Morgunblaðið - 20.05.2022, Page 10
tískuslys sem ég hef framið eru nú bara í höndum einhvers
annars. Tískuslysin mín verða oftast til ef ég reyni að elta
eitthver trend og er ekki samkvæm sjálfri mér. Mér finnst
þó að maður eigi frekar prófa eitthvað nýtt og misheppnast
en að sleppa því.“
Hvað myndir þú aldrei fara í?
„Sokka og sandala saman.“
Hvað finnst þér flott á öðrum en myndir aldrei fara í sjálf?
„Örugglega ekkert, ég prófa allt og svo verður rest bara
að koma í ljós.“
Hvað er á óskalistanum?
„Ég sé fram á frábært sólríkt vor berleggja í happy hour.
Ætla ég því að finna mér fallega litríka kjóla og pils.“
Uppáhaldsmerki?
„Ég er ekki mikið í merkjunum en ég er oft dolfallin yfir
fallegum töskum og þar er ég mikill aðdándi Dior, Prada og
Paco rabanne. Ef ég væri að velja út frá fatnaði væru það
Rotate, Yeoman, Stine Goya og Off white.“
Uppáhaldslitir?
„Bleikur og skærgulur.“
Ef peningar væru ekki vandamál, hvað myndir þú kaupa
þér?
„Dior saddle bag og Paco rabanne 1969 tösku.“
Kápan er úr Topshop, galla-
buxurnar Levis, skórnir af Asos
og gleraugun úr Spúútnik.
Elma elskar
skart og glingur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Mér finnst ólýsanlega gaman að
tjá mig í gegnum fatnað. Þegar ég
byrjaði að vinna heima í Covid
reyndi ég ávallt að klæða mig í
eitthvað skemmtilegt svo ég
myndi nú ekki tapa gleðinni.“
Buxurnar og jakkann fékk
Elma í Spúútnik en hæl-
arnir eru frá 38 þrepum.
Buxurnar
fann Elma á fata-
markaðnum við
Hlemm en jakk-
ann í Rauða
krossinum.
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022