Skessuhorn - 29.06.2022, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2022 15
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is
Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is
Bergsveinn
S. 863 5868
Sigurður J. Helgi Már
S. 897 7086
Magnús
S. 861 0511
Ólafur
S. 824 6703
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is - Sími 534 1020
TIL LEIGU
Smiðjuvellir 28, Akranesi
Stærðir: frá um 150-600 m²
Gerð: Verslunar-, þjónustu- og
skrifstofuhúsnæði
Verslunar-, þjónustu- og skrifstofuhúsnæði á góðum stað í
alfaraleið við hlið Þjóðbrautar.
147,3 m² glæsilegt og nýtt verslunar-/ þjónustuhúsnæði.
Húsnæðið skiptist upp í opið verslunar-/ þjónusturými með góðum
verslunargluggum á tvo vegu.
151 m² glæsilegt og nýtt verslunar-/ þjónustuhúsnæði.
Húsnæðið skiptist upp í opið verslunar-/ þjónusturými með góðum
verslunargluggum á tvo vegu.
157,4 m² glæsilegt og nýtt skrifstofuhúsnæði á 2. hæð.
Húsnæðið skiptist upp í opið og bjart skrifstofurými með uppteknu
lofti, vandaðri hljóðvist, gluggum á tvo vegu með útgengi á svalir.
Við hlið þessa rýmis er 153,6 m² rými sem hægt er að opna á milli
og verður þá hægt að ná samtals 311 m² rými á einum gólffleti.
Væntanlegir leigjendur geta komið að hönnun og innréttingu
rýmanna. Næg bílastæði eru á lóð hússins.
Nánari upplýsingar um eignina veitir
Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali og
leigumiðlari í s. 897 7086, hmk@jofur.is
Dagur í lífi...
Nafn: Gísli Einarsson
Fjölskylduhagir/búseta: Giftur
Guðrúnu Huldu Pálmadóttir. Búum í
Borgarnesi og eigum þrjú börn (sem
öll eru uppkomin) og 4 barnabörn.
Starfsheiti/fyrirtæki: RÚV ohf. Í frí-
um starfa ég stundum sem fararstjóri
fyrir Bændaferðir og ég var akkúrat
með fararstjórahattinn þennan dag.
(Ég týndi hattinum reyndar í ferðinni
en það var ekki fyrr en daginn eftir.)
Áhugamál: Fjölskyldan, gönguferðir,
ferðalög almennt og fótbolti.
Dagurinn: Laugardagur 25. júní
2022.
Klukkan hvað vaknaðirðu og hvað
var það fyrsta sem þú gerðir?
Ég vaknaði klukkan hálf sjö á Hót-
el Scandic Victoria í Lillehammer í
Noregi á áttunda degi ferðarinnar
„Í tröllahöndum í Noregi“ a vegum
Bændaferða. Ég byrjaði á að renna
yfir minnispunkta mína fyrir daginn
en í þessum ferðum reyni ég að koma
með einhverskonar fróðleik tengt
þeim svæðum sem farið er um. Gjarn-
an líka einhverjar sögur, sannar og
minna sannar. Það er nefnilega þannig
að það er ekki endilega það gáfuleg-
asta sem fellur best í kramið! Fljótlega
fór ég svo í morgunmat á hótelinu.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Ég borðaði brauð með kjötáleggi og
osti, einnig heitreiktan makríl, lifrar-
kæfu og reyktan lax. Drakk með þessu
eplasafa og svart kaffi og sykurlaust.
(Sem er nýr siður hjá mér. Lengst af
hef ég nýtt mér ótæpilega landbúnað-
arafurðirnar sykur og mjólk).
Hvenær fórstu til vinnu og hvern-
ig? Það má segja að ég hafi farið gang-
andi til vinnu, þ.e.a.s. út í rútu, ehh,
afsakið; langferðabifreiðina.
Fyrstu verk í vinnunni? Að segja
frá ferðalaginu framundan, þ.e. frá
Lillehammer til Óslóar. Eitthvað
blaðraði ég líka annað þarna í upp-
hafi. Meðal annars fór ég yfir fréttir úr
norskum fjölmiðlum af skógareldum í
Guðbrandsdal, sem við höfðum orðið
vitni að á leið okkar um dalinn kvöldið
áður. Fljótlega sáum við svo fréttir af
hinum hroðalegu voðaverkum í mið-
borg Óslóar um nóttina. Eðlilega
veltu því margir fyrir sér hvaða áhrif
þessi atburður hefði á okkar ferðir þar
sem við vorum einmitt á leið í mið-
borg Óslóar. En að sjálfsögðu var það
ekki mikið áhyggjuefni í stóra sam-
henginu.
