Skessuhorn - 09.03.2022, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 202224
Helgina 18.20. mars næstkomandi
ætlar listakonan Jaclyn Poucel að
halda sýningu á málverkum sínum
á Akranesi. Jaclyn er 28 ára lista
kona og fótboltakona frá Lancast
er í Pennsylvaniu í Bandaríkjunum.
„Það er ekki langt frá Philadelphia,“
útskýrir hún. Jaclyn flutti fyrst til
Íslands árið 2016 til að spila fót
bolta með ÍA í Pepsi deildinni.
Hún kynntist þá Skagamannin
um Benedikt Árnasyni og giftu þau
sig árið 2019. „Ég byrjaði að spila
fótbolta þegar ég var fjögurra ára,
mamma mín var fótboltakona og
hún var fyrirmyndin mín og þjálf
aði mig þegar ég var ung stelpa,“
segir Jaclyn. Hún spilaði í 1. deild
í háskóladeild í Bandaríkjunum,
með liði University of Pittsburgh
áður en hún fór í atvinnumennsku í
Finnlandi, Íslandi og svo Skotlandi,
þar sem hún spilaði með Celtic FC
áður en hún flutti aftur til Íslands
árið 2020. „Ég giftist og flutti aftur
til Íslands og byrjaði að spila aftur
með ÍA þar til ég varð ófrísk í fyrra,“
segir hún og bætir við að hún stefni
á að spila aftur með ÍA næsta sum
ar. „Ég mun alltaf spila með ÍA ef ég
get. Það var fyrsta liðið mitt hér og
hér á ég heima. Ég er mjög stolt af
ÍA og Akranesi,“ segir Jaclyn.
Aðspurð segir Jaclyn töluverð
an mun vera á Íslandi og Pennsyl
vaniu í Bandaríkjunum. „Þar sem
ég ólst upp voru margir sveitabæir
og tré og það varð rosalega heitt á
sumrin, en við fáum samt alls kon
ar veður þar líka. En sjórinn þar er
alveg nokkrar klukkustundir í burtu
frá þeim stað sem ég er frá svo ég
hafði ekki sama útsýni þar og hér
á Akranesi,“ segir hún og bætir við
að kúltúrinn sé líka nokkuð frá
brugðinn. „Akranes er lítill staður
og náið samfélag af fólki, sem hefur
svo marga góða kosti. En það er svo
mikið stærra samfélag þaðan sem
ég er frá, í útskriftarárgangi 1993 í
skólanum heima voru rúmlega 450
nemendur,“ segir hún.
Abstrakt listakona
Jaclyn hefur alltaf verið mjög list
ræn manneskja og hefur verið að
mála síðan hún var barn. „Sem barn
var ég alltaf að mála og teikna og
reyna að skapa eitthvað fallegt,“
segir hún. Jaclyn lærði myndlist á
heiðursstigi í skóla sem barn. „Ég
málaði mjög lengi en hætti svo í
nokkur ár á meðan ég var að byggja
upp ferilinn í fótbolta. Þegar ég
flutti svo til Íslands og Covid skall á
byrjaði ég að mála aftur,“ segir hún.
Jaclyn er abstrakt listakona, segist
láta liti og mismunandi áferð segja
sögu eða koma tilfinningum á fram
færi. „Ég elska að geta séð og fundið
hluti á ákveðinn hátt og málað það
og fólk getur svo horft á verkið og
séð og fundið eitthvað allt annað.
Ég vil að fólk finni það sem ég mála
en ofgreini það ekki alveg í smáat
riði. Ég elska að það er ekki hægt
að segja hvað verkin mín eru eins
og: „Þetta er málverk af báti“ og þú
sérð bara bát. Ég er hrifin af því að í
abstrakt málverkum eru engar regl
ur,“ útskýrir Jaclyn og bætir við að
hún taki við sérpöntunum óski fólk
eftir því. „Ég geri margar sérpant
anir og ég nýt þess að skapa eitthvað
sérstakt fyrir ákveðin rými á heimil
um fólks eða skrifstofum.
