Morgunblaðið - 14.07.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.07.2022, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb r Sikiley Ítalía 595 1000 www.heimsferdir.is 26. september í 10 nætur 214.200 Flug & hótel frá 10 nætur Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Lúxussnekkjur útlendra auðmanna hafa verið á ferð við Ísland undan- farin sumur en nú ber svo við að engin slík snekkja hefur komið til Reykjavíkur í sumar. Þetta upplýsir Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafn- sögumaður Faxaflóahafna. Ekki er útilokað að slíkar snekkjur komi áð- ur en sumarið er úti enda eru komur þeirra gjarnan tilkynntar með skömmum fyrirvara, segir Gísli. Í fyrrasumar voru birtar fréttir af lúxussnekkjunni A sem var hér við land í nokkrar vikur og kom víða við. Snekkjan er 142 metrar að lengd og er talin ein af stærstu snekkjum heims. Möstrin, sem eru þrjú, ná í um 100 metra hæð. Eigandi hennar er rússneski milljarðamæringurinn Andrei Melnichenko. Snekkjan kom m.a. við í Siglufirði, í Skagafirði og Eyjafirði, Reykjavík svo og Önund- arfirði og víðar á Vestfjörðum. Mel- inchencko heimsótti Húsavík og leigði þá sjóböðin þar til einkanota. Melnichenko sætir nú refsiað- gerðum vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Samkvæmt fréttum í er- lendum miðlum var snekkjan A kyrrsett á Ítalíu fyrr á þessu ári. Hún mun því ekki birtast í ís- lenskum höfnum á þessu ári frekar en önnur rússnesk skip enda er í gildi bann við að afgreiða rússnesk skip í íslenskum höfnum, upplýsir Gísli Jóhann Hallsson. sisi@mbl.is Engar lúxussnekkjur í ár - Hafnbann á rússnesk skip er í gildi hér á landi Morgunblaðið/Árni Sæberg Snekkjan A Glæsiskipið lá á Ytri höfninni í Reykjavík í fyrrasumar. Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Færst hefur í vöxt að fólk reyni að skila áfengi í Vínbúðinni sem keypt er annars staðar, nú þegar áfengis- netverslanir sækja í sig veðrið. Um árabil hefur þó strangt tiltekið verið skylda að framvísa greiðslukvittun við skipti eða skil á vörum Vínbúð- arinnar, en undantekningar hafa verið tíðar – eða þar til núna. „Já, við höfum verið að fylgja því meira eftir. Við höfum orðið meira vör við að fólk sé að skila vörum sem ekki eru keyptar hjá okkur. Þetta er auðvitað alltaf matsatriði,“ segir Sig- rún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarfor- stjóri ÁTVR, spurð hvort frjálsari verslun kalli á strangari eftirfylgni. Hún segir skilareglurnar skýrar: það þarf kvittun vilji menn skila eða skipta áfengi sem keypt var í Vínbúðinni. „En auðvitað er þetta alltaf mats- atriði, á báða bóga.“ Margir vilja selja áfengi Í maí á síðasta ári hófst nýr kafli í smávöruverslun áfengis þegar franska fyrirtækið Santewines SAS opnaði netverslun með áfengi hér á landi og önnur fyrirtæki fylgdu á eft- ir. Í sumar hóf síðan Heimkaup net- verslun áfengis, fyrst matvöruversl- ana. Aðrar matvöruverslanir á borð við Nettó og Hagkaup segjast tilbún- ar til sölu en munu ekki hefja hana strax sökum óskýrs lagaumhverfis. Óhætt er því að segja að smásala áfengis hafi tekið stakkaskiptum síð- astliðið rúma árið. Sigrún áréttar þó að ekki sé um að ræða stefnubreytingu í kjölfar þessa. „Í sjálfu sér erum við bara með okk- ar reglur og okkar umhverfi. Þannig að það eru svo sem ekki neinar breytingar hjá okkur í rekstri.“ Vínbúðin herðir á skilareglum - Borið hefur á því að fólk skili áfengi til Vínbúðarinnar sem keypt er hjá einkaaðilum - Nú skylda að framvísa kvittun Morgunblaðið/Árni Sæberg Bjór Óhætt er að segja að smásala áfengis hafi tekið stakkaskiptum síðast- liðið rúma árið. Enn verslar þó meginþorri fólks í gömlu Vínbúðinni. Sigrún Ósk Sigurðardóttir Þrjú ferðaþjónustufyritæki bjóða upp á reglulegar ferðir inn að Kötlujökli. Það eru Katla track, Tröllaferðir og South coast. Farnir eru fleiri tugir ferða á dag og því fleiri hundruð manns sem fara þarna um. Mest eru þetta erlendir ferðamenn, en Íslendingar gera sér líka ferð upp að jöklinum. Jónas Er- lendsson, fréttaritari Morgunblaðsins, segir umferðina með mesta móti. Hann hefur þó engar áhyggjur af því að umhverfið þoli ekki áganginn og fagnar góðum gangi ferðaþjón- ustunnar. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Hundruð sækja Kötlujökul heim dag hvern
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.