Skessuhorn


Skessuhorn - 29.06.2022, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 29.06.2022, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 202212 Brákarhátíð fór fram í Borgarnesi um liðna helgi, þó með aðeins breyttu sniði frá síðustu árum. Í boði voru fjöldi viðburða á veg- um fyrirtækja og félaga á svæðinu. Meðal annars var á dagskrá dögurð- ur í boði Kvenfélags Borgar ness, Bubblu-fótbolti á vegum meistara- flokks Skallagríms, markaðstorg var í Englendingavík, götugrill, sundlaugardiskó og margt fleira. Ball var svo haldið í Hjálmakletti á laugardagskvöldinu. sþ Sveitahátíðin Hvalfjarðardagar fór fram dagana 24.–26. júní. Dag- skránni var dreift víðsvegar um sveitarfélagið. Þannig var t.d. hægt að heimsækja Hernámssetrið að Hlöðum, fá sér dögurð á Hótel Glym, kíkja í sund á Hlöðum, skoða listsýningar hjá Skraddaralúsum í Miðgarði eða skoða sýningu Jós- efinu Morell í Stjórnsýsluhús- inu, fylgjast með víkingum eða fara í plöntugreiningu í Álfholts- skógi nú eða bara þiggja ketilkaffi, fara í gönguferðir, hlusta á tónleika og fara á skemmtun í Melahverfi. Sóknarnefnd Innri-Hólmskirkju sá um markaðstjald á Hagamel og sumartónleikar voru í Saurbæ. Hátíðin þótti takast mjög vel og ágætlega var mætt á viðburði. Ljósmyndakeppni er í gangi þar sem þemað er mannlíf í sveitinni. Þá var einnig keppt í skreytingum þar sem sjá mátti ýmsar fíkúrur við heimreiðar og hús í sveitarfélaginu. Meðfylgjandi myndir tók Kolbrún Invarsdóttir ljósmyndari á ferð um hátíðina, en auk þess eru nokkrar myndir af FB síðu Hvalfjarðarsveit- ar. mm Brákarhátíð fór fram um helgina Dögurður úti í blíðunni hjá Kvenfélagi Borgarness. Kvenfélagskonur báru fram veitingar. Nytjamarkaður Körfuknattleiksdeildar Skallagríms. Markaðstorg í Englendingavík. Kaffisala unglingadeildarinnar Glanna var í nýja björgunarsveitarhúsinu Brákar að Fitjum 2. Boðið var upp á kassaklifur í bílasalnum ásamt ýmsu fleiru, eins og að fara á rúntinn í björg- unarsveitabílunum. Ljósm. Brák. Hvalfjarðardagar gengu prýðilega um helgina

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.