Morgunblaðið - 05.05.2022, Page 21

Morgunblaðið - 05.05.2022, Page 21
að líta til þess að það er svakaleg skuldbinding að takast á við verkefni, þetta getur kostað nokkur ár af lífi þínu, jafnvel bara fyrir stuttmynd. Þetta snýst um að taka hlutina föst- um tökum, byrja að fjármagna, gera allar áætlanir um tímalínu, íhuga hvernig við getum gert sem mest úr efniviðnum, engin bíómynd er betri en handritið að henni þótt auðvitað megi ræða það á marga vegu,“ segir Hlín. Handritið sé það sem öllu máli skipti í hennar heimi og þar ríði á að gera því sem best skil. „Svo þarf að fara í fjármögnun, styrki og annað, og þegar það er komið er fyrst hægt að hugsa um að fara að framleiða fyr- ir alvöru. Svo þarf að koma öllu dæm- inu í gang þar til myndin lítur dags- ins ljós, þar á milli er til dæmis allt tökutímabilið,“ segir Hlín með slík- um áherslum að blaðamaður kóf- svitnar yfir bolla af kólnandi Nes- kaffi. Stemmning á setti lykilatriði Eru framleiðendur þá alltaf hang- andi á staðnum, sitjandi inni í ein- hverri rútu með kaffi og kex og bíð- andi eftir tökum, forvitnast blaðamaður um, minnugur þess er hann lék smáhlutverk í hinum og þessum kvikmyndum íslenskum sem mest snerust um bið og meiri bið, misheppnaðar tökur, blæbrigði í orðavali og stirðlynda leikstjóra. „Já, það þarf alltaf einhver að vera á staðnum fyrir hönd framleiðanda en kannski ekki alltaf sjálfur fram- leiðandinn. Það fer aðeins eftir því hve stórt „budget“ maður er með hve mikil nærveran er en framleiðslu- stjóri ber í raun ábyrgð á því að allt gangi smurt kringum alla framvindu og grundvallaratriði að gæta þess að ekki sé farið fram úr kostnaðar- áætlun. Þetta er mikið ábyrgðarstarf en fyrir þá sem finna sig í þessu er þetta líka svakalega ávanabindandi, það er svo margt sem er svo stór- kostlegt í þessum pakka sem ég og kollegar mínir sinnum við það að framleiða, þetta er rosalega skapandi vinna, framleiðandinn er svo stórt skapandi „element“ í hverju verki, við vinnum náið með leikstjóranum við það að lenda því hvernig útkoman verður og að stóru leyti á okkar ábyrgð að tengja saman listræna teymið, fagfólkið, sem kemur að kvikmyndaverkinu,“ segir Hlín „En vissulega er mikið kaffi, kex og langar setur falið í þessu, þannig er nú það,“ bætir hún við. „Þá er lykilmál að stemmning sé góð á setti og að allir finni að störf þeirra séu virt. Biðin snýst um að bregðast við á réttum tíma, þú mátt aldrei missa einbeitingu – sama hver þú ert í teyminu.“ Hlín kveður kvikmyndagerð enda vera teymisvinnu frá a til ö og spurð um allt fagfólkið sem skuli tengja saman ásamt leikstjóra nefnir hún meðal annars kvikmyndatökuna, leikmynd, búningahönnuði, ljós og „grip“, förðun, hljóð, klippara, tón- skáld og alla tæknilega eftirvinnslu. „Keðjan er aldrei sterkari en veikasti hlekkurinn, við treystum á alla í þessu ferli og framleiðandinn á að leiða allt þetta fólk áfram. Maður les handrit og maður hugsar með sér „vá, hvað þetta á erindi til einhverra áhorfenda eða er líklegt til að vekja einhver hughrif, snerta við fólki eða breyta lífi þess“, það er þetta sem maður er að gera, þetta er mark- miðið,“ segir Hlín. Frestun eða „íslenska leiðin“ Við færum okkur yfir í nýlegt verkefni Hlínar, kvikmyndina Skjálfta sem hún er beðin um að segja örlítið frá. „Það var ofsalega fallegt og gott ferðalag og ég vil nefna sérstaklega