Skessuhorn


Skessuhorn - 29.06.2022, Side 21

Skessuhorn - 29.06.2022, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2022 21 SKIPULAGSAUGLÝSING Í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. Aðalskipulagsbreyting Litlu-Tunguskógur Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 12. maí 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir Litlu-Tunguskóg í landi Húsafells III í Borgarbyggð. Sett er fram stefna um að breyta landnotkun á 30 ha svæði innan frístundasvæðis F128 (Húsafell 2 og 3) yfir í íbúðarsvæði en frístundasvæðið er nú 98 ha að stærð en yrði 68 ha eftir breytinguna. Markmið tillögunnar er að heilsársbúseta verði möguleg á svæðinu og verða 40 frístundalóðum breytt í íbúðarhúsalóðir. Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Borgarbyggð. Deiliskipulag Litlu-Tunguskógur Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 12. maí 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Litlu-Tunguskóg í landi Húsafells III í Borgarbyggð. Tillagan tekur til breytinga á skilmálum þar sem 40 lóðir fyrir frístundahús verða skilgreindar sem lóðir undir íbúðarhús. 14 lóðir austast á svæðinu verða áfram skilgreindar sem frístundalóðir. Aðrir skilmálar haldast óbreyttir. Aðalskipulagsbreyting er gerð samhliða. Ofangreindar tillögur eru aðgengilegar á heimasíðu Borgarbyggðar www. borgarbyggd.is frá 29. júní til og með 12. ágúst 2022. Ef óskað er eftir nánari kynningu á ofangreindum tillögum þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa. Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við auglýstar skipulagstillögur og er frestur til að skila inn athugasemdum til 12. ágúst. Athugasemdum skal skila skriflega í Ráðhús Borgarbyggðar, Bjarnabraut 8, 310 Borgarnesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is eða thjonustuver@borgarbyggd.is . Borgarbyggð, 29. júní 2022 Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar. Laxveiðin fer ágætlega af stað víða og töluvert af laxi að ganga í árn- ar. Hítará var með sex laxa opn- un. Fyrsta hollið í Langá veiddi tvo laxa og eitthvað er komið af laxi í Haffjarðará. Það veiddust 18 lax- ar í opnun Grímsár, tveggja ára lax og eins árs lax í bland. „Þetta byrj- ar bara vel hjá okkur,“ sagði Jón Þór Júlíusson er við spurðum um Grímsá og bætti við: „Það er helli- rigning hérna núna í holli núm- er tvö, en þar voru að byrja veið- ar,“ sagði Jón Þór þegar rætt var við hann í síðustu viku. gb Í tilkynningu hvetur Matvælastofn- un til arfgerðagreininga með til- liti til næmis gegn riðusmiti og að bændur nýti þá þekkingu í sinni ræktun. „Mikilvægt er að líflömb sem flutt eru milli bæja eða svæða til kynbóta og/eða sem nýr fjár- stofn á svæðum þar sem skorið hef- ur verið niður vegna riðu séu arf- gerðagreind. Verndandi arfgerðir gegn riðu hafa nú fundist á Íslandi og mikið í húfi að nýta þær í barátt- unni gegn riðuveiki í öllu ræktun- arstarfi sauðfjár, hvort heldur sem er við kaup á lömbum eða notkun- ar sæðinga.“ Þá segir að verndandi arfgerðin ARR hefur raunar ekki fundist á líf- lambasölusvæðum enn sem komið er, en arfgerðin AHQ finnst þar í einhverjum mæli og er flokkuð sem „lítið næm arfgerð“. Hér á landi er hlutlausa arfgerðin ARQ algeng- ust en áhættuarfgerðin VRQ er því miður einnig nokkuð algeng. Arf- gerðin T137, sem hefur sýnt sig að vera verndandi arfgerð í tiltekn- um fjárstofni á Ítalíu, hefur fund- ist í íslensku fé og því er vænlegt að rækta fé með þá arfgerð. Í gildi er reglugerðarákvæði þar sem segir: „Þar sem fram hefur far- ið niðurskurður vegna riðu skal þó einungis heimilt að flytja líflömb sem ekki hafa VRQ arfgerðina á búið.“ Samkvæmt ákvæðinu er bannað að flytja lömb með VRQ áhættuarfgerðina inn á bú þar sem skorið hefur verið niður vegna riðu. Ekki er ábyrgt að kaupa fé með VRQ arfgerðina á aðra bæi.“ mm „Við vorum í tveggja daga hjóna- holli í Straumfjarðará. Hollið end- aði með sex fiska á land, frábær ferð í alla staði,“ sagði Birna Dögg Jóns- dóttir í samtali við Skessuhorn. „Af þessum sex löxum vor tveir Maríu- laxar, sem var frábært. Veðrið var ekki að vinna með okkur en við lét- um það ekki á okkur fá. Að kasta flugu í roki og kulda er eitthvað sem við höfum öll prófað áður og flestir veiðimenn kannast vel við. Leiðsögumennirnir Daníel og Ótt- ar voru með okkur allan tímann og þeirra vinna var framúrskarandi,“ sagði Birna Dögg. Straumfjarðará hefur nú gefið á milli 20 og 25 laxa. gb Opnað var fyrir veiði á sunnan- verðri Arnarvatnsheiði um miðjan júní. „Það er alltaf gaman að fara á Arnarvatnsheiðina, enda farið þarna æði oft og þetta er skemmti- legt,“ sagði Ingólfur Kolbeins- son þegar tíðindamaður Skessu- horns heyrði í honum, nýkominn á heiðina og strax kominn með fína veiði og væna fiska. „Já, það var góð veiði; bleikja og urriði í bland, strax og hvassviðrið sem gekk yfir á föstudag og framan af laugardegi var gengið yfir, fór hann að gefa sig. Frá miðjum degi á laugardaginn og fram á kvöld veiddist vel á fluguna, til dæmis á Zug bug krók, Bjarnar og moppuna. Einnig var að veið- ast á Íslandsspún, Lyppu og Mor- esilda. Vatnsstaðan er fín í vötnun- um og þá er alltaf gaman að veiða, það er að segja þegar veðrið leyfir,“ sagði Ingólfur. Við fréttum að fleiri veiði- mönnum á heiðinni og fengu þeir sömuleiðis fína veiði, en veðurfar- ið hefði mátt vera betra. Þá virðist silungurinn vel haldinn eftir vetur- inn. Veiðileyfi eru seld í gegnum heimasíðuna arnarvatnsheidi.is með því að senda inn fyrispurn eða í veitingahúsinu við Hraunfossa. Þar er opið frá kl. 11 til 15 mánu- daga til fimmtudaga og kl. 11-17 föstudaga til sunnudaga. gb Svipmynd úr Þverárrétt. Ljósm. úr safni Skessuhorns. Hvetja til ábyrgra líflambakaupa í haust Flottur smálax í Viðbjóði Ingólfur Kolbeinsson með fína veiði. Veiðin byrjuð á Arnarvatnsheiði Fallegur urriði veiddur á flugu. Tveir Maríulaxar veiddust í hollinu Jóhanna Íris Guðmundsdóttir með flottan lax úr Straumfjarðará. Sá stóri að sleppa.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.