Skessuhorn - 01.09.2021, Blaðsíða 13
MiðVikUdAgUR 1. SEptEMbER 2021 13
Akraneskaupstaður auglýsir laust til umsóknar
spennandi og fjölbreytilegt starf skrifstofustjóra
á skrifstofu bæjarstjóra. Óskað er eftir metnaðarfullum
og framsýnum leiðtoga sem hefur mikið frumkvæði og
drifkraft til að þróa áfram stafræna stjórnsýslu hjá
kaupstaðnum og efla þjónustu við íbúa.
Býr öflugur leiðtogi í þér?
Skrifstofustjóri gegnir forystuhlutverki í þjónustu- og stafrænni þróun,
atvinnuuppbyggingu, ferða- og markaðsmálum ásamt menningar- og
safnamálum. Skrifstofa bæjarstjóra er ný eining sem stofnuð var um síðustu
áramót. Undir skrifstofuna falla einnig mannauðsmál og verkefnastofa.
Hlutverk skrifstofunnar er að ná betri samþættingu málaflokka ásamt því að
auka og bæta innri og ytri þjónustu Akraneskaupstaðar, auka skilvirkni í
rekstri sveitarfélagsins með upplýsingatækni, skýrari verkferlum, stjórnun
og öflugu starfsumhverfi.
Umsóknarfrestur er til og með 7. september 2021.
Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá ásamt
greinargerð þar sem fram koma ástæður
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi til starfsins. Vakin er athygli
á því að starfið hentar öllum kynjum.
Nánari
upplýsingar um
helstu verkefni
og ábyrgð ásamt
menntunar- og
hæfnisstörfum
má finna hér
Býr öflugur
leiðtogi í þér?
Eldhúsinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
2�1 Kópavogur.
562–15��
Friform.is.
Sumaropnun:
Mán. – Föst. 1�–17
Laugardaga LOKAÐ
2
�
�
�
—
2
�
2
�
blaðamaður Skessuhorns skellti
sér út í rokið á Skaganum á föstu-
daginn og fór í smá hjólatúr. Það
var ansi hressandi að fá smá loft í
lungun og ekki versnaði það þeg-
ar hjólað var fram hjá grundaskóla,
þar sem allt var í regnbogans litum
og lýsti nánast upp drungann sem
læddist aftan að blaðasnápnum. Þar
var búið að skipta út jarðvegi fyrir
mjúkar hellur í líflegum litum eins
og segir í fyrri hluta textans: gul-
ur, rauður, grænn og blár…, bæta
við leiktækjum fyrir yngri nemend-
ur og einnig snyrta allt svæðið svo
til fyrirmyndar er. vaks
Stjórnendur brekkubæjarskóla á
Akranesi hafa tekið þá ákvörðun
að banna vespur og rafhlaupahjól á
skólalóðinni á skóla- og frístunda-
tíma, eða frá klukkan 7.45 - 16.15
á daginn. Nemendur mega koma á
rafhlaupahjólum í skólann en þurfa
að keyra mjög hægt og varlega inn á
skólalóðina og leggja hjólunum og
fara svo aftur jafn hægt út af henni
eftir skóla. Þá hafa nemendur ver-
ið beðnir um að koma ekki á raf-
hlaupahjólum niður göngustíginn
frá Heiðarbraut því hann sé þröng-
ur og í rauninni eingöngu fyrir
gangandi umferð.
Fyrsta skóladaginn var barn
ekið niður af rafhlaupahjóli á
frístundatíma og algert lán að barnið
slasaðist ekki illa. Rafhlaupahjól
geta komist á allt að 25 km hraða og
í mörgum íbúðagötum er verið að
lækka hámarkshraða niður í 30 km
til að minnka slysahættu og augljóst
að það myndi engum detta í hug að
keyra bíl á skólalóðinni á 25 km
hraða. Frá því að rafhlaupahjólin
komu á göturnar hafa nemendur og
starfsmenn oft átt fótum sínum fjör
að launa á skólalóðinni til að verða
ekki fyrir þeim sem eru á fullri
ferð á hjólunum sínum. bannið
hefur strax tekið gildi og gildir
út skólaárið og kemur vonandi í
veg fyrir fleiri slys sem tengjast
rafhlaupahjólum og vespum.
vaks
Göngustígurinn sem nær upp á
Heiðarbraut.
Rafhlaupahjól
bönnuð á skólatíma í
Brekkubæjarskóla
Skólalóðin við Brekkubæjarskóla Heiðarbrautarmegin.
Litagleði á leiksvæðinu
við Grundaskóla