Morgunblaðið - 28.04.2022, Síða 22

Morgunblaðið - 28.04.2022, Síða 22
22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022 H jörvar Steinn Grétarsson, sem á titil að verja, var efstur í keppni landsliðs- flokks á Skákþingi Ís- lands þegar þrjár umferðir voru eft- ir með 4½ vinning af sex mögulegum. Á hæla hans komu Hannes Hlífar Stefánsson og Héð- inn Steingrímsson, báðir með fjóra vinninga. Í gær mættust Héðinn og Hjörvar Steinn í einni af úr- slitaskákum mótsins og hafði Héð- inn hvítt. Þá mættust Hilmir Freyr og Hannes Hlífar. Úrslit lágu ekki fyrir þegar greinin var rituð en blað- ið fór í prentun fyrr en venjulega vegna aldreifingar. Ljóst var að mikilvægur þáttur í titilvörn Hjörvars var að komast hjá tapi. Þessir tveir háðu harða keppni á vel skipuðu Íslandsmóti árið 2015 og hafði Héðinn sigur í síðustu um- ferð. Það er hins vegar Hannes Hlífar Stefánsson sem hefur oftast allra sigrað á Íslandsmótinu eða 13 sinn- um. Á tímabilinu 2001-2008 vann hann mótið átta sinnum í röð. En staðan fyrir lokasprettinn eins og hún blasti við fyrir umferðina í gær var þessi: 1. Hjörvar Steinn Grét- arsson 4½ v. (af 6) 2.-3. Hannes Hlíf- ar Stefánsson og Héðinn Stein- grímsson 4 v. 4.-5. Guðmundur Kjartansson og Vignir Vatnar Stef- ánsson 3½ v. 6.-7. Þröstur Þórhalls- son og Hilmir Freyr Heimisson 3 v. 8. Bragi Þorfinnsson 2½ v. 9. Alex- ander Oliver Mai 1½ v. 10. Símon Þórhallsson ½ v. Mótið fer fram við góðar aðstæður í gamla Landsbankahúsinu á Sel- fossi og er þetta í fyrsta sinn sem keppni landsliðsflokks fer fram á þessum slóðum. Þá er ástæða til að hrósa Ingvari Þ. Jóhannessyni fyrir góða og ítarlega umfjöllun um mótið á heimasíðu þess. Í mótinu taka þátt tveir nýliðar, Hilmir Freyr Heimisson og Símon Þórhallsson. Hilmir Freyr á fræði- lega möguleika á að blanda sér í bar- áttuna um Íslandsmeistaratitilinn, eins og þeir Guðmundur og Vignir Vatnar, en mestar líkur standa samt til þess að einn þremenninganna á toppnum hreppi titilinn að þessu sinni. Eftir umferðina í gær koma tveir frídagar og verður mótið til lykta leitt um helgina. Hjörvar teflir þá við Vigni og Hilmi Frey, Hannes við Þröst og Braga og Héðinn við Alex- ander Oliver og Guðmund. Miðað við þær stöður sem Hannes Hlífar hefur verið með í mótinu gæti hann hæglega verið langefstur. Hann átti unnið tafl gegn Hjörvari í 3. umferð og aftur gegn Héðni í 5. umferð, en fékk aðeins ½ vinning úr þessum skákum. Í skákinni gegn Héðni missti hann hvað eftir af rökt- um vinningi. Fyrst í þessari stöðu: Skákþing Íslands 2022; 5. um- ferð: Sjá stöðumynd 1 Héðinn – Hannes Hannes valdi að leika 35. … g4!? en gat knúið fram vinningsstöðu með hreint magnaðri leikfléttu sem ekki fór framhjá „vélunum“, 35. … Rxe3! 36. Hxe3 g4! Hér er hug- myndin sú að eftir 37. Hxe7 kemur 37. … Dxe1+! 38. Hxe1 Hxe1+ 39. Kh2 g3 mát! Hvítur getur reynt 37. hxg4 en þá kemur 37. … h3! 38. gxh3 Hh8! o.s.frv. Eftir 36. fxg4 Rxe3 37. Kg1! Df4 38. Rc5 a5 38. Rb3? kom þessi staða upp: Hann lék nú, 38. … a4 en átti 38. … Rxg2! strax því að 39. Hxe7 er svarað með 39. … Rxe1 o.s.frv. Eftir 39. Rd2 missti hann af 39. … Rc2! sem vinnur. „Riddarameistarinn“ vinur Hannesar, Þröstur Þórhalls- son, hefði ekki látið svona leiki fram hjá sér fara. Hannes átti þrátt fyrir allt enn góð færi á að vinna skákina en varð að sætta sig við jafntefli eftir 66 leiki. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Ómar Óskarsson. Hart barist um Íslandsmeistaratitilinn í skák Efstur fyrir lokasprettinn. Hjörvar Steinn við taflið á síðasta Reykjavíkurskákmóti. Léttu sumarskórnir frá Ten Points fáanlegir í mörgum litum og útgáfum Garðatorg 6 | sími 551 5021 | www.aprilskor.is Ten Points Maya 18.990 kr. Ten Points Malin 17.990 kr. Ten Points Maya 17.990 kr. Ten Points Malin 17.990 kr. Ten Points Maya 16.990 kr. Ten Points Malin 17.990 kr. Ten Points Maya 16.990 kr. Ten Points Malin 16.990 kr. Vefverslun | aprilskor.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.