Morgunblaðið - 14.07.2022, Blaðsíða 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022
Ljósmyndaprentun
Frábært fyrir ljósmyndara. Bjóðum upp á prentun
í öllum stærðum, t.d. á striga, álplötu eða pappír.
Xprentehf. | Sundaborg3 |104Reykjavík |7772700|konni@xprent.is
www.xprent.is
VIÐTAL
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Rithöfundurinn og kvikmyndagerð-
arkonan Sarah Thomas bjó hér á
landi í áratug og hefur nú gefið end-
urminningar sínar frá dvölinni á
Vestfjörðum út á bók. Verkið The
Raven’s Nest kom út fyrir helgi.
Thomas kom fyrst hingað til
lands vorið 2008. Þá var haldin ráð-
stefna mannfræðinga sem fást við
heimildarmyndagerð á Ísafirði. „Ég
hafði mun meiri áhuga á því sem fór
fram utan við ráðstefnubygginguna.
Þetta var seint í
maí og það varð
varla dimmt. Ég
var virkilega
heilluð af staðn-
um.“
Þannig kynnt-
ist hún landinu í
fyrsta sinn og
síðan gripu
örlögin í taum-
ana. „Ástæðan
fyrir því að ég endaði á því að flytja
hingað var sú að ég gisti hjá nokkr-
um listamönnum sem voru vinir vin-
ar míns og þeir buðu mér sumar-
vinnu í Landmannalaugum. Ég þáði
það enda hafði ég séð myndir af
staðnum og hugsaði með mér: „Guð
minn góður, fæ ég að búa þarna?““
Störfum hennar fyrir Tate-safnið í
London var einmitt lokið og því
hentaði þetta vel.
Síðan kynntist Thomas íslenskum
manni og þau ákváðu að láta reyna á
samband. „Við fundum hús nálægt
fjölskyldunni hans. Þannig endaði
ég í Hnífsdal og ég myndi segja að
reynslan af því að búa þar hafi gert
mig að rithöfundi.“
Að þykjast vera ósýnileg
Thomas lagði þó ekki upp með að
skrifa bók um dvölina. „Planið var
að búa til heimildarmynd, eitthvað
um seiglu, því ég tók eftir því að
Vestfirðingar eru ótrúlega seigt
fólk.“
En þrátt fyrir að hafa tekið upp
mikið myndefni mistókst Thomas,
að eigin sögn, að búa til kvikmynd.
„Ég var þjálfuð í að taka upp
kvikmyndir þannig að kvikmynda-
gerðarmaðurinn gerir sjálfan sig
ósýnilegan, er eins og fluga á vegg.
En þegar ég var útlendingur að
reyna að aðlagast menningunni var
eitthvað skrýtið við að þykjast vera
ósýnileg.“
Svo það sem hún hafði lært gagn-
aðist lítið og henni fannst hún sitja
uppi með sundurlaust myndefni.
„Það að skrifa bókina var viss leið
til þess að taka upp kvikmyndina
upp á nýtt. Í texta getur maður
staðsett myndavélina upp á nýtt eða
farið aftur á bak í tíma og rifjað upp.
Svo mér líður eins og ég hafi gert
kvikmynd með orðum.“
Það að hún hafi verið að reyna að
gera kvikmynd segir hún að hafi
gert það að verkum að minning-
arnar greiptust sérstaklega skýrt í
huga hennar. Hún man vel eftir
samtölum, ljósinu og umhverfinu af
því að hún hugsaði með sér: „Ég
vildi að ég væri að taka þetta upp.“
Þannig reyndist auðvelt að fanga
smáatriðin í texta.
„Ég gifti mig, skildi og flutti burt
og að því loknu fannst mér ég hafa
risastóra sögu að segja sem varð að
fá einhvern farveg. Ég byrjaði bara
að skrifa sem einhvers konar
æfingu en svo las fólk það sem ég
hafði skrifað og sagði að ég yrði að
gera eitthvað við þetta,“ segir
Thomas.
Kemur okkur í vandræði
Thomas hóf doktorsnám í þver-
faglegum fræðum við Háskólann í
Glasgow. „Þar flakkar maður á milli
greina með það að markmiði að
skapa eitthvað. Ég var að vinna inn-
an umhverfishugvísinda með skap-
andi skrif sem minn miðil.“
Nú er náminu lokið og heilt verk
orðið til, verk sem er nokkuð per-
sónulegt.
„Ég komst að þeirri niðurstöðu að
verkið væri ekki einlægt nema ég
væri í verkinu. Þessi hugmynd um
hlutlausan áhorfanda er, held ég, að
koma okkur í mikil vandræði. Við
þurfum að viðurkenna hversu hug-
lægt allt er, líka innan vísindanna.
Ákveðnar rannsóknir hafa ákveðnar
niðurstöður vegna þess hvernig um-
gjörð þeirra er háttað.
En ég myndi ekki segja að þetta
væri bók um mig. Lesandinn fær að
sjá veröldina í gegnum mig. Ef við
förum aftur í myndavélarmyndlík-
inguna þá snýr myndavélin ekki að
mér heldur er hún augu mín.“
Þrátt fyrir að loftslagsváin sem
við stöndum frammi fyrir sé ekki
beinlínis til umfjöllunar í The Rav-
en’s Nest er greinilegt að það er
þema sem liggur undir niðri.
Spurð hvort loftslagsmálin séu
henni mikilvæg segir Thomas: „Orð-
ið „mikilvægt“ nær ekki einu sinni
utan um það. Við lifum öll í þessum
aðstæðum og hverjum þeim sem
þykir þetta ekki mikilvægt er bara
ekki að fylgjast með. Ég er ekki að
segja að það sé gagnlegt að vera í
stöðugu kvíðaástandi en þetta er
veröldin sem við búum í og ég stend
í þeirri trú að þetta sé í rauninni það
eina sem vert er að skrifa um. En þú
munt ekki finna orðið loftslags-
breytingar í bókinni eða neitt þess
háttar,“ segir hún en tekur dæmi
um hvernig þau koma þó fram í
verkinu.
