Skessuhorn - 09.03.2022, Page 20
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 202220
Í byrjun síðustu viku samþykkti
fulltrúaráð Sjálfstæðisfélag
anna á Akranesi tillögu uppstill
ingarnefndar að framboðslista
flokksins fyrir bæjarstjórnarkosn
ingarnar 14. maí í vor. Sjálfstæð
isflokkurinn á nú fjóra bæjarfull
trúa og situr í minnihluta. Einung
is einn af sitjandi fulltrúum gef
ur kost á sér í baráttusæti en nýtt
fólk á vettvangi stjórnmálanna tek
ur við keflinu. Oddviti listans er Líf
Lárusdóttir, þrítug Skagakona, sem
einnig á sínar rætur í Borgarnesi.
Blaðamaður Skessuhorns fékk að
kíkja í heimsókn til hennar und
ir lok vikunnar á bjart og fallegt
heimili hennar við Reynigrund. Líf
er nú í fæðingarorlofi. Meðan rætt
var við hana svaf úti í vagni Agla, sjö
mánaða dóttir hennar og Ragnars
Þórs Gunnarssonar. Eldri dóttir
in Móey var á leikskólanum. Við
ræðum upprunann, skólagönguna
og starfsferilinn, en þó aðallega sýn
hennar á bæjarmálin.
Samfélagslega sinnuð
Líf er fædd árið 1991 og ólst fyrstu
ellefu árin upp í Borgarnesi, þar
sem hún á stóran frændgarð í föður
ætt. Foreldrar hennar skildu og
fluttist hún á Akranes ásamt móð
ur sinni og yngri bróður og byrjaði
þar í sjöunda bekk Grundaskóla. Á
Akranesi hefur Líf búið síðan, en
þó með hléum vegna náms. Var til
dæmis eitt ár í Bandaríkjunum og
annað ár í Barcelona á Spáni með
an hún var í mastersnámi. Náms
ferillinn eftir grunnskóla var
stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla
Vestur lands og viðskiptafræðing
ur varð hún frá Háskóla Íslands
árið 2014. Meistaranám í markaðs
fræði og samskiptum tók hún svo
í Barcelona. „Ég hef alla tíð verið
með rosalega ríka samfélagsvitund
og kannski má segja að fyrir mér
hafi legið að stefna á virka þátttöku
í pólitík,“ viðurkennir Líf. „Ég var
til dæmis formaður nemendafélags
ins strax í grunnskóla og fór á fullt í
stúdentapólitíkina með Vöku þegar
ég var við nám í HÍ. Svo hef ég ein
hvern veginn komið mér í stjórn
ir alls kyns félaga, eins og húsfélaga
svo ég nefni dæmi.“
Líf segir að þrátt fyrir að hafa
alist upp í Borgarnesi líti hún í dag
á sig sem Skagamann; „en hjartað
slær samt alltaf með Borgarnesi.
Þar átti ég mín fyrstu ár og þykir
vænt um bæinn og frændfólk mitt
þar. Hér á Akranesi eignaðist ég
strax stóran vinahóp og mamma er
innfædd Skagakona og á því fjöl
skyldu hér og sömuleiðis á mað
urinn minn stóra fjölskyldu hér.
Ef maður vill láta gott af sér leiða
í samfélaginu þar sem maður býr
er nauðsynlegt að þykja vænt um
bæinn sinn og bera hag hans fyrir
brjósti. Ég hef alltaf fylgst vel með
pólitík og við hjónin ræðum oft
stjórnmál,“ segir Líf.
Markaðsdrifin
hugsun ráði för
En hvernig augum lítur nýr odd
viti Sjálfstæðismanna bæjarmál
in á Akranesi. Hvað vill hún setja
á oddinn komist hún til valda og
áhrifa? „Ég lít þannig á að Akra
nes þurfi að leggja miklu meiri
áherslu á markaðsmál en gert hefur
verið. Skaginn er kominn í hörku
samkeppni við önnur bæjarfélög
sem búsetukostur, eins til dæm
is við Hveragerði og Selfoss. Við
þurfum því að fara í frekari sókn
og kynna nýjum fyrirtækjum kosti
þess að vera með rekstur á Akranesi
ásamt því að eiga samtal við starf
andi fyrirtæki á Akranesi um tæki
færi til vaxtar, því til frambúðar er
ekki hægt að búast við að allir vilji
sækja vinnu í fjarlægu sveitarfélagi
og verði að keyra í burtu að morgni
og koma heim í myrkri. Íbúum hef
ur vissulega fjölgað engu að síð
ur og hér er blússandi uppgangur,
en ég ætla að leggja mikla áherslu
á að við bætum okkur í markaðs
málunum. Sum sveitarfélög eru al
veg að standa sig hvað þetta snert
ir. Ég get nefnt Fjallabyggð sem
dæmi. Þar er starfandi sérstakur
flutningsfulltrúi. Starfsmaður sem
sér um að krækja í íbúa, hafa milli
göngu um útvegun starfa og hjálpar
nýbúum að máta sig inn í samfélag
ið. Hér á Akranesi sjáum við að það
eru ákveðin göt í aldurstrénu og við
eigum að leggja metnað okkar í að
fylla í þau þannig að aldurssamsetn
ing fólks hér endurspegli meðal
talið í landinu. Við eigum að beita
þekktum markaðstækjum til að ná
til fólks, en ekki síður að hefja sam
talið við núverandi íbúa um hvað
þeir vilja sjá gerast, hvaða þjón
ustu vantar, hvað megi bæta og svo
framvegis. Þessu kynntist ég þegar
ég bjó í Barcelona. Það er borg sem
gefur sig út fyrir að vera „borgin
fyrir fólkið.“ Þar eru íbúar spurð
ir hvernig þeir vilji sjá borgina þró
ast og dafna og borgaryfirvöld fara
eftir því. Til að nálgast þetta við
fangsefni þurfum að stilla upp mis
munandi sviðsmyndum, setja okk
ur í spor ólíkra hópa í samfélaginu.
