Skessuhorn - 01.09.2021, Qupperneq 23
MiðVikUdAgUR 1. SEptEMbER 2021 23
Tómstundafulltrúa Reykhólahrepps
Dagur í lífi...
Nafn: Jóhanna Ösp Einarsdóttir
Fjölskylduhagir/búseta: Ég bý
í kaplaskjóli í Reykhólasveit með
manninum mínum og þremur
börnunum okkar.
Starfsheiti/fyrirtæki: Ég vinn
fyrir Reykhólahrepp sem tóm-
stundafulltrúi. Er svo bóndi í hjá-
verkum, sveitarstjórnarfulltrúi,
nemi og formaður Fjórðungssam-
bands Vestfirðinga.
Áhugamál: Mér finnst ofsa-
lega gaman að hlaupa þegar ég
hef tíma í það, eða eins og lítil
frænka sagði í fyrradag að ég væri
nú eiginlega ekki að hlaupa held-
ur bARA skokka. Svo hef ég líka
gaman af því að vera á hestbaki.
Þetta felst bæði í því að vera í
náttúrunni sem er eitt af því sem á
hug minn allan og nú er að hefjast
eitt skemmtilegasta tímabil árs-
ins, smalamennskur sem taka ansi
marga daga á fjöllum.
Dagurinn: Fimmtudagurinn 26.
ágúst 2021
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú gerð-
ir?
Ég vaknaði kl. 6:30 og það fyrsta
sem ég gerði var að fá mér kaffi
og var svo í launaskráningu fyr-
ir starfsfólk tómstundastarfsins á
meðan ég drakk kaffibollann áður
en að börnin vöknuðu. Svo voru
þessi tvö eldri græjuð og send í
skólabílinn og þá gaf ég mér tíma
í að horfa á einn þátt af grey´s
Anatomy þangað til að sú yngsta
(sem er lasin) vaknaði.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
tvær ristaðar brauðsneiðar.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig?
Ég var með veikt barn heima í
dag þannig að ég fór ekki í vinn-
una mína sem tómstundafulltrúi
fyrr en klukkan 11:30 og þar sem
það eru 52 kílómetrar í vinnuna
þá fór ég á kíunni minni (bíll). En
áður en ég fór í vinnuna fór ég á
fund með fjórðungssambandinu
klukkan 9 og með sveitarstjórum á
Vestfjörðum kl. 10:30.
Fyrstu verk í vinnunni?
Sko, fyrsta verk um morguninn
var að kíkja á tölvupóstinn en svo
þegar ég var komin inn á Reyk-
hóla mætti ég beint inn í frí-
stundadagskrá og mitt fyrsta verk
þar var bara að heilsa krökkunum
og starfsfólkinu.
Hvað varstu að gera klukkan
10?
klukkan tíu var ég í tölvuvinnu,
það er mikið að gera á haustin í
að fara yfir skráningar í klúbba
í félagsmiðstöðinni og setja upp
stundatöflu fyrir tómstundastarf-
ið þannig að öll börn hafi eitthvað
við að vera og nái að taka þátt í
öllu sem þau hafa áhuga á. Svo er
uppgjör eftir sumarið, að skrifa
upp á reikninga og senda út reikn-
inga.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Mamma kom til að vera með
yngstu stelpuna mína rétt fyrir há-
degi svo ég gæti mætt í frístund-
astarfið þannig að ég tók hádegis-
matinn í bílnum á leiðinni og
drakk þennan dýrindis kEA skyr-
drykk og borðaði banana.
Hvað varstu að gera
klukkan 14?
Ég var í rannsóknarvinnu varð-
andi fiðrildi sem frístundar krakk-
arnir fundu, til að reyna að komast
að því hvaða tegund það væri.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni?
Ég hætti klukkan þrjú og það síð-
asta sem ég gerði var að ganga frá
dýnum í íþróttahúsinu á Reykhól-
um og slökkva ljós. Þegar vetrar-
starfið er komið á fullt er ég yfir-
leitt ekki búin fyrr en klukkan 20
en félagsmiðstöðin er báta- og
hlunnindasýningin á sumrin þann-
ig að við fáum hana ekki afhenta
fyrr en í næstu viku og þá byrjum
við af krafti.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Ég fór á vinnufund sveitarstjórnar
áður en ég fór heim. Þannig að ég
var komin heim upp úr sex og þá
var bara þetta hefðbundna, matur
og heimalestur.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði?
