Skessuhorn - 29.06.2022, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 202226
Félag áhugamanna um Bátasafn
Breiðafjarðar á Reykhólum, gengst
nú fyrir bátahátíð á Breiðafirði í
fimmtánda sinn laugardaginn 9.
júlí nk. Að þessu sinni verður far-
ið til Hvalláturs þar sem rekin var
afkastamikil bátasmíðastöð fram
á sjöunda áratug síðustu aldar. Þar
hefur teinæringurinn Egill verið
geymdur allt frá árinu 1940 er hætt
var að nota hann og honum lagt
Ráðgert er að þátttakendur safn-
ist saman á Reykhólum föstudaginn
8. júlí. Flóð er um klukkan 14 og þá
er gott að setja bátana niður í höfn-
inni fyrir þá sem koma með bát-
ana landleiðina. Einnig er hægt að
sjósetja báta í höfninni við Stað á
Reykjanesi.
Á laugardagsmorgun verður
haldið frá Reykhólum um klukkan 9
og áformað að sigla um svokallað-
ar Staðareyjar. Við Stað koma þeir,
sem þaðan fara, til móts við þátttak-
endur (um kl. 10) og síðan er siglt
áleiðis um Skáleyjalönd og til Hval-
láturs. Staðarhaldarar í Hvallátrum
munu kynna þátttakendum það starf
sem þar fer fram en þar er stunduð
æðarrækt og dúntekja. Einnig mun
Egill verða skoðaður og saga hans
sögð. Ráðgert er síðan að koma til
baka seinni partinn. Að sjálfsögðu
ráða aðstæður, sjávarföll og veður,
mestu um hvernig siglingin verð-
ur og áætlunin getur því breyst ef
aðstæður krefjast. Siglingin verður
undir stjórn manna sem þekkja vel
til aðstæðna við Breiðafjörð. For-
maður hvers báts er ábyrgur fyr-
ir því að nauðsynlegur öryggisbún-
aður sé fyrir hendi um borð. Vin-
samleg tilmæli eru að þátttakendur
verði með bjargbelti og að sem flest-
ir bátar séu búnir björgunarbátum.
„Allir bátar eru velkomnir og við
viljum hvetja sem flesta til að nýta
sér þetta tækifæri til siglingar um
þetta fallega umhverfi,“ segir í til-
kynningu frá Bátasafni Breiðafjarð-
ar. mm
Eins og margir Grundfirðinga
vita er Birna Kristmundsdótt-
ir að berjast við leghálskrabba-
mein í þriðja sinn á skömm-
um tíma. Hefur hún undanfarna
mánuði verið í strangri lyfjameð-
ferð sem auðvitað tekur sinn toll.
Nokkrir Grundfirðingar tóku sig
til og héldu styrktartónleika síð-
astliðinn þriðjudag fyrir Birnu og
fjölskyldu. Á tónleikunum sem
fóru fram í Grundarfjarðarkirkju
sungu nokkrar sem sótt hafa söng-
námskeið hjá Sylvíu Rún ásamt
Sylvíu sjálfri.
Þá var sömuleiðis safnað fyrir Birnu
með öðrum hætti í vikunni sem leið.
Box7 stóð fyrir áheita róðrarkeppni.
Fyrir keppnina var stefnt að því að
hjóla/róa 1.500 km. á róðrarvélum og
bike erg hjólum. Fimm róðrarvélar
og fimm hjól voru á staðnum.
Á báðum þessum viðburðum; tón-
leikum og róðrarkeppni, var óskað
eftir frjálsum framlögum í söfnun
sem hafði sama tilgang. tfk
Heimildamyndahátíðin IceDocs
var sett við hátíðlega athöfn í
Skemmunni við Akranesvita í síð-
ustu viku og stóð hún til sunnu-
dags. Eliza Reid forsetafrú Íslands,
flutti opnunarávarp og í kjölfarið
var sýnd opnunarmyndin Distopia
Utopia eftir skjálistamanninn Die!
