Morgunblaðið - 20.05.2022, Page 4

Morgunblaðið - 20.05.2022, Page 4
Lesendur Smartlands eru smekkfólk upp til hópa sem hefur góða tilfinningu fyrir efn- um, sniðum og formum. Á dögunum völdu þeir best klæddu manneskju landsins. Íbúar fríríkisins Smartlands fá ekki rík- isborgararétt nema þeir hafi eitthvað til málanna að leggja og vandi sig þegar kemur að klæðaburði. Íbúar fríríkisins vita að fólk getur notað klæðaburð til þess að klifra upp metorðastigann og hvað skilar árangri þegar föt og frami eru annars vegar. Marta María Winkel Jónasdóttir mm@mbl.is Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri Hann er alltaf flottur í tauinu og hef- ur augljóslega áhuga á fötum og stíl. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri Lesendur eru hrifnir af Ásthildi og hennar fatastíl og raðaði hún inn tilnefn- ingum. Hún hefur vandaðan og klassískan smekk og er listamaður í að velja saman liti, raða saman eftir efnum og áferð. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Lesendur voru sammála um að Hildur hefði sýnt alla pallettuna frá Pantone í kosn- ingabaráttunni. Bláa dragtin, límónugræna dragtin og bleika skyrtan og allir kjól- arnir hittu í mark. Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður Þessi kona kann að nota liti og er alltaf með puttana á púlsinum. Les- endur voru sammála um að hún væri alltaf óaðfinnanlega klædd hvort sem hún væri í heimafötum eða í ballkjól. Árni Matthíasson, rithöfundur og tæknitröll Hann hefur aldrei sést öðruvísi en í svartri skyrtu og í svörtum buxum. „Svarta skyrtan fer aldrei úr tísku,“ sagði einn af lesendum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ásgeir Jónsson.Andrea Magnúsdóttir. Árni Matthíasson. Morgunblaðið/Eggert Best klæddu íbúar Smartlands Anna Fríða Gísladóttir. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hildur Björnsdóttir. Morgunblaðið/Eggert Lilja Alfreðs- dóttir er hér í kjól frá Yeoman. Ásthildur Sturludóttir. 5 SJÁ SÍÐU 6 4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.