Skessuhorn - 09.03.2022, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 2022 21
Stykkishólmsbær
Hafnargötu 3
340 Stykkishólmur
Sími: 433-8100
netfang: stykkisholmur@stykkisholmur.is
KT.: 620269-7009
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
AUGLÝSING
Samþykkt deiliskipulag fyrir miðbæ austan
Aðalgötu í Stykkishólmsbæ
Bæjarstjórn Stykkishólms samþykkti þann 9.
desember, 2021 tillögu að deiliskipulagi fyrir miðbæ
austan Aðalgötu í Stykkishólmi. Tillagan var auglýst
skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 19.
maí 2021 til og með 30. júní 2021. Athugasemdir
bárust og hefur þeim, sem gerðu athugasemdir, verið
send umsögn bæjarstjórnar.
Óverulegar breytingar á tillögunni gáfu ekki tilefni
til þess að hún yrði auglýst að nýju og hefur hún
nú verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar.
Deiliskipulagið má finna á heimasíðu Stykkishólms.
Hægt er að kæra samþykkt bæjarstjórnar til
úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála
og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu
auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsins í B-deild
Stjórnartíðinda.
Stykkishólmi, 4. mars 2022.
Kristín Þorleifsdóttir
Skipulagsfulltrúi Stykkishólmsbæjar
Skagabón ehf.
auglýsir eftirfarandi nýjung!
Við hjá Skagabón þökkum Skagamönnum og
nærsveitungum fyrir frábærar viðtökur!
Nú erum við hjá Skagabón ehf. að fara af stað með
áskriftarkerfi fyrir fyrirtæki og einstaklinga!
Áskriftarkerfi:
Pakki 1: 202.000kr Í áskrift 120.000kr
Pakki 2: 150.000kr Í áskrift 100.000kr
Pakki 3: 96.000kr Í áskrift 75.000kr
Pakki 4: 68.000kr Í áskrift 45.000kr
Pakki 5: 142.000k Í áskrift 100.000kr
Pakki 6: 122.000kr Í áskrift 80.000kr
Pakki 7: 118.00kr Í áskrift 67.000kr
Hægt er að sjá kerfin inn á SkagaBón facebook síðu, en von
bráðar opnar bókunarsíðan www.skagabon.is Sími 771-6866,
Instagram: Skagabon.
Stöðvarstjóra N1 í Ólafsvík
Dagur í lífi...
Nafn: Einar Rúnar Ísfjörð
Fjölskylduhagir/búseta: Bý í
Ólafsvík með konu minni Guðnýju
Maríu Bragadóttur og uppkomn
um syni mínum Ágústi Ísfjörð. Ég
á einnig dóttur, Elsu Björk Einars
dóttir, en hún býr í Reykjavík ásamt
manni sínum Daníel Inga og syni,
Aroni Gauta Daníelssyni.
Starfsheiti/fyrirtæki: Stöðvar
stjóri hjá N1 Ólafsvík
Áhugamál: Allskonar græjur og
tæki, er mikill græjukarl (mynda
vélar, drónar o.fl.) og síðan húsbíll
inn okkar Guðnýjar minnar sem
við köllum Tene.
Dagurinn: Fimmtudagurinn 3.
mars 2022
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú gerð-
ir? Ég vakna klukkan 6.40 og á það
til að setja klukkuna í símanum á
snooze (hver kannast ekki við það)?
Ég fer á fætur kl. 7.15 og byrja á
því að skella mér í sturtu, þá vakn
ar maður vel.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Ég borða ekki þannig morgunmat
og fæ mér yfirleitt ekkert að borða
fyrr en um klukkan 10 á morgn
ana nema þá að ég sé á Tenerife, þá
klikka ég ekki á morgunmatnum.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Ég fer af stað í vinnuna
um 7.45 og fer á bílnum (ætti samt
að labba ... hóst).
Fyrstu verk í vinnunni? Opna
stöðina, moka frá hurðinni ef það
hefur snjóað eitthvað, tek inn blöð
in og kem í standinn. Síðan er far
ið í að gera bakkelsið klárt í ofninn
fyrir bakstur dagsins.
Hvað varstu að gera klukkan 10?
Spá í hvort ég ætti nú ekki að fá
mér einhvern morgunmat.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Þá er
ég nú í flestum tilfellum að afgreiða
svanga viðskiptavini N1 Ólafsvík
ur með pylsu eða eitthvað bakkelsi.
Hvað varstu að gera klukkan 14?
Taka saman pöntun fyrir viðskipta
vini sem við síðan keyrðum út til
þeirra.
Hvenær hætt og það síðasta sem
þú gerðir í vinnunni? Í flestum
tilvikum hætti ég um klukkan 16 og
þá er ég búinn að fara út með allt
rusl og pappa.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Fer
heim og slappa aðeins af, kíki að
eins í tölvuna og spila kannski einn
tölvuleik. Hef gaman af MS Flight
Simulator og tek stundum flug yfir
Snæfellsnesið, það er bara sturl
un að fljúa í þessum hermi og þá í
sýndarveruleika VR.
Hvað var í kvöldmat og hver eld-
aði? Það var nýtt sem ég fann á
netinu, kjúklingur og eggjanúðl
ur með eggjum, sojasósu og sesam
olíu, klikkar ekki. Og já, ég eldaði
sjálfur.
