Morgunblaðið - 05.05.2022, Side 61
DÆGRADVÖL 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021
sjómaður. Þau áttu heima á Seyðis-
firði. Fyrri eiginmaður Bóthildar er
Skúli Jóhannsson, f. 8.9. 1948, verk-
fræðingur. Þau skildu árið 1989.
Börn Bóthildar og Skúla eru: 1)
Einar, f. 22.9. 1971, býr í Reykjavík
og starfar í nýsköpun og gönguleið-
sögn. Synir Einars eru Gabríel
Gauti, f. 1996, Steinn Ingi, f. 2001, og
Emil Skúli, f. 2003; 2) Hákon, f. 24.9.
1973, býr í Reykjavík og er skrif-
stofustjóri hjá Símstöðinni. Maki er
Íris Elfa Þorkelsdóttir, f. 4.3. 1974,
verkefnastjóri í markaðsmálum hjá
Höfuðborgarstofu. Synir þeirra eru
Arnór, f. 2004, og Dagur, f. 2009; 3)
Sigrún Huld Sigrúnar, f. 18.8. 1979,
listaman, býr í Reykjavík. Sonur
hennar er Flóki, f. 2012.
Sammæðra bræður Bóthildar eru
Þórir Þorsteinsson, f. 6.1. 1945, d.
30.5. 1993, sjómaður, bjó lengi á Pat-
reksfirði og víðar; Viðar Magnússon,
f. 7.4. 1952, d. 5.11. 2003, fram-
kvæmdastjóri, bjó á Akranesi;
Ásgeir Halldór Magnússon, f. 13.10.
1953, eftirlaunaþegi, býr á Seyðis-
firði; Skúli Magnússon, f. 2.9. 1956,
starfar að leikmyndagerð, býr í Nor-
egi; Þorsteinn Magnússon, f. 23.4.
1962, rekur gistihús og býr í Stykk-
ishólmi. Samfeðra systkini Bóthildar
eru Ingimar Kristján Steinþórsson,
f. 27.9. 1954, lærður húsasmiður, býr
á Akranesi; Guðný Jódís Steinþórs-
dóttir, f. 13.5. 1957, stundar versl-
unarstörf, býr í Reykjavík; Sólveig
Steinþórsdóttir, f. 18.9. 1959, sjúkra-
þjálfari, býr í Reykjavík; Rannveig
Steinþórsdóttir, f. 5.12. 1967, lista-
maður, býr í Finnlandi.
Móðir Bóthildar var Hulda Svein-
björg Þórisdóttir, f. 29.12. 1924, d.
7.12. 2012, vann sem ráðskona víða,
lengst þó í Hvalfirði og Reykjavík.
Hulda giftist 1951 Magnúsi Marías-
syni, f. 15.1. 1912, d. 12.1. 2004 stöðv-
arstjóra olíustöðvarinnar í Hvalfirði,
Magnús var uppeldisfaðir Bóthildar.
Faðir Bóthildar var Steinþór Bjarni
Ingimarsson, f. 27.10. 1925, d. 18.4.
2015, bifvélavirki á Akranesi. Ekkja
Steinþórs er Nína Ólafsdóttir, f. 9.6.
1935.
Bóthildur
Steinþórsdóttir
Guðbjörg Jóhannsdóttir
húsfreyja á Glammastöðum
Jón Þorsteinsson
bóndi á Glammastöðum í Svínadal,
Hvalfjarðarstrandarhreppi
Bóthildur Jónsdóttir
húsfreyja á Akranesi
Ingimar Kristján Magnússon
húsasmíðameistari á Akranesi
Steinþór Bjarni Ingimarsson
bifvélavirki á Akranesi
Steinunn Magnúsdóttir
vinnukona á Eyri í Mjóafirði
Magnús Manilíus Brynjólfsson
vinnumaður á Eyri í Mjóafirði,
N-Ís., síðar í Arnardal í Skutulsfirði
Þorbjörg Jónasdóttir
húsfreyja í Blikalóni
Daníel Illugason
bóndi í Blikalóni á Melrakkasléttu
Jóhanna Þórey Daníelsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Þórir Þorsteinsson
verkstjóri í Reykjavík
Sveininna Soffía Skúladóttir
húsfreyja á Litlu-Reykjum
Þorsteinn Ágúst Jónsson
bóndi á Litlu-Reykjum
í Reykjahverfi, S-Þing.
Ætt Bóthildar Steinþórsdóttur
Hulda Þórisdóttir
ráðskona á Akranesi
„VILTU HÆTTA AÐ GALA „LAND Á
STJÓRNBORÐA“ ÞEGAR VIÐ LIGGJUM VIÐ
BRYGGJU?!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að átta sig ekki alltaf
á tilfinningum sínum.
ÉG KREFST
VIRÐINGAR!
HÉR ER
SMÁKAKA
ENN
BETRA
JÁ!
„ÉG GET EKKI UPPLÝST HVERNIG ÉG
KOMST YFIR FLÖSKUNA. SEM BLAÐAMAÐUR
VERÐ ÉG AÐ GÆTA TRÚNAÐAR.“
GRÁSLEPPAN
ERU RISASTÓRAR LÚÐUR HÉR
UM SLÓÐIR?
Sverrir Kristinsson sendi mér
póst þar sem segir: „Með þess-
um pósti fylgir vísan sem ég fór
með fyrir þig í gær. Ég rakst á mið-
ann með vísunni í sálmabók sem
prentuð var á Hólum í Hjaltadal ár-
ið 1751. Þessi bók var áður í bóka-
safni Jóns Trausta (Guðmundar
Magnússonar, 1874-1918).
Ef draugar kynnu að drekka vín
oss datt í hug að minnst þín
sem hjartað áttir hlaðið kurt
og hressa líka gamla Surt.
Við skildum eftir fulla flösku og fórum
burt.
Ólafur Stefánsson yrkir „Flug-
freyjuvísu“:
Til Íslands með úrvals-„staffi“
- alúðin hlý og rík –
þær bera fram Bragakaffi
og baguette from KEF-lavík.
Ingólfur Ómar Ármannsson yrk-
ir á feisbók:
Er ég legg í langa ferð
laus úr jarðlífsþófi
Drottni mínum dyggur verð
og drekk þá bara í hófi.
Þegar ég af foldu fer
frjáls úr heljardíki.
Góða tilferð gefðu mér
Guð að himnaríki.
Jón Jens Kristjánsson skrifar á
Boðnarmjöð: „Breskur þingmaður
hættir þingsetu eftir að upp komst
að hann hefði skoðað klám í
vinnunni. Kveðst hann hafa ætlað
að skoða dráttarvélar en lent í fyrr-
greindum ógöngum.“
Virðist sá maður virtur af fám
og vændur um saurugt hugarþel
sem að opnaði óvart klám
en ætlaði að skoða dráttarvél.
Hjörtur Benediktsson yrkir þar
sem „garðyrkjunámið verður
áfram á Reykjum“:
Garðyrkjubrautir nú beinar
og burtu af götunni steinar
því kippti í lag
kappinn í dag
ráðherrann Ásmundur Einar.
Kristján H. Theodórsson telur
brýnt að fóðra þá sem feitir eru fyr-
ir:
Vaxtafíknum færa má,
feita sneið af köku.
Sveitarlimir svelta þá,
og safna ei undirhöku.
Hallmundur Kristinsson kveður:
Er frá þingi ýmsu streymt,
eftir gamla siðnum.
Vonandi öllu verður gleymt
að vikum tveimur liðnum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af draugum, víni og
dráttarvélum