Morgunblaðið - 28.04.2022, Qupperneq 53
DÆGRADVÖL 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022
„ÞESSAR FIMM SEM ÞÚ FÓRST NÝLEGA Á
STEFNUMÓT MEÐ FÓRU ALLAR AFTUR TIL
FYRRVERANDI EIGINMANNS.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að fá hjálp við að
bera á sig sólvörnina.
MÉR FINNST EINSOG HEIMURINN
ÞEKKI EKKI MITT SANNA SJÁLF
ENÆÐISLEGT HVERS VEGNA ER HEIMURINN
ALLTAF SVONA HEPPINN
TAKK FYRIR AÐÆTLA AÐ FARA
Í LEIKHÚSIÐ MEÐ MÉR!
GEI
SP
AFSAKAÐU HVAÐ ÉG ER LENGI
AÐ HAFA MIG TIL!
ERTU AÐ FARA Á LEIKSÝNINGU
EÐA ÁHEYRNARPRUFU FYRIR
LEIKRIT?
AÐ ALA UPP BÖRN Á FJÖLSKYLDUVÆNUM
VINNUSTAÐ ER EKKI EINS EINFALT OG
ÞAÐ HLJÓMAR.
STEFNUMÓTA-
ÞJÓNUSTA
Grímur. 3) Ingvar, f. 20.10. 1952,
húsgagnasmiður og kennari á Akur-
eyri, maki Sigrún Hulda Stein-
grímsdóttir. Börn þeirra eru a)
Halla, b) Engilbert, maki Aðalbjörg
Rósa Sigurðardóttir, börn þeirra
eru Sigrún María, Soffía Sunna,
Kristbjörg Hekla, Ingvar Emil og
óskírð Engilbertsdóttir, og c) Adda
Soffía, maki Heiðmar Guðmunds-
son, dóttir þeirra er Viktoría Eva.
4) Jón Hallfreð, f. 22.11. 1955, kenn-
ari og tónlistarmaður á Ísafirði,
maki Helga Sigfríður Snorradóttir.
Börn þeirra eru Snorri Sigbjörn,
maki Heiðdís Lára Viktorsdóttir, og
Kristín Harpa. 5) Ólafur Jóhann, f.
6.9. 1960, menningarmiðlari í
Reykjavík, maki Gyða Sigríður
Björnsdóttir. Sonur þeirra er Dag-
bjartur Sigurður. Stjúpsonur Ólafs
er Úlfur Kolka, sonur hans er Pétur
Hafsteinn. 6) Atli Viðar, f. 9.9. 1961,
listamaður á Akureyri. 7) Salbjörg,
f. 30.7. 1967, skrifstofustjóri á
Hólmavík, maki Sverrir Guðbrands-
son. Börn þeirra eru Jakob Ingi,
Kristín Lilja og Júlíana Steinunn.
Sonur Salbjargar er Andri Freyr
Arnarsson og var hann löngum í
fóstri hjá Engilbert og Öddu. Sonur
Sverris og stjúpsonur Salbjargar er
Guðbrandur Emil, maki Jennifer
Isabell Land Pedersen, og synir
þeirra eru Sverrir Nickolai og
Christopher Jóhann.
Systkini Engilberts: Ásgeir Ingv-
ar, f. 29.1. 1919, d. 27.9. 1989, Jón
Hallfreð, f. 1.8. 1921, d. 29.4. 1945,
og Jóhanna Sigrún, f. 1.1. 1933, bú-
sett í Hnífsdal.
Foreldrar Engilberts voru hjónin
Salbjörg Jóhannsdóttir ljósmóðir, f.
30.9. 1896, d. 28.12. 1991, og Ingvar
Ásgeirsson bóndi, trésmiður og bók-
bindari, f. 15.8. 1886, d. 11.4. 1956.
