Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 6
það sem hinir sjá ekki og kemur stöðugt á óvart þegar
föt og smekklegheit eru annars vegar.
Ellen Loftsdóttir stílisti
„Hún er töffari.“
Stefán Svan Aðalheiðarson
fatahönnuður í Stefánsbúð
Hann er litríkur og flottur. Það er alltaf eitthvert líf
í því sem hann setur saman.
Birgir Jónsson, forstjóri Play
Rokkarinn sem varð forstjóri myndi aldrei láta sjá
sig í tvíhnepptum jakkafötum og lakkskóm. Þrátt fyr-
ir það nær hann að klæða sig í samræmi við starfið,
aldrei of glerfínn en hann strokar ekki yfir fortíðina.
Það er alltaf smá rokk til staðar þótt hann sé í
skrifstofufötum.
Guðmundur Birkir Pálmason kírópraktor
Hann dýrkar merkjavörur og þorir að nota
munstur við munstur og það er ekkert of mikið
þegar hann er annars vegar. Er það ekki allt í lagi
ef fólk á fyrir salti í grautinn og borgar leiguna á
réttum tíma?
María Sigrún Hilmarsdóttir fréttamaður
Hún er hrikaleg klassapía og alltaf flott.
Marentza Poulsen.
Morgunblaðið/Eggert
Birgir Jónsson.
Ásdís Kristjánsdóttir, oddviti
Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi ,þykir smart.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ellen Loftsdóttir.
Stefán Svan
Aðalheiðarson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/Árni SæbergMorgunblaðið / Hari
Guðmundur
Birkir Pálmason.
María Sigrún
Hilmarsdóttir.
Ljósmynd/Arnór Trausti
Anna Fríða Gísladóttir, markaðsstjóri Play
Það er alveg sama hvert hún er að fara eða hvaðan
hún er að koma – hún er alltaf smart. Það er líka stutt
í brosið sem er náttúrlega besti fylgihluturinn.
Marentza Poulsen smurbrauðsjómfrú
Þessi kona stígur aldrei feilspor þegar kemur að
klæðaburði. Hún er litrík og elegant. Kemur auga á
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022