Morgunblaðið - 05.05.2022, Page 16

Morgunblaðið - 05.05.2022, Page 16
BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Fyrir dyrum stendur niðurrif fjöl- margra bygginga á Ártúnshöfða í Reykjavík. Þessar byggingar, að- allega iðnaðar- og verslunarhús, eiga að víkja fyrir fjölmennri íbúðabyggð á næstu árum. Í framhaldi af umfjöllun Morg- unblaðsins á dögunum um Rauða braggann við Elliðaárvog og nið- urrif hans vakti glöggur lesandi, Baldur J. Baldursson innanhúss- arkitekt, athygli blaðsins á því að nú stefndi í að annar og merkilegur braggi verði látinn víkja fyrir nýju íbúðahverfi á Ártúnshöfða. Þetta er Hálogalandsbragginn, íþrótta- braggi, sem upphaflega nefndist Andrews Memorial Field House, og var reistur af bandaríska hern- um og vígður í nóvember 1943, í seinni heimsstyrjöld. Húsið var vagga handboltans Í þessu húsi stóð vagga hand- boltans um áratuga skeið og í hús- inu voru Íslandsmót í handbolta og körfubolta haldin. Margir eldri Ís- lendingar muna eftir Hálogalandi og minnast hússins með hlýju. Hálogalandsbragginn stóð við Suðurlandsbraut, u.þ.b. þar sem gatnamót Gnoðavogs og Skeiða- vogs eru í dag. Á hernámsárunum var þarna stórt herskálahverfi, Camp Hálogaland. Bragginn var tekinn niður árið 1970 og miðhluti hans endurreistur við Eirhöfða 11 árið 1972 af Vatnsveitu Reykjavík- ur en lægri hliðarbyggingum, með- fram báðum langhliðum Háloga- landsbraggans, var fargað. Hin nýja bygging var bæði lægri og mjórri en gamla íþróttahúsið. Und- irstöður voru steyptar, grindin var úr stáli og klæðningin var báru- járn. Tveimur árum áður hafði Vatns- veita Reykjavíkur reist annan bragga með sams konar formi og stendur hann austan við hinn. Þar er um að ræða annað sögufrægt stálgrindarhús, en það var eitt sinn gamla Hafnarsmiðjan, sem stóð í Múlakampi. Bil var á milli bragganna og nokkrum árum síðar (1987) reisti Vatnsveitan skemmu á milli húsanna og var hún með öðru lagi. Arkitekt bygginganna var Magnús Skúlason. Eftir að Vatnsveita Reykjavíkur (sem nú heitir Orkuveita Reykja- víkur) hætti að nota braggana hafa þeir þjónað annarri starfsemi til þessa dags. Nú síðast voru bílasöl- ur með starfsemi í húsunum en þær eru nú fluttar á Klettsháls. Byggingarnar standa nú ónotaðar á lóðinni og bíða niðurrifs. Í skýrslu Borgarsögusafns frá árinu 2021 segir svo um Háloga- landsbraggann: „Fyrsta húsið sem hét Háloga- land var íbúðarhús byggt 1930 þar sem nú er bílastæði á milli blokk- anna Sólheima 25 og 27. Á þeim tíma, fyrir seinni heimsstyrjöldina, var þetta svæði austan þéttbýlis Reykjavíkur og sóttust ein- staklingar sem vildu stunda rækt- un og búrekstur eftir að búa þar. Húsið brann árið 1972. Árið 1940 var hluti Laugardals og nærliggjandi svæða leigður her- námsliði Breta og síðar Banda- ríkjamanna. Þar risu heilu bragga- hverfin og einnig stór skáli sem setuliðið notaði sem íþróttahús, bíó og samkomusal. Skálinn var nefnd- ur Andrews Memorial Field House í minningu Frank M. Andrews hershöfðingja, sem fórst í flugslysi við Fagradalsfjall á Reykjanesi 1943. Í daglegu tali var skálinn kallaður Hálogaland. Skálinn var vígður í nóvember 1943. Á stríðsárunum stunduðu amer- ískir hermenn körfubolta og aðrar íþróttir í Hálogalandi