Morgunblaðið - 20.05.2022, Page 38

Morgunblaðið - 20.05.2022, Page 38
Ljósmynd/Saga Sig A llavega, við ætlum að hafa gaman í sumar og því fylgir auð- vitað að nautnapúkinn fær að blómstra með mat og drykk. Það er auðvitað dásamlegt og algjörlega málið að njóta. Hins vegar er það svo, að margir þola kannski ekkert sér- staklega vel mikið gums, grillmat og það sem honum fylgir. Nú eða þá það sem öllu er skolað niður með. Ég ætla nú ekkert að fara að mæla með grjótgrilluðu keti og rauð- víni alla daga, en ég veit líka að það er eitthvað sem margir njóta þess að borða og þá er kannski hægt að taka til ým- issa ráða til að þola það betur. Það er til dæmis hægt að að- stoða meltinguna á ýmsan hátt og við skulum byrja á að skoða það. Með hækkuðum aldri, gat nú verið, verður meltingin oft í meira basli með að brjóta niður fæðuna sem er neytt. Melting- arhvatarnir sem eiga að sjá um verkið (ensím, magasýra og gall) eru gjarnan af skornari skammti en áður, einhverra hluta vegna. Einkenni þess geta verið margvísleg, en til dæmis mikil þyngsli í melting- unni, líkt og grjót sé í mag- anum, mikill vindgangur og/eða rop, þreyta eftir máltíðir og syk- urlöngun eða kuldi í kroppnum eftir matinn. Ef þetta er raunin þá getur hjálpað að ná sér í ákveðin bætiefni til að létta á kerfinu. Svokölluð meltingarensím geta verið algjör lífsbjörg, þau eru til í ýmsum tegundum og frá allskonar framleiðendum. Þau ber að taka fyrir matinn, þá er ég að tala um stærstu máltíðir dagsins og sérstaklega fyrir mat sem er kannski þungmeltur og flókinn. Mikið kjöt, kartöflur, sósa og gúmmelaði væri gott dæmi. Einnig er gott að huga aðeins að þarmaflórunni, sem þarf að vera vel samsett til að allt virki vel í meltingunni og það getur verið stórkost- lega hjálplegt að taka inn góðgerla í bætiefnaformi fyrir meltinguna (probiotics). Nú, ef þið teljið að trefjainntakan sé ekki næg, lítið um gróft korn- meti eða grænmeti, þá getur verið gott að taka inn trefjar. Bara passa að drekka vel af vökva á móti trefjunum, annars fer allt í steypu, já í orðsins fyllstu merkingu eiginlega. Þið vitið hvað ég meina. Ókei, að drykkjunum. Þar sem ég er með blóðsykur og sykurneyslu á heilanum, þá verð ég að nefna að það er aldrei góð hugmynd, frá neinum bæjardyrum séð, að drekka áfengi eða sæta drykki á tóman maga. Það setur blóðsykurinn í algjört rugl og sykurlöngun og mat- arlöngun verður meiri en nokkru sinni fyrr. Miklu betra að njóta drykkja með eða eftir matinn, þá er balansinn betri. Nú ef verið er að neyta áfengis, svona kannski eitthvað meira en venjulega, þá er gott að taka inn B-vítamínbombu áður en fjörið byrj- ar, taka þá líka steinefnasölt út í vatn (electrolytes) og einnig fyrir svefninn. Ef allt er svo ómögulegt daginn eftir, þá er líka gott að nota þau þá. Mjólkurþistill er ein áhrifaríkasta lækningajurt sem til er og hún er rosalega vinveitt lifrinni. Það er gott að taka kúr af mjólkurþistli ef álagið er eitthvað í meira lagi og lifrin þarf meiri umhyggju og ást en vant er. Nú svo er auðvitað að reyna að hafa þetta allt saman í jafnvægi. Oft tala ég um að mataræðið ætti að vera 80 prósent gott, nærandi og pass- andi en svo sé pláss fyrir svona 20 prósent af því sem er kannski bara alls ekkert svo heilsusamlegt. Þetta jafnvægi raskast auðvitað stund- um, eðlilega, en þá er að snúa við áður en allt fer í rugl. En lykilatriðið er að njóta og njóta meira og ef eitthvað er aðeins fyrir utan sporið fína, þá hjálpar samviskubit og niðurrif engum. Það er bara staðreynd í mínum huga að kökusneiðin fer miklu betur í mig ef ég nýt hennar í tætlur en ef ég geri það ekki. Gleðilegt sumar og megi gleðin alveg sturlast með ykkur öllum! Grill, gleði og timburmenn? Æ, nei … Sumarið er tíminn, en ekki hvað, og við ætlum öll að njóta þess í botn þetta árið. Við vonumst eftir blíðu og skemmtilegheitum frá veðrinu og erum gíruð og glöð yfir hækkandi sól. Líklega verða grillpartí, veislur og hittingar í sögulegu fjöldahá- marki þetta árið, enda hafa félagslegum tengslum og samskiptagleði verið þröngar skorður settar undanfarin ár … en ekki meira um það. Inga Kristjánsdóttir | inga@inga.is Inga Kristjánsdóttir 38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 www.gilbert.is VELDU ÚR MEÐ SÁL Frisland Classic É g hef notað Yves Saint Laurent Majorelle Blue Volume Effet Faux Cils-maskarann frá því í menntaskóla en vanalega mála ég mig ekki mikið. Ég læt hann og rauðan varalit duga. Ég er hins vegar alltaf með geggjaðar neglur! Það er minn stíll. Ég kaupi mikið af augnskuggum og er hrifin af litunum frá NYX Profess- ional. Frá því vörumerki er einnig hægt að fá mjög flottan glans á kinn- beinin. Ég nota þær vörur þegar ég er að fara eitthvað mjög fínt og blanda litunum stundum við varalit frá Powder Puff Lippie. Þeir varalitir eru æðslegir og haldast mjög vel á vör- unum,“ segir Hildur Björk Yeoman sem hugsar jafn- framt vel um húðina og not- ar þá helst krem og olíur frá Dr. Hauschka til þess. „Hef notað Yves Saint Laurent-maskarann frá því í menntaskóla“ Þeir sem þekkja fatahönnuðinn Hildi Björk Yeoman vita að hún er alltaf flott til fara og þegar hún málar sig er eftir því tekið. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Volume Effet Faux Cils vatnsheldi maskarinn frá Yves Saint Laurent í Majorelle Blue-litnum er eitthvað sem allir ættu að skoða. Hildur Björk Yeoman fatahönn- uður er alltaf flott til fara. Hún notar förðun á listrænan hátt. Olíurnar frá Dr. Hauschka mýkja húðina og skilja ekki eftir sig för í fötunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.