Skessuhorn - 01.09.2021, Qupperneq 10
MiðVikUdAgUR 1. SEptEMbER 202110
Ákveðið hefur verið að flytja starf-
semi bæjarskrifstofa Akraneskaup-
staðar úr Stillholti 16-18 í nýtt hús-
næði að dalbraut 4 sem byggt var
sem félagsaðstaða eldri borgara og
verður tekið í notkun í haust. Þetta
er gert vegna raka og myglu sem
greinst hefur í húsnæði bæjarskrif-
stofunnar. Fyrstu tíu starfsmenn
bæjarskrifstofanna eru þegar flutt-
ir yfir á dalbraut en þeir síðustu
verða farnir eftir hálfan mánuð.
Þetta staðfestir Sævar Freyr Þráins-
son bæjarstjóri í samtali við Skessu-
horn. Að sögn Sævars hefur sýna-
taka úr húsnæðinu leitt í ljós raka
og myglugró, sem talið er tengjast
ófullnægjandi frágangi á gluggum
og klæðningu hússins. Ekki ligg-
ur fyrir hvenær viðgerðum lýk-
ur en gert ráð fyrir að þær taki að
minnsta kosti eitt ár.
Eignarhald hússins við Stillholt
16-18 er á höndum Regins, Ríkis-
sjóðs, Akraneskaupstaðar og ýmissa
smærri eignaraðila. Akraneskaup-
staður á um 20% í því húsnæði sem
bærinn hefur til afnota. Undanfar-
ið hafa átt sér stað fundir eigenda
til að undirbúa næstu skref og við-
gerðir. „Eftir er að búa til útboðs-
gögn fyrir lagfæringar á húsinu. Nú
er verið að skoða hversu umfangs-
miklar viðgerðir þurfa að fara fram.
Það liggur hins vegar fyrir að ófull-
nægjandi viðgerð var gerð á húsinu
fyrir þremur árum. Ytra byrðið var
lagað en rakavandamálin voru skil-
in eftir og hafa grasserað síðan.“
Samnýta með eldri
borgurum
Sævar Freyr segir mjög ánægjulegt
að gott samkomulag er við stjórn
FEbAN um að samnýta félagsað-
stöðuna við dalbraut 4. „Við get-
um á þessari stundu ekki tíma-
sett viðveru okkar á dalbrautinni
og búumst því við að verða í góðu
samneyti við eldri borgara sem þar
eru nú byrjaðir að koma sér fyrir.
Fyrirkomulagið verður með þeim
hætti að bæjarskrifstofan tekur
þriðjung af samkomusal fyrir skrif-
stofur og verður komið upp borð-
um og búnaði og unnið í opnum
vinnurýmum. Við munum fara að
dæmi ýmissa fyrirtækja sem vinna í
opnum vinnurýmum og koma upp
um sjö borðum á hverja tíu einstak-
linga sem hjá okkur starfa. Móttaka
okkar mun hins vegar verða á jarð-
hæð í rými sem ætlað er fyrir fata-
hengi,“ segir Sævar. Húsið við dal-
braut 4 er langt komið að öðru leyti
en því að tafir hafa orðið á uppsetn-
ingu tækja í eldhús og verður það
því ekki komið í notkun fyrr en um
áramót.
Eftir að rakavandamál voru stað-
fest í grundaskóla fyrr á þessu ári
var ráðinn sérfræðingur frá Verkís.
„Verkefni hans er að taka út allar
stofnanir, skóla og byggingar í eigu
bæjarins. Stjórnsýslubyggingin var
fyrst í röðinni á eftir grundaskóla,
en hann mun skoða aðra skóla og
hús í eigu bæjarfélagsins. Sú vinna
er nú í fullum gangi,“ segir Sævar.
Þakka skilninginn
bæjarráð Akraness fjallaði um mál-
ið á fundi í síðustu viku. Þar kom
fram að áætlað er að verja ríflega
14 milljónum króna til fyrirhug-
aðra flutninga starfsfólks og starf-
semi bæjarskrifstofanna. Í bók-
un segir: „bæjarráð óskar eftir og
vonast til að framkvæmd flutning-
anna gangi sem best og að röskun
á starfseminni verði sem minnst en
þá kynnt þjónustuþegum á heima-
síðu Akraneskaupstaðar. Þá þakkar
bæjarráð forsvarsmönnum FEbAN
fyrir þann góða skilning sem þeir
hafa sýnt stjórnendum og starfs-
fólki við þær erfiðu aðstæður sem
skapast hafa í starfsemi kaupstaðar-
ins vegna þessa.“ mm
Síðastliðinn föstudagsmorgunn
voru menn frá verktakafyrirtæki að
plægja niður ljósleiðara í kolviðar-
sundi, sem er mýrlendi í landi Mið-
húsa í Álftaneshreppi á Mýrum. 24
tonna grafa fylgdi í kjölfar jarðýtu
sem plægt hafði niður strenginn og
var hlutverk gröfumannsins að lag-
færa plógfarið. Ekki vildi betur til
en svo að grafan sökk hratt. Ein-
ungis bóman á gröfunni stóð upp
úr eins og sjá má á meðfylgjandi
myndum sem teknar voru á laug-
ardaginn. Eftir tilraunir verktak-
anna til að ná tækinu upp var loks
fengin aðstoð; mannskapur og öfl-
ugar gröfur frá borgarverki í borg-
arnesi og Þrótti á Akranesi til að
halda við gröfuna og freista þess
að ná henni upp. Áður var búið að
reyna að púkka grjóti undir tækið
til að það sykki ekki enn dýpra og
hreinlega myndi hverfa mönnum
sjónum. Á laugardagskvöldið tókst
loks hálfpartinn að velta gröfunni
upp á þurrt. Var henni komið mik-
ið skemmdri upp á dráttarvagn.
Þar sem grafan fór niður heitir
kolviðarsund og hefur ætíð verið
um illfæra leið að ræða samkvæmt
heimafólki sem Skessuhorn ræddi
við. Það kveðst ætíð hafa forðast
að fara þarna um hvort sem var á
hestum eða tækjum. Hönnuðir
lagnaleiða ljósleiðarans virðast ekki
hafa haft samráð við heimafólk um
lagnaleiðina, en heimamenn höfðu
sett sig í samband við verktakana
og bent á að þar ætti við hið forn-
kveðna, þ.e. „betri er krókur en
kelda.“ Nágrannar segjast aldrei
hafa mælt með þessari leið, hefðu
þeir verið spurðir, heldur mælt
með að farið yrði handan vegarins
á vatnsbakkanum þar sem einmitt
símastrengurinn var lagður á sínum
tíma. Vera kann að sú leið verði far-
in þar sem nýi ljósleiðarastrengur-
inn fór í sundur við atganginn.
Álftaneshreppsvegur var lokaður
þessa tvo daga sem það tók að ná
gröfunni á þurrt, en um „U“-leið
er að ræða um hreppinn þannig að
engir bæir voru einangraðir meðan
á björguninni stóð.
mm/ Ljósm. aðsendar.
Grafa sökk í mýri á Mýrunum
Stjórnsýsluhúsið við Stillholt 16-18.
Bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar
rýmdar vegna mygluvandamáls