Skessuhorn - 01.09.2021, Side 8
MiðVikUdAgUR 1. SEptEMbER 20218
Sameining
tveggja stofnana
LANDIÐ: Frá og með 15.
september sameinast Ríkiseign-
ir og Framkvæmdasýsla ríkis-
ins (FSR) undir heitinu Fram-
kvæmdasýslan - Ríkiseignir.
„Ákvörðunin um sameininguna
byggist á niðurstöðum vinnu
ráðuneytis og beggja stofnana,
sem staðið hefur frá síðastliðnu
hausti,“ segir í tilkynningu frá
fjármálaráðuneytinu. „Með
sameiningunni fæst mikil sam-
legð þar sem húsnæðis- og að-
stöðumál ríkisins verða á einni
hendi, hvort sem um er að ræða
framkvæmda- eða leiguverk-
efni. Fasteignasafn stofnunar-
innar er hið stærsta á landinu en
það telur um 530 þúsund fer-
metra húsnæðis í um 380 fast-
eignum víðs vegar um landið.
Mun sameiningin skila bættri
áætlanagerð og stýringu eigna-
safnsins, sem ætlað er að leiða
til aukinnar skilvirkni, betri
þjónustu og þar með fjárhags-
legs ávinnings.“ -mm
Endurnýja
vatnsveitu
ARNARSTAPI: Undanfarið
hefur verið unnið að endurbót-
um á neysluvatnsveitu á Arn-
arstapa á Snæfellsnesi. Fyrir
um tveimur árum hófust fram-
kvæmdir við nýtt vatnsból og
síðasta sumar var hafist handa
við lagningu á nýrri aðveitu-
æð. Í sumar hafa framkvæmd-
ir haldið áfram með lagningu á
þriggja kílómetra langri vatns-
lögn. Nýja lögnin mun tengj-
ast nýja vatnsbólinu og færa
svæðinu aukinn vatnsþrýsting.
Á vef Snæfellsbæjar kemur fram
að gert sé ráð fyrir að fram-
kvæmdum ljúki nú á haustdög-
um og standa vonir til að nýja
vatnslögnin verði skömmu síð-
ar tengd inn á núverandi dreifi-
kerfi um Arnarstapa. -mm
Verndaráætlun
undirrituð
SNÆFELLSNES: Stjórnunar-
og verndaráætlun fyrir friðland-
ið Ströndina við Arnarstapa og
Hellna hefur nú verið undirrit-
uð og staðfest af umhverfis- og
auðlindaráðherra. Ströndin við
Stapa og Hellna er þekkt fyrir
fagra og margbreytilegar kletta-
myndir, ríkt fuglalíf, sögu og
menningarminjar. Verndaráætl-
unin fyrir friðlandið er ætlað að
vera stefnumótaskjal, unnið í
samvinnu við sveitarfélag, íbúa
og hagsmunaaðila og er hugsað
sem stjórntæki til að móta fram-
tíðarsýn svæðisins. Markmiðið
með gerð hennar er að leggja
fram stefnu um verndun frið-
landsins og hvernig viðhalda
skuli verndargildi þess þannig
að mest sátt ríki um. - glh
Aflatölur fyrir
Vesturland
21.-27. ágúst
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 3 bátar.
Heildarlöndun: 12.153 kg.
Mestur afli: Ebbi Ak: 7.649 kg
í einum róðri.
Arnarstapi:
Engin löndun þessa daga.
Grundarfjörður: 7 bátar.
Heildarlöndun: 473.922 kg.
Mestur afli: Vörður ÞH:
104.465 kg í tveimur löndun-
um.
Ólafsvík: 3 bátar.
Heildarlöndun: 43.917 kg.
Mestur afli: guðmudur Jens-
son SH: 33.860 kg í þremur
löndunum.
Rif: 5 bátar.
Heildarlöndun: 166.198 kg.
Mestur afli: Esjar SH: 50.082
kg í þremur löndunum.