Það var afgangur af lamba fillet
sem maðurinn minn grillaði í gær.
Svo var stóra stelpan mín búin
að baka pizzasnúða og súkkulaði
brauðhorn sem var gott í eftirrétt.
Hvernig var kvöldið?
Það var bara ansi rólegt. Það er
fyrsta vika í haust rútínu þann-
ig að við erum bara aðeins þreytt
seinnipartinn. Svo var maðurinn
minn aldrei þessu vant ekki heima
og einn veikindapési þannig að
þetta var voða mikið bara gefa á
garðann og tala við krakkana.
Hvenær fórstu að sofa?
klukkan 10.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta?
Þvoði mér í framan og burstaði
tennur.
Hvað stendur upp úr eftir dag-
inn?
Sennilega var það spennan yfir
fiðrildinu.
Eitthvað að lokum?
Haustið er svo dásamlegt að það
er ekki annað hægt en að vera bara
ánægður í vinnunni og rútínunni.
Næstkomandi laugardag heldur
hönnuðurinn brynja Þóra guðna-
dóttir fyrirlestur við Háskólann
á bifröst um frumkvöðlaverkefni
sem hún stendur að í sjálfbærum
arkitektúr, heilsusamlegum efnum
og nýsköpun á sviði byggingarlist-
ar. Fyrirlesturinn verður sendur út
í opnu streymi kl. 12:30 – 13:30.
brynja Þóra fjallar m.a. um um
hugmyndafræði sjálfbærs arkitekt-
úrs og notkun náttúrulegra lausna í
húsahönnun. Hún hannar um þess-
ar mundir byggingu á vistvænu húsi
á lóð í Þingvallasveit. Ferlið verður
um leið bæði tilraun og rannsókn
á sjálfbærum arkitektúr í fram-
kvæmd.
Hringrásarhugsun í húsahönnun
verður gerð sérstök skil, hvernig
vatn er endurunnið og þjappaður
jarðvegur úr nærumhverfi nýttur
sem aðalbyggingarefni og einnig
hvernig orkuþörf í húshitun er lág-
mörkuð, svo að dæmi sé tekin.
Þá verður vikið að heilsusamleg-
um byggingarefnum og í hve mikl-
um mæli hættuleg efni eru notuð
í húsgögn og innréttingar. Einn-
ig mun brynja koma inn á þá ný-
sköpun og miklu gerjun sem er að
eiga sér stað á meðal hönnuða hér á
landi í sjálfbærri byggingarlist.
Fyrirlesturinn er liður í samtali
um skapandi greinar á vegum Há-
skólans á bifröst og verður í opnu
streymi á Fb síðu skólans. Fyrir-
lesturinn verður haldinn í Aðalbóli
á bifröst. Nemendur og kennarar á
bifröst eru velkomnir á meðan hús-
rúm og sóttvarnarreglur leyfa.
mm
Framkvæmdir hófust fyrir nokkrum
dögum við gerð göngustígs neðan
við keflavíkurgötu á Hellissandi
sem tengir Hellissand við Rif og
Ólafsvík og er alls um níu kílómetra
langur. Á mánudag var lokið við
að malbika um 300 metra göngu-
stíg fyrir neðan keflavíkurgötu
sem lengir stíginn inn í þéttbýlið á
Hellissandi og meðfram strandlín-
unni. Stígurinn verður síðan lagður
áfram inn að keflavíkurvörinni eft-
ir að búið verður að lengja sjóvörn-
ina sem nú er. gert er ráð fyrir því
að það verði árið 2024 en fram að
því verður lagður bráðabirgðastíg-
ur að keflavíkurgötu.
vaks Ljósm. Snæfellsbær
Nýr göngustígur sem tengir
Hellissand við Rif og Ólafsvík
Fyrirlestur um
sjálfbæra húsahönnun