Skessuhorn - 01.09.2021, Síða 27
MiðVikUdAgUR 1. SEptEMbER 2021 27
Pennagrein
Atvinnulíf er síbreytilegt. Þetta líf
sem er undirstaða byggðar og bú-
setuskilyrða. Hvort heldur eru
tækniframfarir á tölvuöld eða
breytingar í fjölda atvinnutækifæra
þá má sjá víða merki breytileika á
Vesturlandi – til sjávar og sveita.
Það vita allir að áföll í atvinnulífi
vega að búsetuskilyrðum, en fjölg-
un starfa er tekið fagnandi og sem
merki um framfarir og hagsæld. Á
Vesturlandi þekkir fólk báðar hlið-
ar þessara mála. Það er því sameig-
inlegt verkefni okkar að leita leiða
þar sem þróun, hugvit og nýsköpun
vinnur með samfélaginu að fjölgun
starfa og fjölbreyttu atvinnulífi.
Með bættum samgöngum og
ljósleiðurum hafa opnast ný tæki-
færi sem birtast í samvinnurýmum
þar sem störf eru unnin án stað-
setningar. Stofnun nýsköpunarsetra
laðar að sér hugmyndaríkt fólk og
áherslur háskólanna á Hvanneyri
og í bifröst um aukin tengsl við
íbúa og atvinnulíf gefa fyrirheit um
að spennandi verkefni geti orðið að
veruleika. Á þessum vettvangi er
pláss fyrir alla – einstaklinga og fyr-
irtæki af öllum stærðum.
Augljóst er að tækifærin nýtast
best í frjóu umhverfi samstarfs og
miðlunar upplýsinga. til þess að
styðja við áhuga stofnana, skóla,
einstaklinga og fyrirtækja á þróun
og nýsköpun er í undirbúningi að
stofna Nýsköpunarnet Vesturlands
(NýVest). Stefnt að því að þessi
vettvangur verði formlega stofnað-
ur á haustmánuðum.
Markmið NýVest verða:
Að vera vettvangur samstarfs •
og upplýsingamiðlunar.
Að aðstoða við að þroska og •
þróa álitlegar hugmyndir og
stuðla að lífvænleika áhuga-
verðra verkefna,
Að tengja saman hagaðila sem •
vinna að nýsköpun á Vestur-
landi; skóla, fyrirtæki og ein-
staklinga,
Að auka og efla tengsl fyrir-•
tækja/atvinnulífs við sterkt
þekkingarumhverfi á Vestur-
landi,
Að styðja við frumkvæði í •
heimabyggð þannig að setur
og samvinnurými verði drif-
kraftur NýVest
Og að vera faglegur bakhjarl •
nýsköpunar og frumkvöðla-
starfs á Vesturlandi.
Á næstunni verður hugmyndin að
baki NýVest kynnt á Vesturlandi,
en vettvangurinn verður sjálfseign-
arstofnun, sem verði í tengslum við
SSV sem um árabil hefur komið að
stuðningi við nýsköpun á Vestur-
landi með einum eða öðrum hætti.
Allir sem áhuga hafa geta orðið
stofnfélagar, þar sem einstakling-
ar leggi fram 15.000 króna stofnfé,
en fyrirtæki 30.000 krónur. Vett-
vangurinn verður síðan opinn öll-
um sem áhuga hafa á. Með öflugu
samstarfi og tengingum má ná ár-
angri í þróun nýrra starfa, nýsköp-
un og fjölgun starfa án staðsetning-
ar. Nýsköpunarnetinu er ætlað að
styðja við þá þróun.
Í þessu greinarkorni viljum við
hvetja einstaklinga og fyrirtæki til
þess að gerast stofnfélagar vett-
vangsins, en stofnfundur er áætlað-
ur í októbermánuði og verður aug-
lýstur með góðum fyrirvara. Í þró-
un og nýsköpun liggur urmull tæki-
færa, stór og smá og á fjölmörgum
sviðum. Nýting þessara tækifæra er
undir íbúunum komin, vilja þeirra
og áhuga á að taka með beinum
hætti þátt í að efla atvinnulíf á Vest-
urlandi. Máltækið „Situr sveltandi
kráka en fljúgandi fær“ getur átt við
um það hvort við látum skeika að
sköpuðu í þeirri hröðu þróun sem
á sér stað í nýsköpun og breyttu
samfélagi eða hvort við leggjum
okkar að mörkum á þeim vettvangi
með hugvit, samvinnu og viljann að
vopni.