Ef vísitölufjölskyldan hér er til að
mynda hjón með tvö börn og einn
hund, þá þarf þjónustan að taka
mið af því að fjölskyldan fái lang
anir sínar og væntingar uppfylltar.
Öllum á jú að líða vel og það á að
vera markmið þeirra sem vinna fyr
ir bæinn að stuðla að því með öllum
mögulegum hætti.“
Ná virku samtali við alla
Þá segir Líf að bæjaryfirvöld hverju
sinni þurfi að eiga gott samtal við
íbúa en sér virðist sem samskiptin
mættu vera meiri og virkari. „Hér
er til dæmis bæjarstjórnarfundum
streymt á netinu og þannig séð gætu
allir fylgst með því sem fram fer á
þeim. Þrátt fyrir það hefur kom
ið fram að frá tíu og upp í mesta
lagi 45 manns eru að hlusta á þessa
fundi, þó að íbúafjöldinn sé hátt í
átta þúsund. Mér finnst það harla
lítið og ber kannski vott um að það
þurfi að örva íbúa til að taka virkari
þátt í samfélaginu sem þeir búa í.
Ungt fólk virðist misjafnlega mik
ið fylgjast með því sem fram fer á
vettvangi bæjarfélagsins. Samt sem
áður er þetta aldurshópurinn sem
á töluverðra hagsmuna að gæta; á
litlu börnin í leik og grunnskólun
um, börnin í íþróttastarfinu og svo
framvegis. Við þurfum að breyta
þessu og ég brenn fyrir því. Sjálf er
ég á þessum aldri og kannski er það
einmitt djarft, en skynsamlegt, hjá
Sjálfstæðisflokknum að tefla fram
ungri manneskju til að standa fyr
ir breytingum sem gera þarf. Mér
finnst mikilvægt að bæjarstjórnin
endurspegli fólkið sem býr í bæn
um.“
Þurfum að gefa í
Líf segist óhrædd við að setja sér
markmið því ef þau eru krefjandi
en raunsæ, þá sé það besta leiðin
til árangurs. „Mig langar að setja
ögrandi markmið fyrir kosninga
baráttuna og árangur míns flokks.
Við viljum að sjálfsögðu komast
til valda, skipa meirihluta í bæjar
stjórn. Sjálfstæðisflokkurinn tefl
ir fram fjölbreyttum hópi fólks og
það er ánægjulegt með okkar lista
að þar er atvinnuþenkjandi hópur,
fólk sem ætlar sér stóra hluti. Við
erum til dæmis sammála um að við
þurfum að auka verulega við lóða
framboðið, ná hingað fleiri fyrir
tækjum og til þess að það gerist þarf
bæjarfélagið einfaldlega að gefa í.“
Fyrsta framboðið
Spurð segir Líf að aðdragandinn
að framboði hennar hafi ver
ið skammur, eða nokkrar vikur.
„Ég viðurkenni alveg að ég hafði
áhuga á að láta til mín taka. Laum
aði nafni mínu að á völdum stöð
um og lét þau boð út ganga að ég
væri tilbúin að axla ábyrgð og hefði
áhuga á bæjarmálum. Uppstill
ingarnefnd fór svo á stúfana og ég
held að henni hafi tekist vel upp
með að stilla fram sigurstrangleg
um lista. Við nýliðarnir höfum svo
Einar Brandsson í öðru sæti, þaul
reyndan og traustan bæjarfulltrúa.
En við höfum einnig ný andlit, fjöl
breyttan hóp þar sem konur eru
tíu og karlarnir átta. Ég lít einnig
á að það sé styrkur fyrir okkur að
vera fyrsti listinn sem býður fram,
ekki bara hér á Akranesi, heldur á
Vesturlandi öllu. Nú á næstu dög
um munum við einhenda okkur í að
semja stefnuskrá og koma boðskap
okkar á framfæri.“
Gera góðan bæ betri
Líf segir að hennar plön snúist um
að hverfa aftur úr fæðingarorlofi
til starfa í ágúst þegar yngri dóttir
in verður árs gömul, en hún starfar
sem markaðsstjóri Terra. Ragnar
Þór Gunnarsson eiginmaður henn
ar er framkvæmdastjóri Akraborgar,
sem er öflugt niðursuðufyrir tæki
með starfsstöðvar á Akranesi og í
Snæfellsbæ. „Ég lýsi mig einfald
lega reiðubúna í þetta verkefni sem
hefst með undirbúningi fyrir bæj
arstjórnarkosningar. Ég brenn fyr
ir að gera góðan bæ betri. Mitt
markmið er að spila sóknarleik,
koma inn með ferska sýn þar sem
áskoranir eru margar en tækifærin
sömuleiðis á hverju strái,“ segir Líf
Lárusdóttir að endingu. mm
Sveitarstjórnarkosningar ₂₀₂₂
Líf færist í pólitíkina
Þrítug að aldri mun Líf Lárusdóttir leiða lista Sjálfstæðisflokksins á Akranesi til kosninga í vor
Ragnar Þór og Líf með dæturnar Öglu og Móeyju. Ljósm. Gunnar Viðarsson.
Líf Lárusdóttir. Ljósm. mm.