Skessuhorn - 01.09.2021, Qupperneq 31
MiðVikUdAgUR 1. SEptEMbER 2021 31
Íslandsmeistaramót í bekkpressu
og klassískri bekkpressu hjá kraft-
lyftingasambandinu fóru fram á
laugardaginn og var það Stjarnan
í garðabæ sem annaðist mótshald-
ið. Fyrst var keppt í búnaði og urðu
stigahæst þau Einar Örn guðnason
frá Akranesi og Þóra kristín Hjalta-
dóttir frá Massa. Einar Örn er því
Íslandsmeistari í -120kg flokki með
og án búnaðar.
Í klassískri bekkpressu urðu stiga-
hæst þau Ríkharð bjarni Snorrason
frá bolungarvík og María krist-
björg Lúðvíksdóttir frá LFk.
mm
káramenn gerðu sér ferð í breið-
holtið á föstudagskvöldið og töp-
uðu gegn ÍR með fjórum mörkum
gegn einu í 2. deild karla í knatt-
spyrnu. pétur Hrafn Friðriksson
skoraði tvö mörk með stuttu milli-
bili um miðjan fyrri hálfleik fyr-
ir ÍR og á 67. mínútu bætti Reynir
Haraldsson þriðja markinu við fyr-
ir heimamenn. garðar bergmann
gunnlaugsson minnkaði muninn
fyrir kára þremur mínútum fyr-
ir leikslok en það var síðan berg-
vin Fannar Helgason sem átti loka-
orðið fyrir ÍR á lokamínútunni og
öruggur sigur heimamanna í húsi,
4-1.
Með þessu tapi er kári nánast
fallinn úr annarri deildinni en kári
á þrjá leiki eftir og er nú níu stigum
frá öruggu sæti þar sem Leiknir
frá Fáskrúðsfirði situr. Næsti lei-
kur kára er gegn toppliði Þróttar
í Vogum í Akraneshöllinni næsta
föstudag og hefst klukkan 19.15.
vaks
Skagamenn léku tvo leiki í vikunni
í pepsi Max deildinni og sá fyrri var
gegn kR á Akranesvelli síðasta mið-
vikudag. gestirnir byrjuðu leikinn
betur og komust yfir á 14. mínútu
þegar kjartan Henry Finnboga-
son renndi boltanum í netið eftir
góðan undirbúning Stefáns Árna
geirssonar. Markið var þó umdeilt
en kjartan virtist brjóta á guð-
mundi tyrfingssyni, hægri bakverði
Skagamanna, í aðdragandanum og
vildu Skagamenn fá brot en ekkert
var dæmt. Nokkrum mínútum síð-
ar var kennie Chopart nálægt því
að bæta við öðru marki úr auka-
spyrnu fyrir kR-inga. Þrumuskot
hans fór í slá og niður en kR-ingar
héldu því fram að boltinn hefði far-
ið inn fyrir línuna. Viktor Jónsson
kom sér í gott færi undir lok fyrri
hálfleiks til að jafna leikinn en skot
hans fór hárfínt fram hjá og staðan í
hálfleik 0-1 fyrir Vesturbæinga.
Eftir fimm mínútna leik í seinni
hálfleik bættu kR-ingar við öðru
marki. Eftir snarpa skyndisókn
barst boltinn til kjartans Henry
sem átti sendingu inn fyrir vörnina
og þar renndi guðmundur tyrf-
ingsson sér á boltann með mann
í bakinu en varð fyrir því óláni að
skora sjálfsmark í leiðinni. Ekki var
mikið um marktækifæri það sem
eftir lifði leiks en undir lok leiks-
ins átti Ægir Jarl Jónasson skot í slá
fyrir gestina en ekki fór boltinn inn
og lokatölur 0-2 fyrir kR.
Skagamenn léku síðan gegn liði
kA á greifavellinum á Akureyri
á sunnudag og töpuðu þar þriðja
leiknum í röð í deildinni. Leikur-
inn byrjaði fjörlega og Skagamenn
fengu fyrsta færi leiksins þegar
Wout droste átti skot af stuttu færi
sem fór fram hjá marki kA-manna.
Fyrsta mark leiksins kom á 26.
mínútu þegar bjarni Aðalsteins-
son skallaði boltann í fjærhornið
eftir fyrirgjöf og staðan orðin 1-0
fyrir heimamenn. Eftir þetta tóku
kA-menn öll völd á vellinum og á
37. mínútu átti Árni Marinó afleita
hreinsun frá marki beint í fæturna
á bjarna sem lagði boltann til hlið-
ar á Jakob Snæ Árnason sem skor-
aði af öryggi undir Árna Marinó
í markinu og staðan í hálfleik 2-0
fyrir kA.