Páll Snævar Brynjarsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga
á Vesturlandi (SSV)
Gísli Gíslason, formaður starfshóps
um NýVest.
HUGMYNDASAMKEPPNI
UM HÖNNUN OG SKIPULAG
LANGASANDSSVÆÐISINS Á AKRANESI
Um samkeppnina
Akraneskaupstaður ákvað árið 2020 að efna til hugmyndasamkeppni um
skipulag og hönnun Langasandssvæðisins á Akranesi í samstarfi við
er að fá hugmyndir um framtíðarskipulag svæðisins í heild sem tengir
m.a. strandsvæði, skólasvæði, framtíðar uppbyggingarreit og hafnar-
svæðið.
Svæðið sem um ræðir nær frá Innnesvegi til norðausturs, Langasandi og
Leyni til suðvesturs, norðvestur afmarkast svæðið við gatnamót Jaðars-
brautar og Faxabrautar, suðaustur af bæjarmörkum Akraneskaupstaðar.
Svæðið er um 35 hektarar að stærð og er stór hluti svæðisins innan
hverfisverndar í gildandi aðalskipulagi. Það nær yfir útivistarsvæði frá
Leynisfjöru, Sólmundarhöfða, meðfram Langasandi að Faxabraut. Eftir
svæðinu liggur strandstígur, íþróttasvæðið að Jaðarsbökkum,
íbúðabyggð á Sólmundarhöfða, hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfði sem
og fjölbýlishúsalóðir við Garðabraut, Höfðabraut og Jaðarsbraut.
Leiðarljós samkeppninnar
Leiðarljós samkeppninnar er að skapa heildræna sýn á notkun og
upplifun á Langasandi og skal við hönnun og skipulag svæðisins hafa
eftirfarandi atriði í huga:
• Hönnun og skipulag skal taka tillit til framþróunar í vistvænni
byggingartækni og mannvirkjagerð ásamt því að tryggja lágmarks
viðhalds- og rekstrarkostnað.
• Hönnun og skipulag svæðisins komi til móts við þá sem nota svæðið
og ýti undir afþreyingu, útivist og hreyfingu almennings á sem
fjölbreyttastan hátt allan ársins hring og styrki aukna menningar-
starfsemi.
• Hönnun og skipulag skal stuðla að sjálfbærni svæðisins, s.s. sjálfbærri
nýtingu auðlinda og kolefnisbindingu. Ásamt því skal hönnun og
skipulag taka mið af vistvænum lausnum með það að markmiði að
bæta gæði ofanvatns með blágrænum lausnum og stuðla að grænna
umhverfi.
• Tryggja skal náttúrulegan fjölbreytileika landslags, lífríkis og
menningarminja með markvissri verndun og viðhaldi.
• Tryggja öryggi á svæðinu og aðgengi fyrir alla.
• Áherslur og þarfir íbúa Akraness séu höfð til hliðsjónar í hönnun og
skipulagi svæðisins, þar sem staðarandi nýtur sín óskertur og tryggt
að ánægja og áhugi fólks á notkun svæðisins glatist ekki.
• Svæðið skal vera álitlegur áningastaður og stuðla að markmiðum
Heilsueflandi samfélags og Bláfánavottunnar.
• Að svæðið fái fallegt heildaryfirbragð og geti þróast og öðlast heild-
stætt hlutverk til framtíðar sem stuðlar að fjölbreyttri notkun þess og
skapi sér fastan sess í daglegri útivist sem flestra íbúa á Akranesi.
Markmið samkeppninnar
vellíðan, heilsu og upplifun fyrir alla notendur með eftirfarandi atriði í
huga:
• Hönnun og skipulag sé í samræmi við meginstefnu Aðalskipulag
Akraness 2006-2017 ásamt drögum að endurskoðun Aðalskipulags
Akraness 2020-2032.
• Hugmyndir innihaldi tillögur um uppbyggingu Guðlaugar til
framtíðar s.s. búnings- og sturtuaðstöðu, veitingasölu eða önnur
tengd rekstrartækifæri sem eiga samleið með Guðlaugu og styrkja
svæðið í heild.
• Hönnun og skipulag tengist uppbyggingu og skipulagi íþróttamann-
virkja á Jaðarsbökkum.
• Hugmyndir innihaldi tillögur um framtíð útisvæða Knattspyrnufélags
Akraness t.d. tilfærsla á keppnisvelli og mannvirkjum.
