Morgunblaðið - 20.05.2022, Page 29

Morgunblaðið - 20.05.2022, Page 29
Klassísk létt mótun með Shiseido Brow InkTrio „Ef þú ert aðdáandi klassískra og stílhreinna augabrúna þá mæli ég með því að nota auga- brúnablýant til að fylla upp í brúnirnar,“ segir Birkir Már Hafberg förðunarmeist- ari og mælir með Brow InkTrio frá Shiseido sem er auga- brúnapensill sem nota má á marg- víslegan hátt. „Pensillinn er örmjór svo hægt er að búa til fallegar strokur í augabrúnirnar á mjög nákvæman hátt. Á öðrum endanum er púðursvampur með lit sem nota má til að ná fram fyllri áferð og einnig greiða sem mótar brúnirnar. Blýanturinn smitast ekki og endist mjög vel,“ segir hann. „Laminated“ augabrúnir með Gosh Brow Lift „Í dag tröllríða „laminated“ augabrúnir förð- unarheiminn! Ef þú ert að leita að augabrúnageli sem framkallar þetta „look“ þarftu að prófa Brow Lift frá Gosh. Þetta augabrúnagel gefur þér samstundis lyft- ingu og haggast ekki. Þú finnur greiðu í tappanum sem hjálpar þér að greiða vel úr hárunum og festa þau niður. Gelið er veg- an og án ilmefna og hentar því vel fyrir alla,“ segir Birkir Már. Einfalt og fljótlegt með Chanel Stylo Sourcils Waterproof Defining Longwear Eyebrow Pencil Ertu að leita að blýant sem fyllir upp í brún- irnar á einfaldan og fljótlegan hátt? Þá er þessi augabrúnablýantur frá Chanel full- kominn fyrir þig! Blýanturinn er ská- skorinn og því mjög auðveldur í notk- un. Formúlan er einstaklega litsterk og greiðan á öðrum enda býantsins blandar litinn og greið- ir vel úr hárunum. Blýanturinn er vatns- heldur og endist allan daginn. Aflitaðar augabrúnir Clarins Everlasting Concealer „Aflitaðar augabrúnir eru nokkuð sem við sjáum af og til detta í tísku. Við sáum nokkrar stjörnur á Met Gala-hátíðinni, til dæmis Kendall Jenner, sem leyfðu auga- brúnunum að verða eftir heima meðan þær röltu á rauða dreglinum. En hvernig nær fólk þessu aflitaða útliti án þess að hoppa í djúpu laugina og aflita þær? Einfalt, hyljari! Skelltu hyljaranum þínum í einnota mask- aragreiðu og greiddu litinn í gegnum hárin. Mikilvægt er að leyfa hyljaranum að þorna milli laga. Everlasting-hyljarinn frá Clarins er til dæmis frábært efni sem helst vel í auga- brúnunum,“ segir Birkir Már. Burstinn og liturinn í augabrúnapenn- anum frá Shisheido virka vel saman. Klassískar eða aflitaðar? Birkir Már Hafberg förðunarmeistari. AFP Vel mótaðar augabrúnir á tískusýningu Chanel. Brow Lift frá GOSH. Hér má sjá fyrir og eftir „laminated“ augabrúnir. FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 MORGUNBLAÐIÐ 29 momo@momo.is | momo.isMOMO | Nóatún 17, 105 Reykjavík Nýjar vörur Mikil áhersla hefur verið lögð á augabrúnir síðustu ár. Formin eru fjölbreytt og verður hver einstaklingur að finna hvað hentar best. Það sem skiptir hins vegar máli þegar augabrúnir eru annars vegar er að nota góðar vörur í þessi hár sem geta stundum verið til vandræða í andlitinu. Birkir Már Hafberg förðunarmeistari fór yfir augabrúnastöðuna. Marta María Winkel Jónasdóttir | mm@mbl.is Þessi augabrúnablýantur frá Chanel er góður ef fólk vill náttúrulegt útlit.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.