Skessuhorn - 09.03.2022, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 20228
Vatn flæddi yfir
vegarkafla
BORGARFJ: Tilkynning
barst til lögreglu á laugardags
kvöldið um að vatn væri að
flæða yfir Borgarfjarðarbraut
rétt sunnan megin við gatna
mótin við Lækjarbrekku en
talsvert vatn flæddi yfir veg
inn. Haft var samband við
Vegagerðina og fóru starfs
menn hennar á staðinn og
skoðuðu ummerki. Ekki var
hægt að aðhafast neitt vegna
mikillar úrkomu en ætlunin
er að merkja vegarkaflann hið
fyrsta sitt hvorum megin þar
sem flæddi. -vaks
Aflatölur fyrir
Vesturland
26. febrúar – 4. mars
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 3 bátar.
Heildarlöndun: 5.859.843
kg.
Mestur afli: Víkingur AK:
2.296.432 kg í einni löndun.
Arnarstapi: Engar landanir á
tímabilinu
Grundarfjörður: 12 bátar.
Heildarlöndun: 703.974 kg.
Mestur afli: Kap II VE:
123.353 kg í fjórum róðrum.
Ólafsvík: 13 bátar.
Heildarlöndun: 253.998 kg.
Mestur afli: Kristinn HU:
46.923 kg í fjórum löndunum.
Rif: 16 bátar.
Heildarlöndun: 606.074 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
150.818 kg í tveimur róðrum.
Stykkishólmur: 5 bátar.
Heildarlöndun: 128.362 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
113.207 kg í tveimur löndun
um.
Topp fimm
landanir á tímabilinu:
1. Víkingur Ak – AKR:
2.296.432 kg. 2. mars.
2. Venus NS – AKR:
2.074.325 kg. 27. febrúar.
3. Svanur RE – AKR:
1.489.086 kg. 1. mars.
4. Tjaldur SH – RIF: 87.812
kg. 27. febrúar.
5. Jökull ÞH – GRU: 83.597
kg. 1. mars.
-arg
Hvalfjarðarsveit fékk nýverið Ver
kís til að gera úttekt á húsnæði leik
skólans Skýjaborgar með tilliti til
hugsanlegra rakaskemmda. Starfs
maður á vegum Verkís tók húsnæð
ið út á fimmtudaginn í liðinni viku
og var tveimur rýmum á yngri deild
skólans lokað í kjölfar úttektarinn
ar. „Öðru rýminu var lokað af ör
yggisástæðum því börnin leggja
sig þar,“ sagði Linda Björk Páls
dóttir sveitarstjóri í samtali við
Skessuhorn síðastliðinn föstudag.
Ekki hafði þá verið staðfest hversu
mikill rakinn væri eða hvort um
væri að ræða myglu og þar af leið
andi sýkt húsnæði. „Við eigum eft
ir að fá ástandsskýrslu og það hef
ur því ekkert verið staðfest. En við
bregðumst bara strax við og lok
um þessari deild og byrjum á þessu
verk efni strax á mánudaginn. Þá
verður rifið upp eins og þarf til að
finna rót vandans og svo byggjum
við upp aftur,“ segir Linda þegar
rætt var við hana á föstudag.
arg
Rafmagnsleysis varð vart sunn
an Búðardals í Dölum á laugar
dagskvöld og fram eftir að
fararnótt sunnudags. Vakti það
nokkra undrun íbúa, þar sem veðr
ið var venju fremur gott og engar
tilkynningar höfðu borist um
mögulegar truflanir. Laxárdalur,
Haukadalur, Miðdalir og Skógar
strönd misstu rafmagn á tímabili
á laugardagskvöldið, en eftir mikl
ar prófanir og inn og útslátt raf
magns kom í ljós að bilunin var á
Skógarströnd, milli Gunnarsstaða
og Dunks. Þess vegna var hægt að
koma straumi á byggðina, sunnan
Búðardals allt að Blönduhlíð, inn
an ekki svo langs tíma. Samkvæmt
upplýsingum hjá bilanadeild Rarik
á Vesturlandi gengu starfsmenn
Rarik með línunni á laugardags
kvöldið til að finna hvar hún var
biluð. Þegar bilunin fannst og
farið var að reyna að setja saman
strenginn sem rofnað hafði, var
hann það lélegur að hann slitn
aði ítrekað í sundur og kalla varð
eftir liðsauka og nýjum streng úr
Búðardal. Rafmagnslaust var því á
Skógarströnd í á fjórtándu klukku
stund og var farið að kólna í húsum
þar á sunnudagsmorgun.
Þessar rafmagnsbilanir eru þær
síðustu í langri röð bilana síðustu
vikur og orsakast af samspili gam
alla raflína og slæmri tíð. Bæði
menn og rafmagnstæki eru komin
með ýmis þreytueinkenni af þess
um sökum. Kerti og ennisljós eru
nú tiltæk á öllum heimilum og
þegar þessi frétt er skrifuð á mánu
degi er einmitt slegið út í Saurbæ,
þar sem unnið var að viðgerð, sem
orsakaðist af illviðri nýlega. bj
Athygli vakti á dögunum þegar
neðri hæð gamla Búnaðarbanka
hússins í Búðardal var kynnt á vef
Veitingageirans, sem áhugavert
viðskiptatækifæri í veitingarekstri,
vel staðsett við þjóðveginn vest
ur á firði. Leifur Steinn Elísson
keypti húsið af Arion banka síðari
hluta ársins 2019 og fékk það af
hent eftir áramótin 2020. Leifur
Steinn er Dalamaður í húð og hár,
hagfræðingur og lengst af sviðs
stjóri og aðstoðarforstjóri Visa Ís
land. Leifur Steinn kveðst í samtali
við Skessuhorn vera mjög áhuga
samur um að fá líf í húsið, en vegna
heimsfaraldurs tók hann til við
endurnýjun og viðhald og er hús
ið að verða tilbúið undir nýja starf
semi. Húsið er á tveimur hæðum
og hefur efri hæðin verið endurnýj
uð með það að markmiði að leigja
þar út herbergi í langtímaleigu, en
neðri hæðin var einnig öll endur
nýjuð. Þessir hlutar hússins eru nú
aðskildir, þar sem gengið er inn á
efri hæð utan frá, ólíkt því sem áður
var.
Leifur Steinn sagði í samtali við
Skessuhorn að rétt vantaði herslu
muninn á að neðri hæðin verði til
búið til úttektar heilbrigðiseftirlits
ins. Auk þess er búið að útbúa sal
ernisaðstöðu, setja gólfhita og flísa
leggja alla neðri hæðina. Í rými
neðri hæðar bankans var alltaf læst
hvelfing, mjög rammgerð, sem
vakti áhuga fréttaritara. Leifur seg
ir að það rými sé lítið breytt og geti
vel nýst til kælingar eða frystingar.
Að endingu upplýsir Leifur Steinn
að hann hafi fengið allnokkur við
brögð. Margir áhugasamir og verið
sé að skoða ýmsa möguleika þessa
dagana.
bj
Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Er úr safni Skessuhorns frá því raflínustaurar höfðu kubbast sundur í Staðar-
sveit.
Raflínustrengur slitnaði ítrekað
Loka deild
vegna raka á
leikskólanum
Skýjaborg
Undirbúa nýja starfsemi í bankahúsið í Búðardal