og lánuðu húsið einnig íslenskum íþrótta- félögum. Jafnframt voru haldnar í húsinu ýmsar samkomur. Í sept- ember 1944 hélt söng- og leikkonan Marlene Dietrich til að mynda tón- leika fyrir bandaríska hermenn og gesti þeirra í húsinu og einnig mun gamanleikarinn Bob Hope hafa komið þar fram á skemmtun um svipað leyti. Í styrjaldarlok keypti Íþrótta- bandalag Reykjavíkur skálann af setuliðinu og var hann eftir það kallaður Hálogaland. Húsið varð nú miðstöð handknattleiks í land- inu og vettvangur allra helstu kappleikja innanhúss fram til 1965, þegar Laugardalshöll tók við því hlutverki. Á tímabili var Háloga- land einnig íþróttahús Vogaskóla og notað undir guðsþjónustur fyrir Langholtssöfnuð.“ Það er mat Borgarsögusafns í húsakönnun að byggingin Eirhöfði 11 (áður Breiðhöfði 13) hafi miðl- ungs varðveislugildi. Hún sé hluti af heild iðnaðarhúsa sem eru óvenjuleg, bæði vegna sögulegs gidis og sérstakrar samsetningar í byggingastíl. Í sögu handknattleiksins á Ís- landi, sem Steinar J. Lúðvíksson rithöfundur og blaðamaður skráði, kemur fram að Íþróttabandalag Reykjavíkur hafi keypt Hálogaland af Sölunefnd varnarliðseigna í febrúar 1945 og fengið það til af- nota 1946, að stríðinu loknu. „Sá galli var á gjöf Njarðar við kaupin á Hálogalandi að ÍBR átti ekki peninga til þeirra,“ skrifar Steinar. „Kaupið bara kofann strákar“ Gísli Halldórsson, síðar forseti ÍSÍ, var þá orðinn einn af íþrótta- leiðtogum í borginni. Hann segir svo frá í bókinni Íþróttir í Reykja- vík að áður en gengið var frá kaup- unum hafi hann og Gunnar Þor- steinsson, formaður ÍBR, farið á fund Ólafs Thors, forsætisráðherra og yfirmanns Sölunefndar varn- arliðseigna. Þeir hafi greint Ólafi frá því að líklegt mætti telja að ÍBR myndi lenda í erfiðleikum með að standa skil á kaupverðinu svo fremi sem ekki fengjust tilslakanir. Segir Gísli að Ólafur hafi þá sagt við þá: „Kaupið bara kofann strák- ar, hann verður aldrei tekinn af ykkur.“ Tókust menn síðan í hend- ur og með þessi orð Ólafs Thors í huga hafi síðan verið skrifað undir kaupsamninginn. Hálogaland Braggi sem ameríski herinn reisti á stríðsárunum. Hann var um áratuga skeið miðstöð inniíþrótta í Reykjavík. Inn í teiginn Það var ætíð fjör á fjölum Hálogalands á hand- boltaleikjum. Takið eftir því hve áhorfendur stóðu nálægt. Fullt út úr dyrum Hin heimsfræga söng- og leikkona Marlene Dietrich hélt tónleika fyrir hermennina í september 1944. „Hálogaland“ rifið í annað sinn - Hinn sögufrægi íþróttabraggi við Suðurlandsbraut var rifinn 1970 - Efni úr honum var notað þeg- ar Vatnsveitan reisti vöruskemmu á Ártúnshöfða - Nú þarf sú bygging að víkja fyrir íbúðarhúsum Morgunblaðið/sisi Bíður niðurrifs Húsið Eirhöfði 11 eins og það lítur út í dag. Nær á myndinni er bragginn sem reistur var úr efni frá Hálogalandi. Á seinni árum var byggt fyrir framan við húsið og þarna var bílasala síðast með starfsemi. Fjær má sjá braggann sem eitt sinn var gamla Hafnarsmiðjan, sem stóð í Múlakampi. Hálfleikur Fólk stóð gjarnan fyrir utan Hálogaland og fékk sér smók. 16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022 KRINGLAN - SKÓR.IS 20 KRINGLUKAST AFSLÁTTUR AF % ÖLLUM SKÓM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.