Engilbert
Sumarliði
Ingvarsson
Ásgeir Benediktsson
vinnumaður á Stað í Súgandafirði
Ingibjörg Jónsdóttir
vinnukona á Gróunesi
í Gufudalssveit
Ásgeir Guðjón Ásgeirsson
sjómaður á Ísafirði
Kristrún Benediktsdóttir
húsfreyja á Ísafirði
Ingvar Ásgeirsson
bóndi, trésmiður og
bókbindari á Lyngholti
Benedikt Magnússon
bóndi í Gestsstaðaseli í
Kirkjubólshreppi, Strand.
Jóhanna Jónsdóttir
þjónustustúlka á
Kambi í Reykhólasveit
Engilbert Kolbeinsson
bóndi á Lónseyri
Ólafía Þórðardóttir
bústýra á Lónseyri í
Snæfjallahreppi, N-Ís.
Jóhann Sigurgeir Engilbertsson
sjómaður í Unaðsdal
í Snæfjallahreppi, N-Ís.
Sigrún Jónsdóttir
vinnukona á Sandeyri í
Snæfjallahreppi, N-Ís.
Jón Sigurðsson
vinnumaður á Rauðkollsstöðum
í Eyjahreppi, Hnapp.
Salbjörg Guðmundsdóttir
ljósmóðir á Hamri
í Nauteyrarhreppi, N-Ís.
Ætt Engilberts Ingvarssonar
Salbjörg Jóhannsdóttir
ljósmóðir á Lyngholti í
Snæfjallahreppi, N-Ís.
Á Boðnarmiði yrkir Ólafur Stef-
ánsson og kallar „Smávæmin
heimkomulanghenda“:
Síðan að ég sæll frá borði
sveif, svo naumast snerti tá,
kem ég varla upp köpurorði
en kæra Ísland horfi á.
Tvær limrur eftir Helga Ingólfs-
son:
Að hausti til hitti ég Ólínu
á Hestfjalli, rétt neðan snjólínu.
„Hvað ertu að gera?“
„Ég er búin’ að vera
að útbúa glænýja skólínu.“
Ljóðskaparlistin er fögur,
en laun, sem hún færir, þó mögur.
Það seint bætir haginn
að sitja’ allan daginn
og semja tvær vesælar bögur.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
um málefni líðandi stundar og kall-
ar „Allt í steik“:
Í skugganum skelfur hrísla,
skekin er bankasýsla,
með skott milli lappa
sést skolli vappa
og skýst í holuna mýsla.
Björn Ingólfsson skrifar: „Hér
áður fyrr þegar ég var leið-
sögumaður með gönguhópum í
Fjörðum og á Látraströnd gerðist
það einhvern tíma að tvær konur
fóru að dragast aftur úr og kvört-
uðu yfir því hvað ég væri skreflang-
ur. Ég orti handa þeim stef sem
þær gætu sungið sér til hug-
arhægðar undir laginu Hann var
sjómaður dáðadrengur, ef þetta
gerðist aftur“:
Þarna er leiðsögumaðurinn ljóti,
mig langar að kasta í hann spjóti.
Ef verð ég of sein
þá vel ég mér stein
og hendi í helvítið grjóti.
Enn yrkir Björn; Vítaspyrnu-
keppni:
Fyrr en nokkurn varði Varði
varði spyrnu Sveins í Garði
sem varð til þess að Barði á Barði
barði Stefán Jón á Skarði.
Ármann Þorgrímsson yrkir og er
„Til umhugsunar“:
Aka á nöglum ekki má
ef menn vilja heiminn betri
og sanngjarnt væri að sekta þá
er sumardekkin nota á vetri.
Jón Jens Kristjánsson ykir að
gefnu tilefni:
Á Alþingi voru einlægt er gerður hvellur
ausið af reiðiskálum með glæsibrag
en innanhússheimsmet í heimsku og
leiðindum fellur
hiklaust án atrennu sérhvern einasta
dag
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ljóðskaparlistin er fögur
www.rafkaup.is