Skessuhorn - 09.03.2022, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 202230
Hvaða lag vinnur Söngva-
keppnina um næstu helgi?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Valgerður Valsdóttir
„Tökum af stað Reykjavíkur
dætur.“
Lára Dóra Valdimarsdóttir
„Þaðan af Katla.“
Snorri Kristleifsson
„Með hækkandi sól Sigga, Beta
og Elín.“
Ásdís Vala Óskarsdóttir
„Með hækkandi sól.“
Rakel Rósa Þorsteinsdóttir
„Með hækkandi sól.“
Skagamenn léku í hádeginu á
laugardaginn í Akraneshöllinni
gegn Lengjudeildarliði Fjöln
is í Lengjubikarnum og unnu 31.
Steinar Þorsteinsson og Gísli Lax
dal Unnarsson komu Skagamönn
um í 20 eftir rúman 20 mínútna
leik áður en Baldvin Þór Bernd
sen minnkaði muninn fyrir gestina
skömmu fyrir leikhlé. Gísli Laxdal
gulltryggði sigur ÍA á 65. mínútu
og eru þeir efstir ásamt Breiðabliki
í riðli 2 með níu stig en hafa leikið
einum leik meira.
Víkingur Ólafsvík lék á laugar
daginn gegn liði KH í Akraneshöll
inni og varð að sætta sig við tap,
13. Jón Örn Ingólfsson og Fannar
Freyr Bergmann skoruðu sitt hvort
markið í fyrri hálfleik fyrir KH en í
millitíðinni var Ó lsarinn Ísak Máni
Guðjónsson rekinn út af . Það var
síðan Alexander Lúðvígsson sem
kom gestunum í þriggja marka for
ystu þegar ellefu mínútur voru eftir
af leiknum en Andri Þór Sólbergs
son skoraði sárabótarmark fyrir
Víking á lokamínútu leiksins.
Kári lék gegn ÍR í Breiðholtinu
á laugardaginn í sama riðli og tap
aði 41. Reynir Haraldsson kom
heimamönnum yfir á 28. mínútu
og eftir rúmlega klukkustundar leik
voru þeir komnir í 40 með mörk
um frá Helga Snæ Agnarssyni,
Pétri Hrafni Friðrikssyni og Jorgen
Pettersen. Steindór Mar Gunnars
son skoraði fyrir Kára níu mínútum
fyrir leikslok en það dugði skammt.
Kvennalið ÍA lék sinn fyrsta leik
í Lengjubikarnum á föstudags
kvöldið í Akraneshöllinni á móti
Hamri frá Hveragerði og unnu ör
uggan sigur, 30. Erna Björt Elías
dóttir kom þeim yfir með marki á
12. mínútu og bætti við öðru marki
úr víti á 59. mínútu. Erla Karitas
Jóhannesdóttir skoraði þriðja og
síðasta mark ÍA á lokamínútunni og
Skagastúlkur byrja vel í Lengjubik
arnum þetta árið.
Reynir Hellissandi byrjaði ekki
vel í Lengjubikarnum í ár þegar
þeir mættu Ísbirninum í Kórnum á
laugardaginn. Maciej Maliszewski
og Goran Vunduk komu heima
mönnum í 20, Benedikt Björn
Ríkharðsson minnkaði muninn fyr
ir Reyni í 21 áður en Orats Garcia
bætti við þriðja markinu rétt fyrir
hálfleik. Alvaro Leon og Vladimir
Panic skoruðu síðan í seinni hálf
leik fyrir Ísbjörninn og stórsigur
þeirra í höfn, 51.
