Skessuhorn - 01.09.2021, Blaðsíða 24
MiðVikUdAgUR 1. SEptEMbER 202124
Félagar í spinninghópnum Spinni-
gal í borgarnesi, auk vina og vanda-
manna, hjóluðu á þriðjudaginn í lið-
inni viku Hvanneyrarhringinn sem
er 34 kílómetra leið. Safnað var til
styrktar Öldunni sem er vinnustofa
í borgarnesi fyrir fólk með skerta
starfsgetu. Ætlunin er að reyna að
styrkja Ölduna til kaupa á hugbún-
aðinum Motiview sem er snjall-
búnaður og virkar þannig að með-
an hjólað er á þrekhjóli gerir það
iðkendum kleift að horfa á ferða-
leiðina í sýndarheimi. Meðal ann-
ars er hægt að njóta útsýnis, hjóla
ákveðnar leiðir, hlusta á lög, hægt
að keppa við aðra staði og ýmislegt
annað. tækið eitt og sér kostar um
þrjú hundruð þúsund krónur.
guðrún Emilía daníelsdóttir, ein
af talsmönnum Spinnigal hópsins,
sagði í stuttu spjalli við Skessuhorn
að fyrr í sumar hafi komið upp sú
hugmynd þegar þau heyrðu af því
að verið væri að safna fyrir tæki fyrir
Ölduna að hjálpa til við söfnunina.
Hópurinn sem samanstendur af um
100 manns er í spinning aðallega á
veturna undir stjórn gunnu dan,
eins og hún er yfirleitt kölluð, og
veit það af eigin raun hvað spinn-
ing og hjólreiðar almennt eru góð
íþrótt fyrir líkama en þó ekki síður
sálina.
Undanfara söfnunarinnar má
rekja til þess þegar guðmund Stef-
án guðmundsson, starfsmanni
Öldunnar, dreymdi í byrjun árs um
að hann væri að hjóla frá borgar-
nesi á Sauðárkrók. guðmundur
ákvað í kjölfarið að setja sér mark-
mið og hjóla þessa leið norður á æf-
ingahjóli, eins og fram kom í viðtali
Skessuhorns við guðmund Stefán.
Þetta átak hans varð til þess að fleiri
starfsmenn settu sér sambærileg
markmið, meðal annars að ganga
til Húsavíkur á göngubretti og
hjóla til Ólafsvíkur og Akraness svo
dæmi séu tekin. Í dag er guðmund-
ur Stefán búinn að hjóla rúmlega
430 kílómetra og er staddur þessa
dagana rétt hjá Mývatni. Hann hef-
ur nú útfært markmið sitt og ætlar
sér að fara hringinn í kringum Ís-
land á einu ári.
Spinnigalhópurinn fékk Arion-
banka í borgarnesi til liðs við sig
sem gaf hjólurum hjólavesti og
þá hefur strax safnast vel á annað
hundrað þúsund krónur í söfnun-
inni og hvetur guðrún fyrirtæki og
einstaklinga í borgarnesi að leggja
söfnuninni lið svo að takmarkið ná-
ist. Leggja má frjáls framlög beint
inn á reikning nr. 0326-13-000004
kt. 510694-2289.
vaks
baðstofan frá Úlfsstöðum í Hálsa-
sveit er mikil gersemi í Safna-
húsi borgarfjarðar, en hún er mið-
punktur sýningarinnar börn í 100
ár. Þangað komu prúðbúnir gestir í
síðustu viku, þær Anna dröfn Sig-
urjónsdóttir og Sigrún Elíasdótt-
ir. Erindið þeirra var að taka upp
myndband í baðstofunni. Þær stöll-
ur vinna sem fyrr að ýmsum verk-
efnum í sameiningu, gjarnan á sviði
ullarvinnslu, handverks og/eða
þjóðlegra fræða. Meðal þess sem
þær hafa gert er að koma saman
fram í hlaðvarpi Sigrúnar; Myrka
Íslandi.
Í síðustu viku tóku þær stöll-
ur upp kynningarefni fyrir dönsku
prjónahátíðina pakhusstrik sem
haldin verður í kaupmannahöfn
nú í september. Þær útbjuggu af
þessu tilefni myndræna kveðju til
dana og sýndarveruleikamynd-
band þannig að gestir á hátíðinni
setja á sig sýndarveruleikagleraugu
og eru þá staddir heima í baðstofu í
tóvinnu. Þess má geta að þegar sýn-
ingin börn í 100 ár var sett upp var
Sigrún starfandi í Safnahúsinu og
átti mikinn þátt í hugmyndafræði
hennar. Það var svo Unnsteinn Elí-
asson bróðir hennar sem setti bað-
stofuna saman, en hún hafði áður
verið tekin niður að tilhlutan Þjóð-
minjasafnsins árið 1974.
mm/ safnahus.is
Í vor hjólaði Guðmundur Stefán áleiðis til Sauðárkróks og varð verkefni hans
kveikjan að söfnun á hugbúnaðinum Motiview sem er snjallbúnaður og virkar
þannig að meðan hjólað er á þrekhjóli gerir það iðkendum kleift að horfa á
ferðaleiðina í sýndarheimi.
Hópurinn Spinnigal safnar fyrir Ölduna
Spinnigalhópurinn áður en lagt var af stað Hvanneyrarhringinn. Ljósm. Aldan.
Tóku upp sýndarveruleikamyndband í baðstofunni
Sigrún og Anna Dröfn.
Þar mættist gamli og nýi tíminn. Tóvinna í baðstofunni og upptökubúnaður sem tekur upp efni til sýningar með sýndarveru-
leikagleraugum.