Morgunblaðið - 05.05.2022, Síða 22
22 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Byggingarheimildir eru alltaf
verðmætar en í þessum tilvikum
eru þær það ekki síst út frá stað-
setningunni og
út frá sögunni.
Við verðum að
leyfa okkur að
tala um söguna
sem verðmæti,“
segir Borghildur
Sölvey Sturlu-
dóttir, arkitekt
og deildarstjóri
deiliskipulags-
áætlana hjá um-
hverfis- og skipulagssviði
Reykjavíkurborgar.
Um þessar mundir er unnið að
því að skrá sögu lóða sem nýttar
hafa verið undir bensínstöðvar í
Reykjavík um áratugaskeið. Sem
kunnugt er hefur verið ákveðið að
fækka bensínstöðvum í borginni
og áformað er að brotthvarf
þeirra muni styðja við áform borg-
arstjórnar um að þétta byggð á
næstu árum. Borghildur segir að
umrædd skráning sé hluti af vinnu
við deiliskipulag umræddra lóða
og tekur hún bæði til lóðanna
sjálfra og bensínstöðvabygging-
anna. Þannig má búast við að sér-
staklega verði horft til varðveislu-
gildis bensínstöðvanna við
Ægisíðu 102, við Skógarhlíð 16 og
við Laugaveg 180.
Fundahöld um verndun
Samkvæmt upplýsingum frá
Minjastofnun er varðveisla bens-
ínstöðva til skoðunar þar á bæ og
hafa farið fram fundahöld, meðal
annars með starfsmönnum borg-
arinnar og eigendum olíufélaga
sem eiga umræddar lóðir. Ekki
hefur þó verið sett af stað form-
legt friðlýsingarferli. „Minja-
stofnun Íslands er að móta stefnu,
meðal annars um vernd ýmissa
svokallaðra yngri minja, og í því
samhengi hefur verið rætt um
verndun bensínstöðva meðal ann-
ars við eigendur olíufélaganna,“
segir Henny Hafsteinsdóttir,
minjavörður Reykjavíkur og ná-
grennis. „Bensínstöðvar eru flokk-
ur bygginga sem hefur átt nokkuð
undir högg að sækja þegar kemur
að verndun menningararfs. Í þeim
flokki eru nokkrar listrænar perl-
ur, hannaðar af virtum arkitekt-
um, og það væri í raun synd fyrir
samfélagið og menningu okkar ef
sá hluti byggingararfsins hyrfi al-
veg,“ segir Henny enn fremur.
Borghildur Sölvey segir að
byggt sé á skráningu sem gerð
var árið 2012 en lóðir bensínstöðv-
anna og byggingarnar séu eins
ólíkar og þær eru margar. „Eitt
er að skoða söguna og húsin sjálf
og annað að skoða hvaða mögu-
leikar eru í kringum þessar lóðir.
Við undirbúning að gerð deili-
skipulags ber okkur að vanda til
verka enda er hann kjarninn að
því sem verður við gerð þess. Í
deiliskipulaginu eru vissulega
skoðuð bílastæði, hæð húsa og
slíkt en undanfari þess er oft
greiningarvinna sem þessi. Við
þurfum bæði að vita hvaðan við
komum og hvert við erum að
fara.“
Mikilvægir reitir í borginni
Hún segir aðspurð að þessi
vinna sé hluti af undirbúningi fyr-
ir frekari uppbyggingu lóðanna en
vinna sem þessi taki sinn tíma.
Borghildur starfaði um þriggja
ára skeið í stjórnsýslunni í Árós-
um í Danmörku og segir reynslu
sína þaðan styðja að uppbygging
sem þessi sé flóknari en bara lóð í
uppbyggingu. „Ég er vel meðvituð
um að þetta eru lóðir sem aðrir
eiga og vilja halda áfram með en
þétting byggðar er ekki venjuleg
úthlutun lóða. Þetta eru staðir
sem hafa fjórar framhliðar. Við
erum að halda áfram að byggja
upp borg og þá eru reitir sem
þessir mikilvægir. Við þurfum að
gefa þeim þann tíma sem þarf og
stíga örugg og góð skref.“
Bakarí og ísbúðir taka við
Bensínstöðvarnar á höfuðborg-
arsvæðinu eru gjarnan í miðjum
hverfum og eftir því sem dregið
hefur verið úr þjónustu síðustu ár
og sjálfsafgreiðsla tekið við hafa
ýmsir séð sér leik á borði og tekið
þær undir annars konar starfsemi.
Þannig er nú hægt að kaupa sér
brauð og kökur í gegnum bílalúgu
á einum stað, hjólabúð er rekin á
öðrum stað, ísbúð á enn einum
auk veitingastaða. Góð nýting þar
til framtíðaráform verða að veru-
leika ef ekki framtíðin sjálf. „Það
er ákveðin fegurð í þessu, svona
vill maður að svæði gangi í end-
urnýjun lífdaga,“ segir Borghild-
ur.
„Það þarf ekki alltaf bara að
vera niðurrif og byrja upp á nýtt.
Ég fagna því frumkvæði að fólk
fái tækifæri til að máta ýmislegt
inn, í einhvern tíma að minnsta
kosti, og vildi óska að við skoð-
uðum hvernig best er að þróa
þessi svæði áfram. Það eru alltaf
svæði í bakgarðinum sem vert er
að halda í.“
Morgunblaðið/Eggert
Ægisíða Guðmundur Kr. Kristinsson og Ferdinand Alfreðsson teiknuðu bensínstöðina og bílaverkstæði
árið 1977. Byggingin og skyggnið fallega er farið að láta á sjá enda hefur viðhaldi ekki verið sinnt.
Morgunblaðið/Eggert
Skógarhlíð Þór Sandholt hannaði stöðina við Skógarhlíð sem opnuð var á sjötta áratugn-
um. Í dag eru þar dælur Orkunnar fyrir utan en í framhúsinu er afgreiðsla smurstöðvar.
Bensínstöðvar í borginni í biðstöðu
- Varðveisla fornfrægra bensínstöðva í borginni til skoðunar - Listrænar perlur hannaðar af virt-
um arkitektum - Vanda til verka - Bensínstöðvar nú nýttar undir bakarí, veitingastaði og ísbúðir
Morgunblaðið/Eggert
Laugavegur Þór Sandholt hannaði þessa, rétt eins og stöðina í Skógarhlíð, en skyggninu hefur verið breytt.
Borghildur Sölvey
Sturludóttir
www.gilbert.is
KLASSÍSKT OG STÍLHREINT
GILBERT LIBERATOR