Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 49
MINNINGAR 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022
✝
Kristín Eiríka
Gísladóttir
fæddist 22. júlí 1939
í Reykjavík. Hún
lést 11. apríl 2022.
Foreldrar Krist-
ínar voru Emilía
Kristín Þorgeirs-
dóttir, saumakona
og húsfreyja, f. 18.
maí 1908, d. 24. des-
ember 1965 og Gísli
Eiríksson trésmiður
frá Eyrarbakka, f. 30. júlí 1906, d.
26. september 1982. Kristín átti
einn bróður, Gylfa Gíslason,
teiknara og myndlistarmann, f.
19. desember 1940, d. 1. febrúar
2006.
Kristín giftist 31. október 1970
Jóni Jósefssyni flugvirkja, f. 16.
apríl 1942, d. 24. nóvember 2011.
Foreldrar Jóns voru Jósef Hart-
mann Sigurðsson frá Akureyri, f.
15. apríl 1910, d. 28. febrúar 2007
og Sveinbjörg Ágústa Jónsdóttir
entspróf frá Menntaskólanum í
Reykjavík vorið 1960. Um haustið
hóf hún nám í Háskóla Íslands í
dönsku og jarðfræði en lauk ekki
námi.
Árið 1963 hélt Kristín til
Þýskalands í þýskunám í Heidel-
berg. Eftir námið fékk hún vinnu
hjá BASF í Ludwigshafen. Hún
talaði þýsku eins og innfædd og
átti alla tíð sterk tengsl við vini og
kunningja í Þýskalandi.
Kristín hóf störf hjá Flugfélagi
Íslands sem flugfreyja 1966 og
starfaði þar óslitið til 1972. Þau
Kristín og Jón kynntust í fluginu
þar sem hann starfaði sem flug-
virki. Hún naut starfsins og
fannst gaman að ferðast. Hún
flaug innanlands en einnig til ann-
arra Evrópulanda. Kristín var
virk í félagsstarfi. Hún hafði yndi
af tónlist og söng og var í kórum,
m.a. með sínum gömlu útskrift-
arfélögum í MR60 kórnum. Þá
hitti hún fyrrverandi flugfreyjur í
Svölunum og Sexunum.
Kristín var bókelsk og fær
handavinnukona og eftir hana
liggja fjölmörg útsaumsverk.
Útför Kristínar fer fram frá
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í
dag, 28. apríl 2022, klukkan 13.
frá Norðfirði, f. 28.
ágúst 1920, d. 12.
febrúar 2009.
Kristín og Jón
eignuðust fjögur
börn og þau eru: 1)
Brynja Hrönn, f. 15.
júní 1973, 2) Hildur
Edda, f. 20. janúar
1975, 3) Sverrir Már,
f. 14. september
1980 og 4) Gunnar
Hrafn, f. 9. júní
1986. Ömmudrengirnir, synir
Hildar og Braga Smith, eru Helgi
Hrannar, f. 2003, Brynjar Orri, f.
2006 og Birgir Hrafn, f. 2013
Kristín ólst upp á Laugavegi 4 í
Reykjavík. Hún gekk í Ísaksskóla,
þaðan lá leiðin í Miðbæjarbarna-
skólann. Kristín hóf árið 1952
nám við Kvennaskólann í Reykja-
vík. Við útskrift þaðan hlaut hún
viðurkenningu fyrir góðan náms-
árangur. Kristín tók landspróf ut-
an skóla og útskrifaðist með stúd-
Kristín var stóra systir hans
pabba, rúmu ári eldri en litli bróð-
ir hennar, og þau ólust upp við
Laugaveg. Það sem flestir tóku
eftir sem hittu hana var hvað hún
var alltaf glaðvær. Það sem ein-
kenndi hana var hvað hún var frá
á fæti og kvik í hreyfingum.
Hún sagði gjarnan sögur með
hliðarsögu og hafði jafnvel enn
aðra hliðarsögu tilbúna á taktein-
unum en tókst með einhverjum
hætti að halda samt þræðinum
enda var hún vel gefin og minnug
með afbrigðum. Það var ekki í kot
vísað þegar kom að veislum henn-
ar þar sem borðið svignaði undan
kræsingunum.
