Skessuhorn - 09.03.2022, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 202214
Í Grundarfirði standa þær Ágústa
Einarsdóttir og Rut Rúnarsdóttir,
þjálfarar hjá Líkamsræktinni, fyr
ir heilsueflingu eldri íbúa bæjarins.
Þá kemur hópurinn saman fjór
um sinnum í viku og stundar heil
næma hreyfingu; tvisvar sinnum í
sal Líkams ræktarinnar og tvisvar
sinnum í sal íþróttahússins.
Miðvikudaginn 2. mars síðast
liðinn var hefðbundin dagskrá að
eins brotin upp í tilefni Öskudags
ins. Þá mætti sjúkraflutningamað
urinn Tómas Freyr Kristjánsson
og fór yfir fyrstu viðbrögð við með
vitundarleysi og notkun hjarta
stuðtækis í slíkum tilfellum. Iðk
endur voru mjög áhugasamir um
fræðsluna og fengu svo að æfa sig í
hjartahnoði svona til að fá einhverja
hreyfingu. Í lok tímans var svo skál
að í engiferdrykk sem rann ljúflega
niður.
mm/ Ljósm. áe
Vetrardagar verða haldnir á Akra
nesi dagana 17. til 20. mars en
þeir voru haldnir fyrst árið 2016
og hafa undanfarin ár verið und
ir heitinu Írskir vetrardagar. Há
tíðin var síðast haldin árið 2020
en var frestað í fyrra vegna far
aldursins. Sigrún Ágústa Helgu
dóttir hjá Akraneskaupstað seg
ir að markmið Vetrardaga séu að
stofnanir Akraneskaupstaðar, fyr
irtæki og bæjarbúar eru hvatt
ir til sjálfsprottinnar þátttöku til
að glæða bæjarbraginn lífi. Þá er
þetta kjörið tækifæri fyrir menn
ingartengda viðburði, aukinn
opnunartíma í verslunum, opn
ar vinnustofur, „pop up“ matseðla
á veitingahúsum eða aðrar uppá
komur.
Sigrún Ágústa segir einnig að
þau treysti algjörlega á bæjarbúa,
stofnanir og fyrirtæki til að setja
saman dagskrá. Síðan er það sem
er alltaf á boðstólum alla jafnan
eins og til dæmis Fjölskyldutím
ar á Smiðjuloftinu og Sögustund
á bókasafninu þar sem verið er að
benda á það sem er fyrir og til að
vekja athygli á því. Þeir sem vilja
enn taka þátt geta haft samband
fyrir fimmtudaginn 10. mars.
Staðfestir viðburðir á vetrar
dögunum í ár eru til dæmis tón
leikar hjá Karlakórnum Svönum
og rokktónleikar í Landsbanka
húsinu. Kellingar ganga heim að
Görðum verður laugardaginn 19.
mars þar sem gengið verður um
Garðasvæðið og kirkjugarðinn.
Föstudaginn 18. mars verður
Dansstúdíó Díönu og FIMÍA með
opna æfingu fyrir börn þriggja til
sjö ára. Þá verður Hallbera Jó
hannesdóttir með upplestur úr
bókum sínum á Byggðasafninu
sunnudaginn 20. mars.
vaks
Sigga Dóra Matthíasdóttir er ný
hótelstýra á Laugum í Sælingsdal
fyrir sumarið. Sigga Dóra var að
stoðarhótelstýra síðasta sumar og
þekkir því vel til svæðisins. „Hér er
dásamlegt að vera og ég er rosalega
þakklát að hafa fengið þetta starf,“
segir Sigga Dóra ánægð. Hótelið
verður opnað 1. maí og ætlar hún
að vera með mikið líf á svæðinu í
allt sumar.
„Ég ætla að vera með allskon
ar skemmtilegar uppákomur fyr
ir gesti og sveitunga, ég held að
það vanti hér á svæðinu. Ég ætla
að vera dugleg að fá hljómsveitir
til að koma og aðra skemmtikrafta
eins og Siggu Kling og fleiri,“ seg
ir Sigga Dóra. „Það var mjög mikið
að gera hér síðasta sumar og mikið
fjör og ég get sagt að þetta sumar
verður ekki síðra. Ég hef verið að
stjórna alls konar skemmtikvöld
um og svona viðburðum í gegnum
árin og því alveg á heimavelli,“ bæt
ir hún við.
arg
Sigga Dóra Matthíasdóttir verður
hótel stjóri á Hótel Laugum í Sælings-
dal í sumar. Ljósm. aðsend
Ætlar að hafa líf og fjör á Hótel
Laugum í sumar
Laugar í Sælingsdal. Ljósm. úr safni
Vetrardagar á Akranesi
17. til 20. mars
Þær Ágústa Einarsdóttir og Rut Rúnarsdóttir stilltu sér upp fyrir framan hópinn að
loknum tímanum.
Farið yfir réttu handtökin
í leikfimi eldri borgara
Tómas Freyr kynnir réttu handbrögðin fyrir þessum duglega hópi.
Jóhanna Hallgerður Halldórsdóttir hnoðar dúkkuna.