Skessuhorn - 01.09.2021, Side 12
MiðVikUdAgUR 1. SEptEMbER 202112
Líkt og undanfarin mörg ár tóku bændasamtök Íslands saman
lista yfir fjárréttir á landinu. Listinn var gerður opinber í síð-
ustu viku. Sem fyrr verða fyrstu réttir haustsins í Hvítársíðu,
þegar réttað verður í Nesmelsrétt næstkomandi laugardag.
Réttir haustsins á Vesturlandi eru í stafrófsröð, samkvæmt
samantekt bændasamtakanna:
Arnarhólsrétt í Helgafellssveit,
sunnudaginn 19. sept. kl. 11.00
Bláfeldarrétt í Staðarsveit, laugardaginn 25. sept.
Brekkurétt í Norðurárdal, sunnudaginn 12. sept. kl. 10.00,
seinni réttir sun. 26. sept.
Brekkurétt í Saurbæ, Dölum, sunnudaginn 19. sept. kl.
11.00, seinni réttir sun. 3. okt. kl. 13.00
Fellsendarétt í Miðdölum, dölum, sunnudaginn 19. sept.
kl. 14.00, aðrar réttir sun. 26. sept. kl. 14.00, þriðju réttir sun.
3. okt. kl. 14.00
Flekkudalsrétt á Fellsströnd, Dölum, laugardaginn 18.
sept., seinni réttir lau. 2. okt.
Fljótstungurétt á Hvítársíðu, laugardaginn 11. sept. og sun.
12. sept. Seinni réttir lau. 25. sept.
Gillastaðarétt í Laxárdal, Dölum, sunnudaginn 19. sept. kl.
12.00, seinni réttir sun. 3. okt. kl. 16.00
Grafarrétt í Breiðuvík, Snæf., laugardaginn 25. sept.
Grímsstaðarétt á Mýrum, þriðjudaginn 14. sept. kl. 10.00,
aðrar réttir mán. 27. sept. kl. 14.00, þriðju réttir mán. 4. okt.
Hítardalsrétt í Hítardal, mánudaginn 13. sept. kl. 9.00, aðr-
ar réttir 26. sept. kl. 16.00, þriðju réttir mán. 4. okt.
Hornsrétt í Skorradal, Borgarf, sunnudaginn 12. sept. kl.
10.00
Hólmarétt í Hörðudal, Dölum, sunnudaginn 12. sept. kl.
10.00, aðrar réttir sun. 26. sept. kl. 10.00
Hrafnkelsstaðarétt í Grundarfirði, laugardaginn 18. sept.
Kaldárbakkarétt í Kolb., Hnappadalssýslu, sunnudaginn 5.
sept. kl. 11.00
Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dölum, laugardaginn 18. sept,
seinni réttir lau. 2. okt.
Klofningsrétt í Beruvík, Snæf, laugardaginn 25. sept.
Langholtsrétt í Eyja- og Miklaholtshr., Upplýsingar vantar.
Ljárskógarétt í Laxárdal, Dölum, laugardaginn 11. sept.
Mýrar í Grundarfirði, laugardaginn 18. sept.
Mýrdalsrétt í Hnappadal, þriðjudaginn 21. sept. kl. 16.00,
seinni réttir sun. 10. okt. kl. 16.00
Nesmelsrétt í Hvítársíðu, laugardaginn 4. sept.
Núparétt í Melasveit, Borgarf, sunnudaginn 12. sept. kl.
13.00, seinni réttir lau. 25. sept.
Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal Borgarfirði, miðviku-
daginn 15. sept. kl. 9.00, seinni réttir sun. 3. okt. kl. 10.00
Ólafsvíkurrétt í Ólafsvík, laugardaginn 18. sept.
Ósrétt á Skógarströnd, Dölum, föstudaginn 1. okt. kl. 10.00
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, borgarfirði, sunnudaginn 19.
sept. kl. 10.00, seinni réttir sun. 3. okt. kl. 14.00
Reynisrétt undir Akrafjalli, Hvalfj.sv., laugardaginn 18. sept.
Skarðsrétt, Skarðsströnd, Dölum, sunnudaginn 19. sept.
kl. 11.00, seinni réttir sun. 3. okt. kl. 14.00
Skerðingsstaðarétt í Hvammsveit, Dölum, sunnudaginn
19. sept. kl. 11.00, seinni réttir sun. 3. okt. kl. 13.00
Svarthamarsrétt á Hvalfj.str., Borgarfirði, sunnudaginn
19. sept. kl. 10.00, seinni réttir sun. 3. okt.
Svignaskarðsrétt, Borgarfirði, mánudaginn 13. sept. kl.
10.00, aðrar réttir mán. 27. sept., þriðju réttir mán. 4. okt.
Tungurétt á Fellsströnd, Dölum, föstudaginn 17. sept.
Vörðufellsrétt á Skógarströnd, Dölum, laugardaginn 18.
sept. kl. 13.00, seinni réttir sun. 10. okt. kl. 13.00
Þverárrétt Eyja- og Miklaholtshr, Upplýsingar vantar.
