Skessuhorn - 01.09.2021, Qupperneq 1
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 35. tbl. 24. árg. 1. september 2021 - kr. 950 í lausasölu
Fjármála- og tryggingaráðgjöf
á einum stað í útibúum Arion banka
Þú getur hitt ráðgjafa frá Verði í
útibúum Arion banka á Höfða,
Smáratorgi, Selfossi og í Borgarnesi.
Pantaðu fund í útibúi eða fjarfund
á arionbanki.is.
arionbanki.is
Ný og öflug
vefverslun
ALLA LEIÐ
Hleypum lífi í
sjávarbyggðirnar!
Eyjólfur Ármannsson
Oddviti í Norðvesturkjördæmi
Stærsta kassabílarallý ársins fór fram á hafnarsvæðinu á Akranesi síðastliðinn laugardag. Skemmtileg stemning skapaðist þegar fjölmargir keppendur og kassabíla-
smiðir komu saman og háðu drengilega keppni. Sjá myndasyrpu á bls. 20. Ljósm. mm
Liðskiptaaðgerðum verður fjölg-
að umtalsvert hér á landi með opn-
un nýrrar skurðstofu á Heilbrigð-
isstofnun Vesturlands á Akranesi.
Á nýju liðskiptasetri verður ein-
göngu sinnt liðskiptaaðgerðum og
gert ráð fyrir að það taki til starfa í
mars á næsta ári. Stofnunin verður
þá með getu til að framkvæma um
430 aðgerðir á ári sem er rúmlega
tvöföldun á núverandi afkastagetu.
„Stofnun liðskiptaseturs er liður í
víðtækari áætlun sem unnið hefur
verið að síðustu misseri í samræmi
við ákvörðun heilbrigðisráðherra,
til að mæta vaxandi þörf fyrir þess-
ar aðgerðir, stytta bið fólks í brýnni
þörf, bæta verkferla og samræma
þjónustuna,“ segir í tilkynningu frá
heilbrigðisráðuneytinu.
Að jafnaði eru gerðar ríflega
1.500 liðskiptaaðgerðir á ári hér
á landi og eru þær framkvæmdar
á Landspítalanum í Reykjavík,
Sjúkrahúsinu á Akureyri og HVE
á Akranesi. Með tilkomu liðskipta-
setursins þar er nú stefnt að var-
anlegri árlegri fjölgun liðskipta-
aðgerða um 260 á ári. Vegna Co-
vid-19 hafa aðgerðir síðustu miss-
eri verið nokkru færri en að jafnaði.
Því hefur verið ákveðið að ráðast í
sérstakt átak til 12 mánaða til að
fjölga aðgerðum enn frekar tíma-
bundið og stytta biðlista. Í því átaki
er gert ráð fyrir að gerðar verði um
300 liðskiptaaðgerðir sem koma til
viðbótar þeirri fjölgun sem leiðir
af opnun liðskiptasetursins á Akra-
nesi.
Undirbúningur að stofnun lið-
skiptasetursins stendur nú yfir á
Akranesi og unnið við umfangs-
miklar breytingar og endurnýjun
sjúkradeilda, kaup á tækjabúnaði
og ráðningar starfsfólks. Í sumar
hefur m.a. verið unnið við stækk-
un handlækningadeildar HVE þar
sem rúmum verður fjölgað úr 10 í
16 en deildin tekur á móti sjúkling-
um í kjölfar liðskiptaaðgerða. Ný
skurðstofa verður byggð og þarf að
breyta núverandi húsnæði nokkuð
til að koma henni fyrir í tæka tíð
fyrir opnun í mars á næsta ári.
mm
Liðskiptasetur sett á fót á Akranesi