Hvernig var kvöldið? Kvöldið var
frekar rólegt, var algjör sófakartafla
og horfði á Sjónvarp Símans (sem
er hættulegt þegar heilu þátta
raðirnar eru komnar inn). Maður
á stundum erfitt með að hætta að
glápa.
Hvenær fórstu að sofa? Ég fór að
sofa seint (var að glápa á sjónvarp
ið) fór ekki að sofa fyrr en klukkan
að ganga eitt.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að hátta?
Fékk mér vatnsglas og var að spá í
að fá mér appelsínukex en hætti við
það.
Hvað stendur upp úr eft-
ir daginn? Tja, bara góður dag
ur að vanda hérna í Ólafsvík, gleði
í hjarta með að vonandi sé þessu
leiðinda veðri að fara að slota og
koma sumar.
Eitthvað að lokum? Nei ekkert
sérstakt , það er gaman að fá að taka
þátt í svona. Dagur í lífi fékk mig
til að hugsa einmitt um hvað er það
sem maður er að gera heilu dagana
og hvað gerir maður þegar heim er
komið. He, he, það er kannski of
oft sem maður er góður við sjálf
an sig og gerist sófakartafla frekar
en að reyna að gera eitthvað fyrir
til dæmis heilsuna og fara að ganga
eða eitthvað. Þegar ég fer í þann
gírinn: Nú skal fara í göngutúr eða
taka til í kompunni... Þá sest ég oft
í sófann og þessi hugsun líður hjá!
Takk fyrir mig.
Á dögunum hélt drengjahluti
Club71 aðalfund sinn. Club71 er
félagsskapur úr árgangi fólks fædd
um 1971 á Akranesi og er mark
miðið að sameina það að gleðjast
og láta gott af sér leiða í leiðinni.
Á aðalfundinn að þessu sinni mætti
fjölda góðra gesta en boðið var upp
á kótelettur í raspi og tilheyrandi
meðlæti. Heiðursgestir voru tón
listarparið Regína Ósk og Svenni
Þór sem fluttu nokkur góð lög
en tóku einnig nokkur lög með
fundarmönnum við mikinn fögn
uð. Á fundinn mætti einnig Lena
Daníelsdóttir en klúbburinn af
henti henni fyrsta framlagið í söfn
un sem hún er að hleypa af stokk
unum fyrir bróður sinn, Pétur
Daníelsson, sem glímir við erfið
veikindi.
Pétur er sonur Rakelar Rutar
Þórisdóttur sem er einmitt úr ár
gangi 71 á Akranesi. Hann fæddist
með alvarlegan hjartagalla og hefur
þurft að glíma við ýmislegt í lífinu.
Í september árið 2020 lenti Pétur,
þá aðeins 27 ára gamall, í því að fá
mjög alvarlegt heilablóðfall. Pétur
lamaðist á hægri hlið og var í hjóla
stól fyrstu vikurnar og átti mjög
erfitt með að tala og tjá sig. Þarna
þurfti hann að læra allt upp á nýtt.
Er hann nú búinn að vera í langri
endurhæfingu sem hefur sem bet
ur fer gengið ágætlega en hann
var mjög lengi að ná að geta geng
ið aftur og hann haltrar enn og er
með hamlaða hreyfigetu. Pétur er
tveggja barna faðir.
„Það var því heiður fyrir klúbb
inn að leggja fram fyrsta fram
lagið í söfnunina. Þeir sem vilja
rétta fram hönd til hjálpar Pétri
þá er það hægt að gera með styrk
í gegnum eftirfarandi reikning: Kt:
1506943029. Reikningsnúmer:
053714400623,“ segir í tilkynn
ingu frá Club71.
Hópur sem kemur
víða við
Eins og lesendur Skessuhorns
þekkja er árgangur 71 á Akranesi
óvenju samheldinn og hefur sem
hópur staðið fyrir ýmsum góð
gerðarmálum og menningarvið
burðum á Akranesi síðustu 15 árin
eða svo. Ber þar hæst Þorrablót
Skagamanna sem hópurinn kom
í gang og sá um í tíu ár samfellt,
en þessi viðburður hefur gefið af
sér nokkrar miljónir árlega sem
runnið hafa óskiptar til góðgerðar
og íþróttamála á Akranesi. Einnig
Að gleðjast og láta gott af sér leiða er markmið Club71
mætti nefna Brekkusöng bæjarhá
tíðarinnar Írskra daga, en þennan
viðburð sækja þúsundir manna á
ári hverju í boði hópsins og sam
starfsaðila. Ýmsir einstakir við
burðir hafa verið haldnir á vegum
félagsskaparins í gegnum tíðina en
hópurinn fékk Menningarverðlaun
Akraneskaupstaðar árið 2016.
Síðasta vor stóð félagsskapurinn
fyrir viðburðinum „Stokkið fyr
ir Svenna.“ Tilgangurinn var að
safna áheitum til kaupa á sér stöku
rafhjóli fyrir einn úr árgangn
um, Sveinbjörn Reyr, sem lenti í
alvarlegu slysi. Viðburðurinn fór
langt fram úr væntingum og 177
stökkvarar stukku í sjóinn af smá
bátabryggjusvæðinu á Akranesi.
Rúmlega átta milljónir króna söfn
uðust en markmiðið var 23 millj
ónir. mm