Goldstein. Eliza minntist á mik-
ilvægi þess að glöggt sé gests aug-
að og fagnaði þannig þeirri flóru
erlendra heimildamynda sem
myndu segja sögur á hátíðinni að
þessu sinni, en sagnalist væri sam-
ofin íslenskri menningu. Þannig
myndum við öll víkka út sjón-
deildarhringinn.
Þetta er í fjórða skipti sem hátíð-
in fór fram og hefur hún vaxið og
dafnað ár frá ári þrátt fyrir heims-
faraldur. Í ár var boðið upp á vand-
aðar heimildamyndir erlendar sem
innlendar og var frítt inn á alla
viðburði á dagskránni. Hátíðinni
lauk svo sunnudaginn 26. júní með
verðlaunaafhendingu. mm
Þrettánda Ólafsdalshátíðin í Gils-
firði verður haldin laugardaginn
16. júlí, glæsileg fjölskylduhátíð að
vanda. Megindagskráin verður frá
kl. 13 til 17. Meðal skemmtikrafta
verða Lalli töframaður, Bjartmar
Guðlaugsson og fleiri. Áhugaverð
gönguferð með leiðsögn verð-
ur farin áður en formleg dagskrá
hefst (um kl. 11). Ólafsdalshapp-
drættið verður á sínum stað, góðar
veitingar, Erpsstaðaís, handverks-
markaður, hestar fyrir börnin o.fl.
Gestum gefst auk þess kostur á að
kynna sér glæsilega uppbyggingu
húsa í Ólafsdal á vegum Minjaverd-
ar. Þar eru nú risin fimm hús þar
sem skólahúsið stóð eitt áður. End-
anleg dagskrá verður nánar kynnt
fljótlega.
Sumaropnun Ólafsdalsfélagsins
í Ólafsdal verður frá 10. júlí til 1.
ágúst kl. 12-17. Boðið er upp á sýn-
ingar um Ólafsdalsskólann (1880-
1907), kaffiveitingar og leiðsögn.
Þá er vinsælt að ganga að land-
námsskálanum og fornminjasvæð-
inu innar í dalnum þar sem Forn-
leifastofnun Íslands mun stunda
rannsóknir fimmta sumarið í röð
(um 15 mín ganga frá skólahús-
inu). Allan opnunartímann verða
listaverk bræðranna Halldórs og
Sverris Ásgeirssona til sýnis. Verk
Halldórs verður utandyra (vís-
un í áform um vindmyllugarða
á Íslandi) en myndverk Sverris í
Suðurstofu skólahússins. Þau verk
eru liður í myndlistarverkefninu,
„Nr. 4 Umhverfing“, sem fjöldi
listamanna tekur þátt í með sýning-
um í Dölum, á Ströndum og Vest-
fjörðum í sumar. Þeir bræður eru
afkomendur Torfa og Guðlaugar í
Ólafsdal.
Staðarhaldarar í Ólafsdal í sumar
verða m.a. Rögnvaldur Guðmunds-
son formaður Ólafsdalsfélagsins og
kona hans Helga Björg Stefánsdótt-
ir. Einnig Torfi Ólafur Sverrisson og
fjölskylda. -fréttatilkynning
Svipmynd frá opnunarhátíðinni. F.v. Die! Goldstein, Helena Guttorms og Eliza Reid
forsetafrú.
Heimildamyndahátíð
fór fram á Akranesi
Á mynd í kirkjunni. F.v. Sylvía Rún Guðnýjardóttir, Ragnheiður Dröfn Benedikts-
dóttir, Heiðrún Hallgrímsdóttir, Krista Rún Þrastardóttir, Rakel Birgisdóttir, Birna
Kristmundsdóttir, Guðbjörg Jóhanna Níelsdóttir og Ólöf Gígja Hallgrímsdóttir.
Grundfirðingar taka höndum
saman fyrir Birnu
Frá Ólafsdalshátíð. Ljósm. Rögnvaldur Guðmundsson.
Ólafsdalshátíð verður haldin 16. júlí
Í Ólafsdal eru nú risin fimm hús þar sem skólahúsið stóð eitt áður.
Ljósm. Torfi Ólafur Sverrisson.
Svæðið sem siglt verður um.
Bátadagar verða á Breiðafirði í júlí