Hvað varstu að gera klukkan 10?
Þá höfum við verið að virða fyrir okk-
ur „Víkingaskipið“ eða öllu heldur
Ólympíuskautahöllina í Hamri sem
byggð var fyrir vetrarólympíuleikana
í Lillehammer 1994. Þá hef ég líka
verið farinn að svitna hressilega því
hitinn hefur verið kominn í 27 gráð-
ur eða um það bil. (Ég held að ég hafi
drukkið ca. 3 lítra af vatni og ístei
þennan dag).
Hvað gerðirðu í hádeginu? Þá vor-
um við að koma að Holmenkollen,
einum vinsælasta ferðamannastað
Noregs. Þar fóru margir upp á topp
á skíðastökkpallinum fræga. Einhverj-
ir fóru meira að segja niður í „zipline“.
(Ég þekki því miður ekki neitt íslenskt
orð sem nær yfir þessa fáránlegu
athöfn)
Hvað varstu að gera klukkan 14?
Þá vorum við akkúrat að koma heim
á Hótel Bondeheimen í miðborg
Óslóar, hótel sem er í eigu samtaka
ungra bænda í Noregi og alveg ljóm-
andi fínt. Það var hinsvegar ekki auð-
velt að komast þar inn því skotárásin
kvöldið áður hafði átt sér stað aðeins
90 metra frá hótelinu okkar, í göt-
unni beint á móti. Eðlilega var því þar
gríðarlegur fjöldi fólks að votta hin-
um látnu virðingu sína og lýsa andúð
og sorg yfir þessum voðaverkum. Við
komumst því ekki nálægt hótelinu á
rútunni og þurftum að olnboga okkur
í gegnum mannþröngina með ferða-
töskurnar. Það skal hinsvegar tekið
fram að tillitsemi var til fyrirmyndar
á báða bóga. Frá hótelinu urðum við
síðan vitni að því þegar Jónas Gahr
Störe og Hákon prins komu á staðinn
til að votta virðingu sína.
Hvenær hætt og það síðasta sem þú
gerðir í vinnunni? Það var að undir-
búa skoðunarferð, á fæti, um miðborg
Óslóar en hún var farin morguninn
eftir.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Ég rölti
um miðborgina og sá hvar hinseg-
in fólk og fjöldi annarra hafði safn-
ast saman, tók utan um hvert annað
og hughreysta með gleðina að vopni
þrátt fyrir allt.
Hvað var í kvöldmat og hver eld-
aði? Það var steiktur steinbítur í
Hollandies sósu með nýjum kartöfl-
um. Eldað af einhverjum öndveg-
iskokki sem ég kann ekki að nefna. Í
eftirrétt var síðan gulrótarkaka sem
ég eftirlét öðrum að gera skil. Enda er
það mín bjargföst skoðun að ekki eigi
að blanda sama bakkelsi og grænmeti!
Hvorutveggja er gott í sitthvoru lagi
en þetta tvennt á ekki samleið.
Hvernig var kvöldið? Kvöldið var
náttúrulega skrítið þar sem það var
svolítið undarleg tilfinning að vera á
þessum stað og manni fannst maður
vera svo nálægt grimmdinni í mann-
inum en líka ástinni um leið.
Hvenær fórstu að sofa? Svona um
tíu leitið. Sofnaði fljótt eftir hita-
svækju dagsins. Vaknaði reyndar
nokkrum sinnum við gleðilæti af göt-
unni.
Hvað var það síðasta sem þú gerð-
ir áður en þú fórst að hátta? Senda
skilaboð til Guðrúnar minnar.
Hvað stendur upp úr eftir daginn?
Að sjálfsögðu er það nálægðin við
þennan hörmungaratburð í miðborg
Óslóar og reiði og sorg yfir þeirri
grimmd og fávisku sem þar býr að
baki en ekki síður gleði yfir þeirri ást
og manngæsku sem betur fer er öfl-
ugri þegar upp er staðið.
Eitthvað að lokum? Það eru for-
réttindi að eiga fjölbreytta daga þó
vissulega séu þeir fyrir vikið misgóðir.
Fararstjóra hjá Bændaferðum í Noregi