sylvía Hera Skúladóttir og Stefán Örn Karlsson, Akranesi. Ljósmóðir: Hafdís Rúnars- dóttir. 10. ágúst. Drengur. Þyngd: 3.336 gr. Lengd: 48 cm. Foreldrar: Bergrós Gísladóttir og Ívar Orri Þorsteinsson, Borgarnesi. Ljósmóðir: Hafdís Rún- arsdóttir. 12. ágúst. Drengur. Þyngd: 3.976 gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar: Þuríður Inga G Gísladóttir og Bjarki Vilhjálmsson, Borgarnesi. Ljósmóðir: Guðrún Fema Ágústsdóttir. 12. ágúst. Stúlka. Þyngd: 3.544 gr. Lengd: 51 cm. Foreldrar: Harpa Jóns- dóttir og Ívar Orri Kristjánsson, Akra- nesi. Ljósmóðir: Hrafnhildur Ólafs- dóttir. 15. ágúst. Drengur. Þyngd: 4.108 gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar. Lára María Karlsdóttir og Jóakim Páll Pálsson, Borgarnesi. Ljósmóðir: Elín Sigur- björnsdóttir.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.