„Eitt sinn þá hringdi ég frá Ken-
ya, þar sem foreldrar mínir búa,
heim til mannsins míns til þess að
heyra í honum hljóðið og þá hafði
ísbirni skolað á land á Hornströnd-
um og hann verið skotinn. Ég fer í
gegnum það símtal og þannig bendi
ég óbeint á það sem er að gerast.“
Talið berst að upplifun Thomas af
því að búa á Vestfjörðum.
„Eitt af því sem hvatti mig til
þess að láta verða af því að flytja til
Íslands var að ég var viss um að
þetta væri staður sem myndi neyða
mig til þess að hugsa öðruvísi og það
gerir hann enn þann dag í dag. Ég
er enn að reyna að átta mig á mörgu
af því sem ég lærði þegar ég bjó þar.
Það var mjög erfitt en ég held það
hafi líka verið mjög mikilvægt fyrir
mig að þurfa að hugsa hlutina upp á
nýtt. Við komumst á ákveðinn aldur
og gleymum því hvað við erum mót-
uð af því samfélagi sem við höfum
alist upp í. Það er gott að því sé
stundum kollvarpað, sérstaklega á
tímum erfiðleika þar sem maður
þarf nýjar hugmyndir.“
Hvað var það í fari Vestfirðinga
sem var ólíkt því sem þú áttir að
venjast?
„Þetta viðhorf þeirra og kannski
Íslendinga allra að „bara prófa“.
Þetta var eitt af því fyrsta sem ég
lærði að segja á íslensku: „Bara
prófa.“ Ég hafði alist upp við að til
þess að fá leyfi til þess að gera eitt-
hvað þá þyrfti maður einhvers kon-
ar menntun, reynslu eða annað sem
gerði mann hæfan. En þegar ég fór í
fyrsta sinn í leitir þá hélt ég að ég
myndi bara standa til hliðar og
horfa á og kvikmynda. En mér varð
það fljótt ljóst að þar sem ég væri
með auka sett af höndum þá yrði ég
að hjálpa til.“
Tungumál fjallanna
Annað sem hafði djúpstæð áhrif á
Thomas var að læra íslensku. „Ég
tala tungumálið ekki reiprennandi
en ég varð að læra það til þess að
aðlagast samfélaginu og fjölskyld-
unni sem ég var við það að giftast
inn í. Fyrrverandi tengdafaðir minn
sagði mér að hann talaði ekki ensku.
Það kom síðar í ljós að hann talaði
alveg ensku en það tók mig tvö ár að
komast að því.“
Thomas heillaðist af því hve ljóð-
ræn íslenska tungan er. „Uppáhalds
orðið mitt er til dæmis „bergmál“,
tungumál fjallanna, og með þessu
eina orði hætta fjöllin að vera þessir
stóru grjóthnullungar heldur lifna
við. Ég er ekki viss um að Íslending-
ar hugsi um þetta í hvert sinn sem
þeir heyra orðið „bergmál“.“
Titill verksins The Raven’s Nest
er líka kaflaheiti. Sá kafli fjallar um
hrafnshreiður sem Thomas sá á
Náttúrugripasafninu í Bolungarvík.
„Það var um metri á breidd, mjög
fallegt, nánast eins og skúlptúr. Það
var gert úr neti, herðablaði úr kind
og hnífsskafti, loftneti og hrífu auk
alls kyns kvista og grasa.
Mér fannst þetta svara spurning-
unni um það hvernig heimkynni
gætu litið út í brotinni veröld. Þarna
var heimili búið til úr brotum úr
dýraríkinu, plönturíkinu og manna-
ríkinu og á þann hátt að það var
bæði viðkvæmt og sterkbyggt.“
Hrafnshreiðrið varð þannig að
aðalmyndhverfingunni fyrir það
hvernig heimili gætu verið í heim-
inum sem við búum í en einnig að
myndhverfingu fyrir uppbyggingu
bókarinnar.
„Ég hef byggt bókina upp eins og
hreiður. Henni er vafið í hring og
sömu mótívin koma upp aftur og
aftur frá nýjum sjónarhornum.
Þannig geta ólík sannindi lifað hlið
við hlið án þess að maður þurfi að
fallast á eitt svar. Þetta er sköpun
og eyðilegging í endalausri hring-
rás. Hreiðrið er þess konar form.
Það er form sem gæti rúmað lífið.
Þannig varð titillinn til,“ segir höf-
undurinn.
„Ég lærði þannig beint frá nátt-
úrunni þegar ég skrifaði verkið.
Mér líður eins og fjallið hafi mælt og
ég hafi svarað.“
Thomas er á ferðalagi um landið
þessa dagana og mun lesa upp úr
bók sinni í gömlu bókabúðinni á
Flateyri á morgun kl. 16 og í Safni
Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri á
sunnudag kl. 19:30.
The Raven’s Nest er fáanleg hjá
Pennanum Eymundssyni.
Höfundur Sarah Thomas skrifaði endurminningar um dvölina í Hnífsdal. Myndin er tekin í Hornvík á Ströndum.
Hnífsdalur gerði hana að höfundi
- Rithöfundurinn og kvikmyndagerðarkonan Sarah Thomas skrifar um reynslu sína af því að búa í
Hnífsdal í The Raven’s Nest - Heillaðist af tungumálinu - Loftslagsmálaþema liggur undir niðri
Ljósmynd/Ben Macfadyen