Skessuhorn


Skessuhorn - 01.09.2021, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 01.09.2021, Blaðsíða 14
MiðVikUdAgUR 1. SEptEMbER 202114 bændur í Mófellsstaðakoti í Skorra- dal, hjónin Jón Eiríkur Einarsson og Fjóla benediktsson, hafa mjólk- að kýrnar sínar í síðasta skipti og eru hætt mjólkurframleiðslu. kvót- inn fer á markað, hluti kúnna var seldur til lífs. Mjólkurframleiðsla er því ekki stunduð lengur í Skorradal, en búin sem þar áður lögðu niður mjólkurframleiðslu voru á grund og Mófellsstöðum. Í Mófellsstaðakoti er ágætt 12 kúa básafjós sem fram til þessa hef- ur verið fullt og ríflegur mjólkur- kvóti fyrir þann fjölda. „Við ákváð- um að selja til lífs þær kýr sem við hefðum gjarnan viljað hafa áfram sjálf og fóru þær vestur í kolbeins- staðarhrepp. Aðrar sendum við yfir móðuna miklu,“ segir Jón bóndi í samtali við Skessuhorn. Hann seg- ir að áfram verði nautaeldi í áföstu kálfafjósi en fjósinu verður fundið nýtt hlutverk. Haldið verður áfram með sauðféð en þau eiga um tvö hundruð fjár. Veltu þessu lengi fyrir sér Aðspurður hvort það hafi ekki komið til greina að byggja nýtt fjós, fremur en að hætta mjólkurfram- leiðslu, segir Jón að þau hafi reikn- að dæmið fram og til baka, en þetta hafi orðið niðurstaðan. „Við ætluð- um vissulega að byggja, datt meira að segja í hug að byggja ferðaþjón- ustutengt fjós þar sem gestir gætu komið í heimsókn og fylgst með mjöltum. En svo eftir mikla yfir- legu, útreikninga og rekstraráætl- anir, en ekki síst tilboð í fjósbygg- ingu, þá varð ofan á að láta hér staðar numið í mjólkurframleiðslu fremur en að hefja kostnaðarsama uppbyggingu og stofna til skulda. Okkar niðurstaða var að kostn- aður væri of mikill við fjósbygg- ingu og vildum því hætta á þess- um tímapunkti fremur en að bíða í kannski áratug,“ segir Jón og bætir við að Fjóla sé kennaramenntuð og starfi hjá skólaþjónustunni í borg- arbyggð og við grunnskóla borg- arfjarðar. Sjálfur búist hann við að komast frekar í nýja vinnu á þessum aldri, en eftir kannski tíu ár eða svo. „Ætli ég fari ekki að kíkja í kringum mig eftir að ég verð búinn að ljúka smalamennsku, bera skítinn á tún- in og sinna öðrum verkum hausts- ins,“ segir Jón. Hann bætir við að núgildandi mjólkursöluleyfi fyr- ir básafjósið sé til 2028 en líklega eftir rúman áratug megi búast við að básafjós verði ekki leyfð lengur. Jón segir að ónýttur mjólkurkvóti á búinu fari á markað 1. septem- ber en nýttur kvóti þessa árs fari á markað síðar í haust. Verða viðbrigði Aðspurður um hvort það verði ekki viðbrigði að þurfa ekki að vakna til mjalta alla morgna svarar Jón í gamansömum tón; „Líklega vakn- ar maður nú samt,“ en bætir svo við; „Jú, það verða kannski dálítil viðbrigði fyrir mig. Alveg frá unga aldri hef ég verið bundinn í fjósi. Móðir mín var ein að reka búið og það kom aldrei annað til greina en að hjálpa henni eins og kostur var. Samhliða því reyndi maður þó að ná sér í menntun. Ég fór á bænda- skólann á Hvanneyri en var aldrei á heimavistinni þar, keyrði á milli og sinnti mjöltum kvölds og morgna samhliða námi. Þannig hef ég í raun frá unga aldri verið að mjólka kýr kvölds og morgna. Viðbrigðin verða því kannski meiri hjá mér en öðrum sem tekið hafa við búi síðar á lífsleiðinni.“ Nágranni Mófellsstaðakotshjóna, kristín Jónsdóttir á Hálsum, var að beiðni Skessuhorns í einum af síð- ustu kvöldmjöltunum á bænum. Fangaði stemninguna þegar þau Fjóla og Jón mjólkuðu bestu kýrnar sínar, sem þegar þetta fer á prent, verða fluttar í önnur fjós. Síðustu kýrnar í dalnum. mm/ Ljósm. Kristín Jónsdóttir Síðustu kýrnar í dalnum Fjóla og Jón að ljúka mjöltum. Jón að tengja tækin við rörmjalta- kerfið. Fjóla þrífur og gerir klárt fyrir mjaltir. Fjóla er líkt og Jón maður hennar alin upp á kúabúi; Vestra-Reyni við Akrafjall. Bestu kýrnar hafa hvergi nærri lokið hlutverki sínu, flytjast bara í næsta sveitar- félag. Heimalningarnir fá klapp og einnig mjólkina sína.Kíkt á mjólkurhússgluggann.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.