Morgunblaðið - 05.05.2022, Page 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022
Óðinn Viðskiptablaðsins sat ný-
verið í strætó og sá mynd af
Degi Eggertssyni á skjá strætó-
skýlis:
- - -
Þar stóð Borgarlínan – klárum
dæmið. Þetta er einhver allra
besta hugmynd sem nokkur stjórn-
málamaður á Íslandi hefur komið
fram með lengi.
- - -
Dæmið um Borgarlínuna er ein-
falt reikningsdæmi, ekki óút-
reiknanlegt eins og lífið og nauðsyn-
legt er, eins og Dagur segir, að
klára það. Þá fyrst fæst rétt niður-
staða.
- - -
Það gengur ekki að fara út í tuga
milljarða framkvæmd, jafnvel
hundraða milljarða framkvæmd án
þess að reikna dæmið til enda. Í
Stafangri í Noregi er þannig verið
að leggja 50 kílómetra borgarlínu
sem nefnist Bussveien.
- - -
Árið 2014 var áætlað að kostn-
aðurinn myndi nema jafnvirði
58 milljarða íslenskra króna.
- - -
Í vor var endurskoðuð áætlun
komin í 206 milljarða.
- - -
Það vekur raunar sérstakar
áhyggjur að í hinum íslensku
útreikningum um stofnkostnað við
Borgarlínu er gert ráð fyrir að lagn-
ing hvers kílómetra hennar nemi 1,2
milljörðum króna, en í samsvarandi
verkefnum frænda okkar í Noregi
er hann á milli 3-4 milljarðar króna.
- - -
Hafa þeir þó á töluverðri reynslu
að byggja í þessum efnum.“
Alóklárað dæmi
STAKSTEINAR
Af 78 apótekum, sem eru í rekstri
hér á landi eru 53, eða rúmlega 68%,
á höfuðborgarsvæðinu. Næst kemur
Norðurland með 8 apótek og 10
útibú. Austurland sker sig síðan úr
með einungis tvö apótek, fimm útibú,
og eina lyfsölu sem rekin er í
tengslum við heilsugæslustöð.
Þetta kemur fram á heimasíðu
Lyfjastofnunar. Á Suðurlandi voru
um áramótin fimm apótek, fimm
útibú og tvær lyfsölur sem eru rekn-
ar í tengslum við heilsugæslustöð. Á
Vesturlandi og Vestfjörðum voru
fimm apótek, fimm útibú og ein lyf-
sala sem er rekin í tengslum við
heilsugæslustöð. Á Suðurnesjum
voru fimm apótek og þrjú útibú.
Í lok síðasta árs voru Lyfja hf. og
Lyf og heilsa hf. stærstu apóteks-
keðjurnar, Lyfja með 22 apótek og
Lyf og heilsa með 27 apótek í rekstri.
Tvær aðrar keðjur sem hvor um sig
hafa þrjú apótek í rekstri eru starf-
andi í landinu, annars vegar Lyfjaval
ehf., hins vegar Lyfsalinn ehf. Lyfja-
val og Lyfsalinn eru í eigu sama að-
ila.
Fram kemur einnig á heimasíð-
unni að heildarfjöldi lyfjaávísana
hefur aukist stöðugt milli ára, þótt
aukningin hafi verið að jafnast út síð-
astliðin ár. Árið 2021 markaði mestu
aukningu milli ára síðastliðin fimm
ár og voru lyfjaávísanir þá rúmar 4,3
milljónir talsins.
68% apóteka á höfuðborgarsvæði
- 4,3 milljónir lyfjaávísana gefnar út
Lyf 78 apótek eru rekin á Íslandi.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Baðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15
Læknir hefur verið ákærður af lög-
reglustjóranum á Vestfjörðum fyrir
ofbeldi og hótanir yfir sjö ára tímabil
í garð eiginkonu sinnar. Hann er
m.a. sagður hafa hótað henni lífláti,
en nokkur brotanna ná til tímabils
þegar konan var ólétt. Þá er mað-
urinn einnig ákærður fyrir líkamlegt
og andlegt ofbeldi gegn þremur
dætrum þeirra yfir sama tímabil.
Í umfjöllun RÚV um málið er
greint frá því að maðurinn sé lækn-
ismenntaður. Gylfi Ólafsson, for-
stjóri Heilbrigðisstofnunar Vest-
fjarða, staðfesti við mbl.is að
læknirinn hefði unnið þar, en ekki
síðan 2013 nema í undantekningar-
tilvikum, síðast árið 2020.
Í ákærunni kemur m.a. fram að
læknirinn hafi hótað eiginkonunni
lífláti með því að gefa henni of mikið
insúlín með fjarstýringu sem stýrir
inngjöf, en ljóst er af lestri ákær-
unnar að konan hafi verið sykursjúk.
Þá hafi hann einnig hótað henni að
hann myndi lesa öll gögn um hana í
sjúkraskrá.
Fram kemur í ákærunni að mað-
urinn hafi beitt konuna ofbeldi þegar
hún var ólétt með því að hrinda
henni í gólfið, þrýsta hné í maga
hennar og þrengja að hálsi hennar.
Fékk hún af þessu maráverka, en
maðurinn er sagður hafa hótað henni
lífláti ef hún færi út af heimilinu án
hans fylgdar í nokkra daga eftir at-
vikið.
Þá er hann sagður hafa þvingað
hana í eitt skipti til heimilisverka og
neitað henni um aðstoð þegar hún
var fótbrotin og kvalin. Hann hafi
hins vegar beitt hana í staðinn and-
legu og líkamlegu ofbeldi og hrækt á
hana og sparkað í síðu hennar. Í ann-
að skipti hafi hann niðurlægt hana
með því að hafa bannað henni að
þrífa upp maís sem konan hafði
misst á gólfið, en þvingað hana til að
borða maísinn af gólfinu.
Læknir beitti of-
beldi og hótunum
- Hótaði eiginkonu sinni lífláti
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ísafjörður Læknirinn starfaði á
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.