Kristín starfaði sem flugfreyja
framan af og talaði nokkur tungu-
mál. Hún kom iðulega færandi
hendi þegar hún kom úr þessum
flugferðum og færði okkur ýmsar
fallegar gjafir, s.s. útlend páska-
egg, sem var nú aldeilis spenn-
andi. Svo ekki sé minnst á eftir-
minnilegar jólatrésskemmtanir
hjá Flugfélagi Íslands, sem hún
bauð okkur á, þar sem við fengum
heilan jólasokk með erlendu sæl-
gæti heim með okkur, sem ekki
þekktist mikið í þá daga hér á
landi.
Kristín frænka gegndi mikil-
vægu hlutverki í lífi okkar. Eftir
skilnað foreldra okkar hélt hún
vinskap og stuðningi við okkur
systkinin og mömmu m.a. með því
að fara með okkur í bíltúra út fyrir
bæinn, t.d. lautarferðir í Heið-
mörk með nesti. Það var mikil
upplifun í minningunni og fyrir
það erum við þakklát.
Að leiðarlokum sendum við
Brynju Hrönn, Hildi Eddu, Sverri
Má, Gunnari Hrafni og öðrum að-
standendum hugheilar samúðar-
kveðjur. Blessuð sé minning
Kristínar frænku.
Margrét, Kristín Edda,
Unnur, Freyja og Þorkell
Gylfabörn.
Góð vinkona okkar Kristín er
fallin frá eftir löng veikindi.
Við kynntumst í Kvennaskól-
anum í Reykjavík á sjötta áratug
síðustu aldar. Kristín var mikill
námsmaður, hlaut verðlaun og
gegndi ábyrgðarstöðu í skólanum.
Hún var okkar fyrirmynd.
Á skólaárunum stofnuðum við,
nokkrar úr Z-bekknum, sauma-
klúbb sem starfaði með hléum,
þar til fyrir stuttu. Þessi klúbbur
var ólíkur öðrum saumaklúbbum,
því í honum var nefnilega saumað
eða prjónað af kappi. Mikið var
líka talað og alltaf var fyrsta
flokks bakkelsi á borðum.
Kristín ólst upp í hjarta
Reykjavíkur, við Laugaveginn.
Þau voru tvö systkinin auk for-
eldranna. Gylfi, bróðir Kristínar,
var ári yngri en hún. Hann er nú
látinn fyrir nokkru og var missir
hans Kristínu mikið áfall.
Kristín gekk i hjónaband með
Jóni Jósefssyni árið 1970 og eign-
uðust þau fjögur börn. Jón lést í
nóvember árið 2011 og eftir það
bjó Kristín með þremur af börn-
um sínum í húsi fjölskyldunnar í
Garðabæ.
Nú, nærri 70 árum eftir okkar
fyrstu kynni, þökkum við Kristínu
vináttuna, sem aldrei bar nokkurn
skugga á, og hugsum með hlýju til
þeirra þriggja, sem farnar eru úr
klúbbnum okkar.
Börnum Kristínar og ömmust-
rákunum þremur sendum við okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Þeirra missir er mestur.
Ásdís (Dísa), Edda og
Sigurlaug (Sissa).
Kæra Kristín.
Nú er víst komið að kveðju-
stund, eitthvað sem maður vill í
raun og veru ekki. Því að kraftur
þinn, elja og atorkusemi hefur
ávallt verið svo mikil frá því ég
man eftir mér sem lítilli stúlku
inni á heimilinu ykkar.
Það voru svo góðar og nærandi
stundirnar í Hlíðarbyggðinni hjá
ykkur. Í mínum augum varstu
mikil atorkukona og þú varst svo
sannarlega mikil húsfreyja.
Ég man þegar fjölskyldur okk-
ar komu margoft saman við
Hafravatn, þar sem kveiktur var
varðeldur og grillaðar voru pylsur
á prikum.
Oft fóru foreldrar mínir og
systur í svokallaðan sunnudags-
bíltúr en eitt skiptið vildi ég ekki
fara með.
Þegar síðar kom í ljós að þau
höfðu endað bíltúrinn í heimsókn
til ykkar, man ég hvað ég var
svakalega svekkt og fannst mér
ég hafa misst af öllu dýrmæta
gulli heimsins, heimsókn til ykkar.