Tinnu [Hrafns- dóttur], handritshöfund og leikstjóra myndarinnar. Einhvern veginn gengu hlutirnir alltaf upp hjá okkur og það var bara eitthvert ljós yfir þessari mynd. Við tókum ákvörðun um það í apríl 2018 að fara í þetta verkefni og þá var endalaus vinna fram undan, að klára að vinna í hand- riti og svo margt fleira,“ segir Hlín. Þær Tinna hafi fengið styrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands og þá hafi tekið við vinna við að fá erlenda samframleiðendur að gerð mynd- arinnar. „Við fengum að lokum enga erlenda styrki og stóðum þá frammi fyrir því að fresta gerð myndarinnar eða fara það sem við köllum „íslensku leiðina“, að tala við fyrirtæki og fjár- festa hérna heima og leggja sjálfar launin okkar inn í þetta og gera þetta eins vel og við getum fyrir það fjár- magn sem við getum græjað núna,“ segir Hlín frá. Þær Tinna hafi þá svitnað blóði sínu við að koma Skjálfta á koppinn og naumlega náð að klára tökur við upphaf kórónuveirufaraldursins. „Við sluppum fyrir horn, myndin var búin í tökum fyrir Covid,“ segir Hlín. Hún kveður framleiðanda helst ekki eiga að taka að sér verkefni nema hann nái góðu sambandi við efnivið- inn og skilji það sem þar er fjallað um. „Ég á systur sem er flogaveik og ég man alveg eftir því úr barnæsku þegar hún var fjólublá í framan og froðufellandi við hliðina á mér,“ segir framleiðandinn um sitt nýjasta af- kvæmi á breiðtjaldinu, kvikmyndina Skjálfta. Næsta kvikmynd er að hennar sögn á lokametrunum, Á ferð með mömmu, eftir handriti og í leikstjórn Hilmars Oddssonar og fjallar um Jón sem leggur upp í ferðalag með uppá- klætt lík móður sinnar í aftursætinu. „Það er búið að vera ævintýralegt verkefni að framleiða og stefnir í kvikmynd sem maður á eftir að verða stoltur af,“ segir Hlín Jóhannesdóttir kvikmyndaframleiðandi að skilnaði og bætir við að líklega muni hún starfa við framleiðslu kvikmynda það sem hún á eftir af starfsævinni, enda, eins og hún segir frá í viðtalinu, sé þar á ferð svakalega ávanabindandi starf. Og þá vitum við loksins hvað þessir framleiðendur gera. Ljósmynd/Liisabet Valdoja Lík Kristbjörg Kjeld og Þröstur Leó Gunnarsson í hlutverkum sínum. FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022 Viltu verða öruggur hlekkur í alþjóðlegu aðfangakeðjunni? AEO er alþjóðleg gæðavottun sem felur í sér að fyrirtæki er talið vera öruggur hlekkur í aðfangakeðjunni, hefur tileinkað sér ábyrga tollmeðferð og uppfyllir kröfur um alþjóðlega vöruflutninga. Markmiðið er að tryggja samkeppnishæfni íslensks inn- og útflutnings, stuðla að bættu markaðsaðgengi íslenskra útflutningsgreina og greiða fyrir lögmætum viðskiptum. Fyrirtæki semerumeð starfsemi hér á landi og eruhluti af alþjóðlegu aðfangakeðjunni geta sótt um vottunina: Inn- og útflytjendur, framleiðendur, farmflytjendur, toll- og skipamiðlarar. Ávinningurinn felstmeðal annars í hraðari tollafgreiðslu,minni tilkostnaði, auknum fyrirsjáanleika í vöruflutningum og viðurkenningu tollyfirvalda í öðrum ríkjum. Nánari upplýsingar veitir Elvar Örn Arason, umsjónarmaður AEO, í gegnum tölvupóst elvar.o.arason@skatturinn.is eða í síma 894 2409. Tryggvagata 19, 101 Reykjavík, aeo@skatturinn.is Fyrirtæki sem er þátttakandi í alþjóðlegu aðfangakeðjunni getur sótt um að verða viðurkenndur rekstraraðili (AEO) hjá Skattinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.