Stykkishólmur: 1 bátur.
Heildarlöndun: 10.832 kg.
Mestur afli: bára SH: 10.832
kg í fjórum löndunum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Sigurborg SH – GRU:
92.069 kg. 23. ágúst.
2. Farsæll SH – GRU: 75.199
kg. 22. ágúst.
3. Vörður ÞH – GRU: 71.358
kg. 22. ágúst.
4. Runólfur SH – GRU:
56.834 kg. 23. ágúst.
5. Áskell ÞH – GRU: 55.566
kg. 22. ágúst.
-arg
Nýtt kvótaár hefst í dag. Strákarn-
ir á Sveinbirni Jakobssyni SH voru
í óða önn að taka snurvoðina um
borð ásamt körum og ís þegar ljós-
myndari hitti á þá fyrr í vikunni í
Ólafsvík. Var ekki annað að heyra
en þá hlakkaði til að hefja veið-
ar á nýju kvótaári og ekki skemm-
ir verðið fyrir, en verðið á 8+ fiski
var yfir 700 krónum daginn áður en
þessi mynd var tekin.
mm
Vegna fréttar Skessuhorns 25.
ágúst síðastliðinn um fyrirhuguð
kaup á loftpressu, vilja slökkviliðs-
stjórar borgarbyggðar taka eftirfar-
andi fram:
„Á fundi byggðarráðs borgar-
byggðar, 19. ágúst sl. var fjallað um
beiðni um gerð viðauka við fjár-
hagsáætlun borgarbyggðar vegna
kaupa á loftpressu sem nýtt sé til
þess að fylla á loftkúta. daginn eft-
ir fund byggðarráðs hafði sviðs-
stjóri stjórnsýslu- og þjónustusviðs
samband við varaslökkviliðsstjóra
til að fylgja eftir afgreiðslu byggð-
arráðs þar sem lagt var til hvernig
hægt væri að finna farsæla lausn
á því brýna máli að tryggja loft-
gæði á öndunarlofti slökkviliðs-
manna. Sviðsstjóri fól stjórnendum
slökkviliðsins að finna og festa kaup
á öflugri loftpressu sem uppfylli
alla staðla sem gerðir eru um slík-
an búnað og gæði öndunarlofts fyr-
ir reykkafara slökkviliðsins. Stjórn-
endur slökkviliðsins eru að vinna
í því að fá slíkan búnað afhent-
an sem fyrst. Jafnframt var þetta
rætt á fundi sveitarstjóra, sviðs-
stjóra og slökkviliðsstjóra fyrr í vik-
unni. Forsvarsmenn sveitarfélags-
ins og stjórnendur slökkviliðsins
eru sammála um mikilvægi þess að
eiga slökkvilið sem er vel menntað,
þjálfað og búið sem ein af grunn-
stoðum hvers sveitarfélags.“ mm
Samkvæmt nýrri reglugerð sem
tók gildi 1. maí síðastliðinn hækk-
ar grunnfjárhæð vanrækslugjalds
vegna óskoðaðra ökutækja. gjald-
ið var áður 15.000 krónur fyrir alla
flokka ökutækja en hækkar í 20.000
kr. Þá hækkar gjaldið vegna fólks-
fluningabíla fyrir níu eða fleiri far-
þega, vöruflutningabíla eða aftan-
ívagna yfir 3,5 tonn í 40.000 kr. Þá
hefur einnig tekið gildi ný regla;
ef ökutæki hefur ekki verið fært
til skoðunar eða skráð úr umferð
innan tveggja mánaða frá álagn-
ingu hækkar gjaldið um 100% eða
40.000 kr. og 80.000 kr. fyrir stærri
ökutæki.
arg
Halda til veiða í dag
Einn gamall og góður færður til skoðunar hjá Frumherja í Borgarnesi.
Ljósm. úr safni/ mm
Vanrækslugjald hækkað
Frá vettvangi bruna. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Leit hafin að öflugri loftpressu fyrir slökkviliðið