Svo leið tíminn og fólk fullorðn-
aðist. Minna varð um samveru-
stundir, en þegar ég átti von á
dóttur minni fyrir rúmlega ára-
tug, fann ég hvað það skipti mig
miklu máli að auka samskiptin og
fjölga samverustundunum með
ykkur fjölskyldunni aftur. Dóttir
mín varð þess aðnjótandi að fá að
skírast í skírnarkjólnum sem þið
Jón skírðuð öll börnin ykkar í. En
hann hafðir þú búið til úr brúð-
arkjólnum þínum. Það finnst mér
líka lýsa þér svo vel, hæfileikun-
um sem þú hafðir og velvild.
Fyrir nokkrum árum lentum
við mæðgurnar í hrakningum með
bílinn okkar á Reykjanesbraut-
inni. Þá voru góð ráð dýr. Hringt
var í Brynju dóttur þína og björg-
unarsveit Markarflatarinnar fór
eldsnöggt af stað. Ég mun seint
gleyma þeirri sjón sem blasti við
mér, þegar stóri Dodgeinn hennar
Brynju renndi upp að okkur, þú
Kristín komst út úr bílnum ásamt
Gunnari syni þínum. Þú íklædd
stígvélum, regnfatnaði með höf-
uðvasaljós í illviðri og stjórnaðir
aðgerðum af mikilli snilld. Þú
varst svo mikill kvenskörungur og
þarna voru einungis nokkur ár í
áttræðisafmælið þitt.
Nú líður að kveðjustundinni og
margs er að minnast en því miður
kemst ekki meira fyrir hér. Ég
veit að þú ert komin í fallegar
vistaverur, þar sem engir verkir
hrjá þig lengur, áhyggjur né sárs-
auki heldur einungis gleði, heil-
brigði og hamingja. Ég veit það,
því stuttu eftir andlát þitt sá ég
þig og Salóme ömmu mína ofar
skýjum, í annarri vídd. Þið sátuð
hvor á sínum tignarlega útskorna,
krosssaumaða stólnum með staup
á fæti í höndum og skáluðuð í
sérríi.
Þú varst svo glöð, frjáls, ham-
ingjusöm og brostir breitt. Þið
amma sátuð og hlóguð og höfðuð
svo gaman af að spjalla og rifja
upp gömlu tímana.
Ég kveð þig, kæra Kristín, með
mikilli þökk og virðingu fyrir öllu
sem þú kenndir mér og varst fyrir
mig og síðar dóttur mína.
Eftir sitja uppkomnu börnin
þín fjögur, Brynja Hrönn, Hildur
Edda, Sverrir Már og Gunnar
Hrafn ásamt barnabörnunum þín-
um þremur. Ég veit að söknuður
þeirra er og verður mikill.
Góðu minningarnar um þig
munu lifa áfram í hjarta mínu og
dóttur minnar um dásamlegu
dugnaðarkonuna og húsfreyjuna
Kristínu Eiríku Gísladóttur. Það
verður allt í lagi. Hvíl í friði.
Signý Gyða Pétursdóttir.
Kær skólasystir, Kristín
Gísladóttir, hefur nú kvatt eftir
erfið veikindi.
Það var fyrir tuttugu árum að
bekkjarsystir okkar Elsa úr
stærðfræðideild MR hafði sam-
band og bauð okkur stelpunum í
heimsókn til Stavanger í Noregi,
en þar hafði hún sest að eftir að
námi lauk.
Hún minnti jafnframt á að það
væri e.t.v. ekki rétt að geyma
þessa heimsókn sem oft hafði
verið rætt um öllu lengur vegna
hækkandi aldurs okkar. Elsa átti
frænku, Kristínu, sem var í sama
útskriftarárgangi frá MR 1960
og lagði til að hún kæmi með.
Okkur fannst það góð hugmynd,
enda þekktum við allar vel til
hennar.
Ferðin til Noregs var algjört
ævintýri, Stavanger skartaði
sínu fegursta í sól og tuttugu
stiga hita.
Ekki var það verra að Elsa
bekkjarsystir, sem er arkitekt og
hafði ílengst í Noregi eftir nám,
starfaði að varðveislu gamalla
húsa í bænum.
Hún var bæði gestgjafi okkar
og leiðsögumaður þessa ógleym-
anlegu daga í Stavanger.
Skemmst er frá því að segja að
Kristín féll strax mjög vel inn í
hópinn, sem hefur haldið þétt
saman alla tíð, og var henni boðið
í „saumaklúbbinn“ okkar, Sínus.
