Skessuhorn - 29.06.2022, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2022 23
Sumarlesari vikunnar
„Sumarlesturinn á bókasafninu
gengur alveg þrusu vel,“ að sögn
starfsfólks Bókasafns Akraness.
„Krakkarnir okkar hafa náð að
lesa yfir 20 þúsund blaðsíður nú
þegar og eru hvergi nærri hættir.
Lestur er bestur.“
Lesari vikunnar þessa vikuna er
Sveinn Theódór Oddsson.
Hvaða bók varstu að lesa og
hvernig var hún?
„Ég var að lesa Heyrðu Jónsi og
týnda hreindýrið.“
Hvernig bækur eru skemmti-
legastar?
„Heyrðu Jónsi bækurnar.“
Hvar/hvenær er best að lesa?
„Í sófanum, bara alltaf.“
Ef þú gætir lifað í einni bók
hvaða bók myndir þú velja?
„Geimverubók.“
Ef þú gætir galdrað hvaða töfra
mátt myndir þú velja?
„Að hverfa“
Uppáhalds veður?
„Sumarveður.“
Laugardaginn 18. júní síðastliðinn
var stærsta útskrift í sögu Háskól-
ans á Bifröst. Alls voru 134 nem-
endur brautskráðir; 22 úr háskóla-
gátt, 40 úr bakkalárnámi og 72 úr
meistaranámi. Grunnnámsnem-
endur skiptust þannig á milli deilda
að 17 útskrifuðust frá viðskipta-
deild, 17 úr félagsvísindadeild og
sex úr lagadeild. Skipting meist-
aranema eftir deildum var síðan
þannig að 60 luku námi við við-
skiptadeild, fjórir við félagsvísinda-
deild og átta við lagadeild.
Að vanda voru verðlaun veitt fyr-
ir besta námsárangur í hverri deild.
Þá fékk einn nemendi úr hverri
deild, sem er í námi, skólagjöld
felld niður sem hvatningarverð-
laun fyrir framúrskarandi árangur.
Nemendur sem fengu skólagjöld
niðurfelld voru: Brynjar Óskars-
son, Einar Freyr Elínarson og Þór-
unn Marinósdóttir. Nemendur sem
hlutu útskriftarverðlaun eru: Auður
Ösp Ólafsdóttir, Ásdís Elvarsdóttir,
Dagbjört Una Helgadóttir, Helga
Þorvaldsdóttir, Íris Björg Birg-
isdóttir, Líney Lilja Þrastardótt-
ir, Magnús Þór Jónsson, Pauline
Jeannine M. Lafontaine og Selma
Hrönn Maríudóttir.
mm/ Ljósm. James Einar Becker
Hluti þess hóps sem útskifaður var.
Stærsta útskrift frá upphafi
skólans á Bifröst
Keppt var í knattspyrnu á lokadegi mótsins. Hér undirbýr Guðlaugur Þór Þórðar-
son sig undir að skjóta að marki. Skömmu síðar tognaði ráðherrann og annar
leikmaður sleit hásin, þannig að leikurinn var flautaður af. Ljósm. umfí
Skagakonan Hallbera Jóhannesdóttir
með tvö gull og tvö silfur fyrir 50 og
100 metra skrið og bringu. Ljósm. gg.
Hér flýgur Nokia stígvél í stærðinni 39 hjá Eygló Lind Egilsdóttur. Kastið dugði henni til sigurs. Ljósm. gle.
Púttað var á Hamri. Ljósm. sþ.
Svipmynd frá keppni í bridds. Ljósm. sþ.
Frá keppni í sundi. Ljósm. sþ.