Skessuhorn


Skessuhorn - 29.06.2022, Side 18

Skessuhorn - 29.06.2022, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 202218 Margt áhugafólk um íþróttir og tónlist þekkir til Skagamannsins góðkunna Gunnlaugs Jónssonar. Hann var lengi í fremstu röð sem knattspyrnumaður, spilaði með ÍA, KR og sem spilandi þjálfari hjá Sel- fyssingum. En á þessum árum og nú í seinni tíð hefur hann í aukn- um mæli snúið sér að fjölmiðlun í útvarpi og sjónvarpi og sérstaklega við gerð þáttaraða um tónlist og íþróttir. Tvær þáttaraðir hans hafa unnið til Eddu verðlauna. Í dag starfar hann sem íþrótta- og verk- efnastjóri hjá Gróttu. Skessuhorn heyrði hljóðið í Gunnlaugi til þess að forvitnast um núverandi starf hans og þá ljósvakaþætti sem hann hefur unnið að og einnig hvort eitt- hvað væri á prjónunum hjá honum þessa dagana í þáttagerð. Íþrótta- og verk- efnastjóri hjá Gróttu „Varðandi starfið hjá Gróttu þá þróaðist það þannig að í byrj- un árs 2019 var ég þjálfari Þrótt- ar í Reykjavík. Á sama tíma var ég að byrja á sjónvarpsverkefninu „Áskorun,“ sem var viðamikið verk- efni þar sem rætt var við fólk sem er eða var í íþróttum. Þegar það verk- efni fór á fullt skrið þá gerði ég mér það ljóst að þetta var of mikið í fang tekið að vinna að þessu verkefni og vera samhliða við knattspyrnuþjálf- un. Ég eiginlega ákvað þá að taka skrefið og fara alveg út í þáttagerð í sjónvarpi og útvarpi og hætti því sem þjálfari Þróttar. En eins og gerist í þessum bransa þá kom fljót- lega í ljós að verkefnin sem ég var með í kollinum kröfðust mikillar vinnu og fjármögnunar og hlutirn- ir gengu ekki hratt fyrir sig og ég þurfti á meiri vinnu að halda og sá þá auglýst þetta starf hjá Gróttu og sótti um og fékk. Starfið er ótrú- lega fjölbreytt. Félagið er með þrjár deildir, sem er knattspyrna, hand- bolti og fimleikar. Ég á í samskipt- um við þjálfara, iðkendur og for- eldra hjá öllum deildunum. Þetta er gefandi og skemmtilegt.“ Hófst með þáttaröð um Nýdönsk Gunnlaugur á sér samt draum um að geta unnið enn frekar að þátta- gerð í framtíðinni og þá alfarið. Þau verkefni sem hann hefur unnið að hafa fengið lofsamlega dóma og unnið til verðlauna. Hann hefur alla tíð haft brennandi áhuga á tón- list og sérstaklega íslenskri tónlist. Fyrstu skref Gunnlaugs hjá ljós- vakamiðlunum voru árið 2008 með þáttaröð sem hann gerði um hljóm- sveitina Nýdönsk og voru fluttir á Rás 2. „Ég viðraði hugmynd mína við Óla Palla og hann kom henni áfram til Sigrúnar Stefánsdóttur sem þá var yfirmaður á Rás 2, sem gaf grænt ljós á verkefnið. Í kjölfarið kom þáttaröðin „Árið er“ sem var flutt á Rás 2 árið 2013 og svo önn- ur þáttaröð árið eftir. Sú þáttaröð fékk lofsamlega dóma gagnrýnenda og á þeim tíma komst Hallgrímur Oddsson blaðamaður á Viðskipta- blaðinu þannig að orði í umfjöll- un sinni um þættina: „Þættirnir Árið er eru einhverjar mikilvæg- ustu menningarheimildir sem Rík- isútvarpið hefur nokkurn tíma tek- ið saman.“ Það var Skagamaðurinn Ásgeir Eyþórsson sem vann með mér að þáttunum. Það var ómet- anlegt að fá hann að gerð þeirra. Hann er frábær tæknimaður, mjög skipulagður og með röddina sem þurfti. Við áttum það sameigin- legt að vera fullkomnunarsinnar. Án hans hefðum við ekki komist í gegnum þetta. Auk okkar var ein- vala lið sem einnig kom að þátta- gerðinni.