Síðan þá höfum við hist reglu-
lega og átt ómetanlegar ánægju-
stundir saman, farið saman í ótal
ferðir út á land og til útlanda með
hópum úr útskriftarárganginum
frá MR 1960.
Jón eiginmaður Kristínar lést
árið 2011, en þá hafði hún greinst
sjálf nokkru áður með lungna-
krabbamein.
Kristín tók þessum fréttum af
æðruleysi og urðum við þess
varla varar að hún breytti neinu í
sínu daglega lífi.
Þrátt fyrir að lífið hafi ekki
alltaf farið um hana mjúkum
höndum var hún ávallt glöð og já-
kvæð og naut þess að taka þátt í
öllum uppákomum.
Kristín hélt áfram að halda
heimili með þremur uppkomnum
börnum sínum til síðasta dags.
Hún tókst á við erfið veikindi
undanfarinna ára með einstakri
hugarró og kjarki og var ávallt
jafn elskuleg.
Kristín er sú þriðja sem hefur
kvatt úr þessum átta manna hópi
sem fór til Noregs og hennar
verður sárt saknað.
Blessuð sé minning Kristínar.
Börnum hennar og barna-
börnum sendum við innilegar
samúðarkveðjur.
Ella Kolbrún, Guðlaug,
Kristín, Steinunn Kolbrún
og Stella.
Kristín Eiríka
Gísladóttir
Sálm. 9.11
biblian.is
Þeir sem þekkja
nafn þitt treysta
þér því að þú,
Drottinn, bregst
ekki þeim sem til
þín leita.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORSTEINN EGGERTSSON,
lést á Landspítalanum laugardaginn 9. apríl.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju, Garðabæ,
föstudaginn 29. apríl klukkan 13.
Ágústa Birna Árnadóttir
Lovísa Sigrún Svavarsdóttir Anton Antonsson
Bjarni Svavarsson Herdís Wöhler
Sigurlaug Þorsteinsdóttir Arnar Hannesson
Árni Þorsteinsson Ragna Hafsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær bróðir okkar og frændi,
JÓN KJARTAN BALDURSSON,
lést 28. mars.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 29. apríl klukkan 13.
Blóm og kransar eru vinsamlegast
afþökkuð en þeim er vildu minnast hans er
bent á Parkinsonsamtökin.
Halldóra Baldursdóttir
Sigurjón Rúnar Baldursson
Ármann Þór Baldursson
systkinabörn og fjölskyldur
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ELÍNBORG MARGRÉT
SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
föstudaginn 22. apríl.
Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn
3. maí klukkan 13.
Reynir Kristjánsson
Kristín Laufey Reynisdóttir Jón Trausti Bragason
Ingvar Reynisson Sóley Guðmundsdóttir
Inga Rut Reynisdóttir Oddur Þráinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku yndislega móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
VIGDÍS RUNÓLFSDÓTTIR
frá Kollafjarðarnesi, Ströndum,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn
17. apríl. Útför hennar fer fram
frá Árbæjarkirkju mánudaginn 2. maí klukkan 13.
Innilegar þakkir til starfsfólks Eirar fyrir hlýja og góða umönnun.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin.
Guðný Jóna Guðnadóttir Ólafur Geir Magnússon
Fannar Óli Ólafsson Jónína Björg Benjamínsdóttir
Steinar Geir Ólafsson
Guðni Rúnar Ólafsson
og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
VIKTOR INGI STURLAUGSSON
bifvélavirkjameistari,
lést á líknardeild Landspítalans, Kópavogi,
föstudaginn 22. apríl.
Útförin fer fram í Grafarvogskirkju miðvikudaginn 4. maí
klukkan 15. Innilegar þakkir til starfsfólks líknardeildar fyrir
yndislega umönnun.
Sigríður Th. Mathiesen
Victor R. Viktorsson Salbjörg Bjarnadóttir
Júlíana S. Viktorsdóttir
og afabörn
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi og afi,
HAUKUR MARGEIRSSON
verkfræðingur,
lést á Landspítalanum föstudaginn 22. apríl.
Útför fer fram í Kópavogskirkju föstudaginn
29. apríl klukkan 13.
Jón Baldur Hauksson Parastou Roshan
Sandra Hauksdóttir Sigurgísli Bjarnason
Helga Hauksdóttir Sigurður Davíð Stefánsson
Ásta Ragnheiður Hauksdóttir
barnabörn