• Hugmyndir styðji við varðveislu minja og náttúru svæðisins.
• Hönnun og skipulag tengist uppbyggingu og skipulagi á
Langasandsreit (Sementsreit).
• Hugmyndir styðji við atvinnusköpun á svæðinu í anda heilsu og
vellíðunar.
• Hönnun og skipulag svæðisins tryggi aðgengi allra að svæðinu sem
og einnig innan svæðisins ásamt góðu og öruggu aðgengi að fjörum
svæðsins, þ.e. Langasandi og Leynisfjöru.
• Hugmynd að hönnun strandstígar meðfram svæðinu, stígur sem
hefur möguleika til góðra tenginga við núverandi stígakerfi og
nærliggjandi svæði og verður fyrirmynd fyrir strandlengju Akraness.
Hönnun stígs horfi til samspils gangandi og hjólandi umferðar.
• Hönnun og skipulag geri svæðið líflegt, skapi skjólsæl svæði, stuðli
að heilsueflingu, sé áhugavert og fræðandi og eftirsóknarvert fyrir
fjölskyldur og aðra hópa.
• Raunhæf framtíðarsýn við hönnun og skipulag þar sem virðing er fyrir
því sem vel hefur verið gert á svæðinu, viðhalda sjónrænum tengslum
við hafið og hugmyndir nýtist óháð árstíðum.
styrki staðaranda svæðisins og tengist heilsu og vellíðan.
uppbyggingu á svæðinu ásamt því að meta hvernig eða hvort
núverandi mannvirki og/eða svæði geti nýst betur eða öðruvísi fyrir
svæðið í heild.
• Sérstaða svæðisins sé nýtt til fulls.
Þitt álit skiptir máli
Apríl Arkitekter, Kanon Arkitektar og Landmótun sf. ásamt Sei
Stúdíó eru þau þrjú teymi sem taka þátt í hugmyndasamkeppni
en þau voru formlega dregin í útdrætti þann 2. mars 2021.
Hugmyndir þeirra eru hér til sýnis án auðkennis og á hvert teymi
raðnúmer sem verður opinberað við niðurstöðu dómnefndar í
byrjun september.
Þitt álit skiptir okkur máli og óskum við eftir að heyra frá ykkur.
Útbúin hefur verið rafræn viðhorfskönnun um hugmyndirnar sem
íbúar geta fyllt út og sent dómnefndinni. Verða niðurstöður
hafðar til hliðsjónar við ákvörðun um úrslit í samkeppninni.
Allar nánari upplýsingar um
Net tækifæra –
nýsköpun og þróun
Heilbrigðisráðherra ákvað á föstu-
daginn að gera enn frekari tilslak-
anir á samkomutakmörkunum sem
tóku gildi 28. ágúst síðastliðinn.
grímuskylda á viðburðum utandyra
verður felld á brott og skýrar kveðið
á um heimild til að halda einkasam-
kvæmi í veislusölu og sambærilegu
húsnæði fram yfir miðnætti. Ráð-
herra hefur einnig ákveðið nánari
útfærslu á notkun hraðprófa á við-
burðum.
tilslakanir gerast hratt. Um
miðja síðustu viku féllst ráðherra
á tillögur sóttvarnalæknis um til-
slakanir frá fyrri reglum. Fólu þær
m.a. í sér full afköst í sundlaugum
og líkamsrækt í stað 75% eins og
var áður, iðkendum var fjölgað í 200
manns á íþróttaæfingum og -keppn-
um og sviðslistum, eins metra regla
féll niður meðal áhorfenda á sitj-
andi viðburðum, veitingasala verður
heimiluð í hléum og leyfilegur há-
marksfjöldi gesta á veitingastöðum
fór úr 100 í 200 í rými. Þá er unn-
ið að útfærslu á tillögum sóttvarna-
læknis um að hægt verði að hafa allt
að 500 manns í hólfi á sitjandi við-
burðum og engin fjarlægðarmörk
gegn hraðprófum. Sú útfærsla verð-
ur unnin í nánu samráði við þá sem
standa fyrir stórum viðburðum.
Reglum um sóttkví var breytt í vik-
unni með það að markmiði að þær
séu síður íþyngjandi og settar hafa
verið reglur um sjálfspróf og reglur
um hraðpróf uppfærðar. mm
Slakað verulega á
sóttvarnareglum