Skagamenn komu grimmir
til leiks í seinni hálfleik og voru
óheppnir að skora ekki á fyrsta
korteri leiksins. Steinþór Már Auð-
unsson, markvörður kA, varði
tvisvar frábærlega fyrir kA. Fyrst
varði hann frá Hákoni inga Jóns-
syni af stuttu færi og ekki löngu
síðar frá Sindra Snæ Magnússyni úr
aukaspyrnu. Þrettán mínútum fyr-
ir leikslok fengu kA-menn auka-
spyrnu fyrir utan teig Skagamanna
og Hallgrímur Mar Steingrímsson
þrumaði boltanum að marki. Árni
Marinó missti boltann hreinlega
úr höndunum á sér sem lak inn í
markið en þó má setja spurningar-
merki við varnarvegg Skagamanna
í markinu þar sem einn leikmaður
ÍA, Ísak Snær Þorvaldsson, hoppaði
upp og fékk boltann í gegnum klof-
ið. Sannfærandi sigur kA og í við-
tali eftir leik sagði Jóhannes karl
guðjónsson, þjálfari Skagamanna,
aðallega vera svekktur með hvern-
ig leikurinn hefði þróast og þá sér-
staklega í fyrri hálfleik. Þeir hefðu
ákveðið að verjast neðarlega á vell-
inum og ætluðu ekki að gefa færi
á sér en fyrsta markið hefði breytt
leikplaninu. Um framhaldið sagði
Jói kalli: „Það eru allavega níu stig
eftir í boði fyrir okkur. Ef önnur úr-
slit verða okkur í hag þá gæti þetta
verið í okkar höndum að klára þessa
þrjá leiki og tryggja það að vera í
efstu deild að ári.“
Skagamenn eru sem fyrr í neðsta
sæti deildarinnar með tólf stig þeg-
ar þrjár umferðir eru eftir og fimm
stigum frá öruggu sæti og verða
hreinlega að vinna alla leikina sem
eftir eru til að eiga möguleika á að
halda sæti sínu í deildinni. Næsti
leikur Skagamanna er gegn Leikni
eftir landsleikjahlé laugardaginn
11. september á Akranesvelli og
hefst klukkan 14.
vaks
Víkingur Ólafsvík lék tvo leiki í
Lengjudeildinni í liðinni viku og
sá fyrri var gegn liði Vestra á Olís-
vellinum á Ísafirði síðasta þriðjudag
og varð að sætta sig við tap. pétur
bjarnason kom heimamönnum yfir
á 17. mínútu og fimm mínútum fyr-
ir leikhlé bætti pétur við sínu öðru
marki og staðan í leikhléi 2-0.
guðmundur Arnar Svavarsson
skoraði þriðja mark Vestramanna á
63. mínútu og allt útlit fyrir örugg-
an sigur þeirra en með átta mín-
útna millibili skoraði Harley bryn
Willard tvö mörk fyrir Víking og
tíu mínútur enn eftir af leiknum.
En Vestramenn héldu forystunni út
leiktímann og lokastaðan 3-2 fyrir
Vestra.
Víkingur tók síðan á móti liði
Selfoss á laugardaginn og tap-
aði leiknum með þremur mörkum
gegn engu. Því er ljóst að Víking-
ur er fallinn í 2. deild en liðið hef-
ur spilað samfleytt í næstefstu deild
frá árinu 2018. Selfyssingar komust
yfir eftir hálftíma leik með marki
Valdimars Jóhannssonar og á síð-
ustu mínútu fyrri hálfleiks bætti
Aron Einarsson við öðru marki
og gestirnir fóru því með tveggja
marka forystu inn í hálfleik.
gary John Martin skoraði þriðja
mark Selfyssinga eftir klukkutíma
leik og gulltryggði sigurinn og um
leið veru þeirra í Lengjudeildinni
þetta árið. Þróttur úr Reykjavík er
að öllum líkindum einnig fallinn úr
deildinni og í stað Þróttar og Vík-
ings koma líklega upp Þróttur Vog-
um, Völsungur eða kV.
Næsti leikur Víkings er á morg-
un gegn liði kórdrengja á domus-
novavellinum í breiðholti og hefst
klukkan 18.
vaks
4. flokkur ÍA/Skallagríms í knatt-
spyrnu keppti í sumar í A-riðli á
Íslandsmótinu í átta manna bolta.
Liðið endaði í efsta sæti riðilsins
ásamt grindavík með 21 stig í níu
leikjum og komst í úrslitakeppn-
ina sem haldin var á Skallagríms-
velli í borgarnesi um helgina. Þar
áttust við tvö efstu liðin úr A og
b-riðli og í fyrsta leik mætti ÍA/
Skallagrímur liði kormáks/Hvöt
og tapaði 2-4. Síðan komu sig-
urleikir gegn tindastól 6-3 og
gegn grindavík 4-2. kormákur/
Hvöt varð Íslandsmeistari með sjö
stig, ÍA/Skallagrímur var með sex,
tindastóll með þrjú og grindavík
rak lestina með ekkert stig. Þjálf-
ari silfurliðsins er declan Red-
mond. vaks
Víkingur Ólafsvík er fallinn í 2. deild. Svipmynd úr leiknum á laugardaginn. Ljósm. af.
Víkingur Ólafsvík fallinn í
2. deild eftir tap gegn Selfossi
Lið ÍA/Skallagríms sem lenti í öðru sæti. Ljósm. Kristín Jónsdóttir.
ÍA/Skallagrímur fékk silfur í 4. flokki
Það bendir margt til þess að Skagamenn spili í Lengjudeildinni á næsta ári. Ljósm. úr safni.
Skagamenn enn í fallsæti en eygja smá von um að halda sér uppi
Einar Örn Guðnason og Þóra Kristín Hjaltadóttir. Ljósm. Kraftlyfingasambandið.
Einar Örn Íslandsmeistari
í bekkpressu
Byrjunarlið Kára gegn ÍR í leiknum á föstudaginn. Ljósm. sgh
Kári nánast fallinn
eftir tap gegn ÍR