Skallagrímur var á sömu nótum
og Reynir en þeir léku á sunnu
daginn einnig sinn fyrsta leik í
Lengjubikarnum gegn Ham
arsmönnum úr Hveragerði. Atli
Þór Jónasson kom Hamri yfir á 15.
mínútu og það voru síðan þeir Sig
urður Ísak Ævarsson og Atli Þór
Jónasson sem gulltryggðu öruggan
sigur gestanna í seinni hálfleik,
lokastaðan 03 fyrir Hamarsmönn
um. vaks
Laugardaginn 5. mars var haldið
fótboltamót 6 – 9 ára barna að
Laugum í Sælingsdal. Var boð
ið til keppninnar af nýja íþróttafé
laginu Undra, en börn frá Geisla á
Hólmavík mættu félaginu. Óhætt
er að segja að stemningin hafi verið
góð, þétt setið í stúkunni og börn
in á vellinum fengu mikla hvatn
ingu. Spilað var í 2x5 mínútur á
hvern hóp og fjórir í hverju liði, en
þáttakendur voru átta af Strönd
um og 15 úr Dölunum. Keppend
ur voru til fyrirmyndar í alla staði
og fengu allir medalíur að keppni
lokinni. Er ætlunin að gera mótið
að árlegum viðburði félagsins.
Segja má að þessi fjörugi
laugardagsmorgun sé táknrænn
fyrir endalok heimsfaraldurs í
Dölunum. Fram kom í samtali
fréttaritara við foreldra á staðn
um að fram á vorið sé þétt dag
skrá fjölbreyttra viðburða fyrir
börn á öllum aldri, námsvökur,
böll, árshátíðir og ýmiskonar mót
og fundir, sem gæti orðið flókið
að raða saman fyrir barnmargar
fjölskyldur. En gleðin yfir því að
fá loksins að vera saman, hitt
ast út fyrir nánasta vinahring og
taka þátt í allskonar samkomum
er þess virði.
bj
Íþróttamaður vikunnar
Íþróttamaður vikunnar er nýlegur
liður hjá Skessuhorni. Þar leggjum
við fyrir tíu spurningar til íþrótta
manna úr alls konar íþróttum á öll
um aldri á Vesturlandi. Íþrótta
maður vikunnar að þessu sinni er
sundmaðurinn Enrique Snær frá
Akranesi.
Nafn: Enrique Snær Llorens
Fjölskylduhagir? Móðir mín heit
ir Silvía Llorens og er í sambúð
með Dean Martin. Faðir minn
heitir Sigurður Kári, maki hans
heitir Bjarney og ég á tvö systkini,
þau heita Natalía og Anael Teitur.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Synda, fjallganga, skíða og hitta
vini mína.
Hvernig er venjulegur dagur hjá
þér um þessar mundir? Ég vakna
um klukkan sjö og fer síðan á æf
ingu í svona einn og hálfan tíma.
Síðan fer ég heim og borða, fer síð
an í skólann og ég er þar oftast til
klukkan fjögur. Eftir skóla fer ég
heim, borða og læri til svona fimm
og síðan er aftur æfing en hún er í
tvo tíma. Eftir það fer ég heim að
borða og sofa.
Hverjir eru þínir helstu kost-
ir og gallar? Í sundi eru gallarn
ir mínir stungur og snúningar en
kostirnir eru að ég er með gott þol
og er fljótur.
Hversu oft æfir þú í viku? Ég æfi
ellefu sinnum í viku.
Hver er þín fyrirmynd í íþrótt-
um? Anton McKee.
Af hverju valdir þú sund? Út af
því að mér fannst þetta skemtileg
asta íþróttin.
Hver er fyndnastur af þeim sem
þú þekkir? Það er hún Karen.
Hvað er skemmtilegast og
leiðinlegast við þína íþrótt?
Skemmtilegast er að æfa hana og
það leiðinlegasta er að bíða eftir
að þú ferð að keppa þegar þú ert
á mótum.
Er með gott þol
Úr leik ÍA og Hamars í Lengjubikar kvenna á föstudagskvöldið. Ljósm. sas.
Misjafnt gengi Vesturlandsliðanna í
Lengjubikarnum í knattspyrnu um helgina
Pollamót Undra markaði upphaf
endaloka heimsfaraldurs