Þverárrétt í Þverárhlíð, Borgarfirði, mánudaginn 13. sept.
kl. 07.00, aðrar réttir mán. 20. sept. kl. 10.00, þriðju réttir
mán. 27. sept. kl. 10.00
Þæfusteinsrétt á Hellissandi/Rifi, laugardaginn 18. sept.
Ölkeldurétt í Staðarsveit, laugardaginn 25. sept. mm
Ákveðið hefur verið í atvinnuveg-
aráðuneytinu að fela Landbúnað-
arháskóla Íslands að móta tillögu
að fæðuöryggisstefnu fyrir Ísland.
kristján Þór Júlíusson ráðherra og
Ragnheiður i. Þórarinsdóttir, rekt-
or Landbúnaðarháskóla Íslands,
hafa undirritað samning þess efn-
is. til grundvallar stefnumótuninni
liggur meðal annars skýrsla Land-
búnaðarháskólans um fæðuöryggi
sem skilað var til ráðuneytisins í
febrúar 2021. Skólanum er einn-
ig ætlað að kynna sér sambærilega
stefnumótun í nágrannalöndunum
og gildandi þjóðaröryggisstefnu
stjórnvalda að því marki sem hún
snertir fæðuöryggi og afla annarra
nauðsynlegra gagna til að stefnu-
mótunin verði sem best úr garði
gerð. drög að stefnunni eiga að
liggja fyrir í apríl 2022.
Í framangreindri skýrslu kom
fram að innlend matvælaframleiðsla
stendur fyrir stórum hluta fæðu-
framboðs á Íslandi og þá sérstak-
lega próteini. garðyrkjan sér fyrir
um 43% af framboði grænmetis og
búfjárrækt um 90% af kjöti, 96% af
eggjum og 99% af mjólkurvörum.
Fjallað er um veikleika íslenskr-
ar matvælaframleiðslu og lagt mat
á áhrif þess ef upp kæmi skortur á
aðföngum sem nauðsynleg eru fyrir
framleiðsluna.
Í skýrslunni er enn fremur farið
yfir það til hvaða þátta ætti helst að
horfa við mótun fæðuöryggisstefnu
sem eru meðal annars mat á eftir-
farandi þáttum:
• Nauðsynlegt framboð með tilliti
til fæðutegunda og magns.
• Þörf fyrir auðlindir og innviði til
framleiðslu, svo sem ræktunarland
og fiskistofna auk nauðsynlegrar
þekkingar og tækjabúnað til fram-
leiðslu.
• Nauðsynlegar birgðir lykilað-
fanga svo sem eldsneytis, áburð-
ar og fóðurs sem og birgðir mat-
væla sem nauðsynlegar eru fæðuör-
yggi en ekki er raunhæft að innlend
matvælaframleiðsla geti framleitt.
mm
bókasafn grunnskóla grundar-
fjarðar skoraði á nemendur, for-
eldra, ömmur og afa í 500 mínútna
sumarlestraráskorun í byrjun sum-
ars, en áskorunin er hluti af átaki
á landsvísu á vegum Menntamála-
stofnunar. Áttu þátttakendur að
skila á bókasafnið sérstöku skrán-
ingarblaði fyrir hverjar 500 lesnar
mínútur nú í lok sumars. Var þátt-
takendum frjálst að skila þá inn eins
mörgum blöðum og þeir gátu og
var einn sigurvegari svo dreginn út.
Alls voru 37 blöð í pottinum sem
gera 18.500 lesnar mínútur, eða 12
daga, 20 klukkutíma og 20 mínútur.
Sævar Hjalti Þorsteinsson í 4. bekk
var sá heppni sem kom upp úr pott-
inum en Sævar skilaði inn 12 blöð-
um og las því í 6000 mínútur eða
fjóra sólarhringa og fjóra klukku-
tíma. Fékk hann í verðlaun glæ-
nýjan ipad sem Fisk Seafood gaf.
arg
Lilja Magnúsdóttir starfsmaður á bókasafni Grunnskóla Grundarfjarðar og Anna
Kristín Magnúsdóttir aðstoðarskólastjóri afhentu Sævari Hjalta glænýjan Ipad í
verðlaun fyrir að vera mesti lestrarhestur sumarsins. Ljósm. tfk
Sævar Hjalti sigraði lestrar-
áskorun í Grundarfirði
Jóhannes Sveinbjörnsson, dósent við LBHÍ og verkefnisstjóri verkefnisins, Ragn-
heiður I. Þórarinsdóttir rektor LBHÍ, Kristján Þór Júlíusson ráðherra og Sigurður
Eyþórsson, verkefnisstjóri fyrir hönd ráðuneytisins.
LbhÍ mun stýra vinnu um
gerð fæðuöryggisstefnu
Fjárréttir á Vesturlandi í haust
Fé rekið til Svignaskarðsréttar. Ljósm. úr safni.