Morgunblaðið - 20.05.2022, Side 18

Morgunblaðið - 20.05.2022, Side 18
É g hef alltaf haft sterkar skoð- anir á því hverju ég klæðist. Pabbi minn sagði mér að þegar hann átti eitt sinn að sjá um að velja föt fyrir mig fyrir leikskólann þegar ég var lítil þá neitaði ég að fara í þau og sagði einfaldlega: „Þetta er ekki í stíl“. Ég er sjálfri mér mjög næg og elska að dunda mér við eitthvað með hlaðvarp í eyrunum eða að fara út að ganga með hundinn minn. Á sama tíma finnst mér líka gaman að vera í kring- um fólk og kynnast nýju fólki og ég er mikil fjölskyldumanneskja. Góð og djúp samtöl við aðra, ferðalög og góður mat- ur gefa mér mikið.“ Hvernig er þinn fatastíll? „Ég myndi lýsa fatastílnum mínum sem klassískum og tímalausum í grunninn með dramatísku ívafi þegar mér líður þannig. Ég er mikill tískuun- andi svo mér finnst líka gaman að blanda einhverju nýju við sem ég spotta af tískupöllunum hverju sinni. Fyrir mér er stíll ákveðið listform, ákveðin leið til að tjá mig og minn persónuleika. Það sést oft ut- an á okkur og hvernig við berum okkur hvernig okkur líður.“ Fyrir hverju fellur þú oftast? „Ég dýrka rómantísk hálsmál með pífum. Ég elska ljósa liti sem lýsa aðeins upp skammdegið sem við búum við hér á Íslandi og bjarta liti á vorin og sumrin. Þá er ég líka al- gjör sökker fyrir einhverju ofur dramatísku eins og stórum Lovísa Líf Jónsdóttir fylgist vel með tískunni. Skyrtan og buxurnar eru úr Zöru. Buxurnar keypti hún hér heima en skyrtuna í Zöru í New York í byrjun mars. Morgunblaðið/Árni Sæberg Svart og svalt. Lovísa fellur oft fyrir stórum sólgler- augum. 5SJÁ SÍÐU 20 18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.