Skessuhorn - 09.03.2022, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 202218
Stelpum og kynsegin ungmennum
í Borgarbyggð bauðst í síðustu viku
að sitja námskeiðið Stelpur Filma
sem haldið var á vegum RIFF. Þar
rækta þátttakendur innri sköpunar
gáfu sína og læra undirstöðuatriði í
kvikmyndagerð. Námskeiðið hef
ur það markmið að valdefla ungar
stúlkur og kynsegin ungmenni og
leiðrétta þann kynjahalla sem hef
ur verið í kvikmyndagerð. Á nám
skeiðinu vinna þátttakendur í litl
um hópum við gerð stuttmyndar
frá grunni, sem mega vera allt að
fimm mínútur að lengd. Myndirn
ar verða svo sýndar RIFF hátíðinni
í september.
Blaðamaður Skessuhorns kíkti
á krakkana á námskeiðinu síðast
liðinn fimmtudag og fékk að fylgj
ast með því sem þeir voru að gera.
Flest voru þá að byrja að klippa
myndefnið og greinilegt að þeim
þótti gaman að fara yfir það efni
sem búið var að taka upp. Vinkon
urnar Hanna Eiríksdóttir og Díana
Björg Guðmundsdóttir settust nið
ur með blaðamanni í smá stund
og sögðu frá verkefninu. Myndin
þeirra var drama um þrjár vinkon
ur þar sem ein var í neyslu en hin
ar tvær voru hrifnar af sama strákn
um. „Þetta er alveg svona ekta ung
lingadrama,“ segja þær. Aðspurðar
segja þær námskeiðið hafa kveikt
meiri áhuga hjá þeim á kvikmynda
gerð. „Þetta er ótrúlega skemmti
legt námskeið og það er eiginlega
mun auðveldara en við héldum að
gera svona stuttmyndir,“ segja þær.
„Við fengum líka fyrirlestur um
jafnrétti sem var mjög skemmtileg
ur og við lærðum ótrúlega margt,“
segja þær og bæta við að þar hafi
þær til dæmis lært um það hvernig
halli á konur í kvikmyndum.
Ólafur Darri
varð „star struck“
Á námskeiðið mætti svo leynigestur
rétt fyrir hádegishlé á fimmtu
daginn, en það var enginn annar en
Ólafur Darri Ólafsson leikari sem
kom til að spjalla við nemendurna.
Það vakti mikla lukku þegar þau
sáu hann ganga í salinn og höfðu
krakkarnir margar spurningar fyrir
hann. Ólafur Darri sagði krökkun
um frá því hvernig hans ferill í leik
list hófst og hvatti þau sem vildu
feril í leiklist til að gefast ekki upp.
Hann sagði hvernig hann hafi ætl
að að verða eins og Ingvar E Sig
urðsson, fjórum árum eftir að hann
byrjaði nám í leiklist, en svo fjór
um árum síðar hafi hann verið rek
inn frá Borgarleikhúsinu. „Höfn
un er stór hluti af þessu starfi,“
sagði hann. Ólafur Darri sagði frá
því að hann hafi verið þakkl átur
fyrir að ferillinn hafi farið hægt
af stað og hann ekki orðið þekkt
ur strax. Krakkarnir höfðu mikinn
áhuga á að heyra hvernig það væri
að vera frægur og fá að hitta fræga
Hollywood leikara. Ólafur Darri
sagði þeim frá því að þegar hann
hitti Jennifer Aniston í fyrsta skipti
hafi hann ekki komið upp orði því
hann varð svo „star struck“. Eft
ir gott spjall þar sem Ólafur Darri
sagði skemmtilegar sögur gátu
krakkarnir fengið að taka myndir af
sér með honum áður en boðið var
upp á köku í tilefni afmælis Ólafs
Darra sem var einmitt þennan dag.
arg
Stelpur Filma í Borgarbyggð
Ólafur Darri svarar spurningum.
Hópmynd af nemendum og leiðbeinendum á námskeiðinu með Ólafi Darra Ólafssyni leikara.
Hanna Eiríksdóttir og Díana Björg Guðmundsdóttir tóku þátt í námskeiðinu.
Verið að klippa myndefnið.
Verið að skoða upptökur.
Krakkarnir fengu tækifæri til að taka myndir af sér með Ólafi
Darra. Hér er brugðið á leik.
Ólafur Darri sagði skemmtilegar sögur.
Krakkarnir unnu stuttmyndir saman í litlum hópum. Afmæliskaka fyrir Ólaf Darra.