Jaclyn mun vera með sýn
ingu á verkum sínum í Hafnarf
irði um næstu helgi, 11.13. mars
og svo viku seinna verður sýn
ing á Akranesi yfir Vetrardaga,
18.20. mars. „Ég vona svo að ég
geti opnað mitt eigið gallerí einn
daginn hér á Akranesi. En eins og
er er ég með lítið stúdíó þar sem
ég get boðið fólki að koma til að
sjá verkin mín en ég get líka kom
ið heim til fólks með verk sem það
vill kannski sjá hvernig passar inn
í rými.“ segir Jaclyn. Hægt er að
fylgjast með henni á bæði face
book og Instagram undir nafninu
jaclynarnasonart.
arg/ Ljósm. aðsendar
Nú á dögunum kom út nýtt efni
helgað íslenskum þjóðlögum. Það
er Valgerður Jónsdóttir, núverandi
bæjarlistamaður Akraness, sem á
veg og vanda að útgáfunni en verk
efnið vann hún ásamt manni sín
um, Þórði Sævarssyni og dóttur
þeirra Sylvíu. Þau þrjú hafa starfað
saman undir nafninu Travel Tunes
Iceland frá árinu 2016 og tekið á
móti fjölda ferðafólks frá ýmsum
löndum og kynnt þeim íslenskan
þjóðlagaarf.
Útgáfan felst í bók og geisladiski
en í bókinni eru ljóðin við lögin á
diskinum, skýringar á ensku og ljós
myndir frá Íslandi. Síðast en ekki
síst eru í bókinni svokallaðir QR
kóðar, þannig að lesandinn getur
auðveldlega fundið lögin á netinu
með því að skanna kóðann gegnum
þar til gert app í snjalltækinu sínu.
Þannig er hægt að glugga í bókina
og hlusta á lögin hvar sem er en
geisladiskurinn fylgir með svo fólk
eigi tónlistina líka á föstu formi.
Tónlistin var tekin upp í Stúkuhús
inu á Byggðasafninu á Akranesi, en
það hús hefur verið helsta bækistöð
Travel Tunes Iceland verkefni sins,
þó fjölskyldan hafi tekið á móti
gestum á fleiri stöðum, svo sem á
heimili þeirra og á Smiðjuloftinu,
afþreyingarsetri sem þau starfrækja
á Akranesi.
QR Tónlistarbókin, eins og Val
gerður kýs að kalla útgáfuform
ið, verður til sölu fyrir gesti Travel
Tunes Iceland en einnig er í skoðun
að hún verði seld á stöðum þar
sem ferðamenn venja komur sín
ar. Hægt er að panta eintak gegn
um traveltunesiceland@gmail.com
Valgerður hefur haft nóg fyr
ir stafni síðan hún hlaut titilinn
Bæjar listamaður Akraness 2021. Í
desember 2021 gaf hún út nótna
bókina Tónar á ferð Söngbók
með eigin tónlist í útsetningum
fyrir barna og ungmennakóra.
Valgerður vinnur einnig að útgáfu
á fjögurra laga plötu, Ep útgáfu,
með eigin lögum, sem hún stefnir
á að komi út í apríl. Laugardaginn
5. mars kom hún fram sem gestur
á fjölskyldutónleikum með Svavari
Knúti í Akraneskirkju. Það er tón
listarhátíðin HeimaSkagi sem stóð
fyrir tónleikunum.
mm
Travel Tunes Iceland fjölskyldan; Sylvía, Þórður og Valgerður.
Íslensk þjóðlög í nýrri QR-tónlistarbók frá Valgerði
Útgáfan felst í bók og geisladiski.
Jaclyn í leik með ÍA.
Jaclyn setur upp sýningu á Vetrardögum á Akranesi
Jaclyn listakona og fótboltakona frá
Pennsylvaniu í Bandaríkjunum er nú
búsett á Akranesi þar sem hún spilar
með ÍA og málar fallegar myndir.
Jaclyn er abstrakt listakona sem lætur liti og áferð segja
söguna.