“ Þáttaröð um Ísland í Eurovision Fyrsta sjónvarpsverkefni Gunn- laugs var árið 2016 þegar hann gerði ásamt Ásgeiri Eyþórssyni þáttaröð um þátttöku Íslands í Eurovision í 30 ár. „Þetta voru fimm þættir sem heppnuðust mjög vel og urðu vinsælir og hlutu Edduverðlaunin árið 2016 fyrir skemmtiþátt ársins. Sigurinn í flokki skemmtiþátta kom okkur félögunum algerlega í opna skjöldu, en það var jafnframt afskaplega ánægjulegt.“ Vann Edduna fyrir Áskorun Næsta verkefni Gunnlaugs voru þættirnir „Áskorun“ sem sýnd- ir voru á Stöð 2 og voru tilnefnd- ir til Eddu verðlauna og sigruðu þar í flokki íþrótta. Þættirnir voru fimm talsins. Var þar rætt við sund- garpinn Inga Þór Jónsson frá Akra- nesi, Elísabetu Gunnarsdóttur knattspyrnuþjálfara í Noregi, Guð- mund Guðmundsson landsliðs- þjálfara í handbolta, Tryggva Snæ körfuboltamann og svo fimleikalið Gerplu. „Það var ánægjulegt að vinna við gerð þessara þátta en gríðar- lega mikil vinna sem lá að baki og afar ánægjulegt að fá klapp á bakið að þeim loknum með þessum verð- launum. Það má eiginlega segja að það sé kostur minn að áhuginn og metnaðurinn er til staðar hjá mér til þess að gera hlutina vel en jafn- framt minn veikleiki að ég sekk mér svo í verkefnin að ég týnist alger- lega í þeim ef hægt er að orða það þannig.“ Gunnlaugur gerði þáttaröðina „Víkingar – fullkominn endir“ um sigur Víkinga í deild og bikar á síð- asta ári og hefur sú þáttaröð ver- ið tilnefnd til Eddu verðlauna sem besta íþróttaefnið. Úrslitin verða kunngerð í haust. Sáttur með verkefnin Gunnlaugur sýndi það snemma að hann hefur mikinn metnað fyr- ir þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur og hefur hæfileika til þess að leiða hóp og stjórna. Þegar hann kom í meistaraflokk hjá Skagamönnum varð hann fljótt fyr- irliði liðsins, en það var árið 2000, og hélt hann þeim titli til ársins 2006. Þegar hann gekk til liðs KR-inga varð hann fyrirliði þar. En það urðu síðan vendingar árið 2009 þegar honum bauðst óvænt þjálf- arastarf á Selfossi. „Það var aldrei ætlunin að fara strax í þjálfun en þetta var spennandi tækifæri sem ég stökk á. Það gekk ljómandi vel og við komumst upp í efstu deild. En um haustið bauð knattspyrnufélagið Valur mér þjálf- arastöðuna hjá sér. Auðvitað var það freistandi að þiggja það sem ég og gerði og það gekk ekki sem skyldi. Svona eftir á að hyggja var þetta of stórt stökk fyrir frekar óreyndan þjálfara að taka við brotnu Valsliði á þessum tíma. Eftir það tók ég við KA á Akureyri. Ég var þar í tvö ár og gekk alveg ágætlega. Eftir það fór ég til HK og fæ um leið tæki- færi til þess að gera þáttaröðina Árið er, því starfið hjá HK var ekki fullt starf. En svo kom draumastarf- ið mitt loksins þegar mér var boð- ið að taka við ÍA árið 2013. Þá var liðið í næstefstu deild og við náðum að fara í efstu deild á fyrsta ári. Árin urðu fjögur hjá ÍA. Eftir það tók ég við Þrótti Reykjavík eins og áður sagði. Þannig að ég get ekki annað en verið sáttur við þau verkefni sem hafa fallið mér í skaut fram að þessu og er hvergi hættur,” segir Gunn- laugur að lokum. se Gamlir liðsfélagar hittast: Kári Steinn Reynisson, Gunnlaugur, Pálmi Haraldsson og Hjörtur J. Hjartarson. „Alltaf haft brennandi áhuga á fjölmiðlun“ Rætt við Gunnlaug Jónsson knattspyrnu- og fjölmiðlamann Gunnlaugur Jónsson. Gunnlaugur ásamt aðstoðarkonum með Eddu verðlaunin. Frá Eddu verðlaunaafhendingunni. Gunnlaugur og Ásgeir Eyþórsson. Tveir þekktir Skagamenn; Gunnlaugur Jónsson og Hallgrímur Ólafsson.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.