Morgunblaðið - 14.07.2022, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022
„Góður maís er eitt það besta sem
við fáum! Þegar við bjuggum í
Bandaríkjunum keyptum við alltaf
ferskan maís í hýðinu, létum hann
liggja í bleyti fyrir eldun og hreins-
uðum allt utan af honum. Eftir að
maður byrjar að borða ferskan maís
þá er nefnilega ekki aftur snúið skal
ég segja ykkur, þetta er hreinlega
ekki það sama og frosinn maís. Maís
er oftast meðlæti en djúsí og góður
maís sem þessi getur verið snarl, for-
réttur eða hvað sem þið viljið! Er-
lendis er til dæmis oft hægt að kaupa
sér djúsí maís einan og sér í mat-
arvögnum og þess háttar og þessi
hér mun ekki svíkja ykkur!
Grillaður maís
með rjómaostasmyrju
Uppskrift dugar fyrir 6 stykki
6 x ferskur maís
230 g Philadelphia-rjómaostur með
lauk og graslauk
30 g rifinn parmesan-ostur
1 msk. lime-safi
1 tsk. Tabasco-sósa
½ tsk. hvítlauksduft
½ tsk. paprikuduft
¼ tsk. chilli-flögur
Salt og pipar eftir smekk
Smá smjör til penslunar
Ferskur kóríander til að strá yfir í
lokin
Sjóðið maísinn og hitið grillið í
botn.
Hrærið öllu öðru saman nema
kóríander og smjöri.
Takið maísinn upp úr pottinum
þegar hann er tilbúinn, makið á hann
vel af smjöri og smyrjið með þunnu
lagi af rjómaostasmyrjunni.
Grillið í stutta stund á öllum hlið-
um.
Toppið síðan með vel af rjóma-
ostasmyrju, parmesan og smá chilli-
flögum ef þið þorið.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Magnað meðlæti Maís passar einstaklega vel með öllum grillmat.
Grillaður maís
með rjómaostasmyrju
Maís er það meðlæti sem flestir tengja við grill. Góður vel grillaður maís passar með
öllum grillmat og bragðast einstaklega vel. Hér er það Berglind Hreiðars á Gotteri.is
sem galdrar fram maís sem hún hjúpar með rjómaosti og tilheyrandi.
„Ég elska þessi kjúklinga-
spjót og geri þau reglulega
fyrir okkur fjölskylduna. Þau
eru algjör bragðbomba og ég
gæti drukkið satay-sósuna.
Ef þú ert fyrir satay þá verð-
urðu að prófa þessa!
Grilluð satay-kjúklingaspjót
Fyrir 2-3
600 g kjúklingalæri (skinn- og
beinlaus)
2 msk. taílensk karríblanda/
Kryddhúsið
100 g litlar agúrkur
1 stk. rautt chili
5 g kóríander
20 g salthnetur
1 dl kókosmjólk
50 g hnetusmjör
1 tsk. sojasósa
1 msk. púðursykur
2 tsk. rautt karrímauk/Thai
choice
1 stk. límóna
150 g rauðkál
4 stk. grillpinnar
Leggið grillpinna í bleyti
a.m.k. 30 mín. áður en elda á
matinn.
Skerið kjúklingalærin í 3-4
bita (fer eftir stærð). Setjið í
skál með olíu, salti og taí-
lenskri karríblöndu. Blandið
vel saman og látið marinerast
í a.m.k. 30 mín.
Setjið kókosmjólk, hnetu-
smjör, sojasósu, púðursykur,
rautt karrímauk, 0,5 dl af
vatni og kreistu af límónusafa
í lítinn pott og stillið á miðl-
ungshita. Hrærið í þar til sós-
an er byrjuð að þykkjast og
allt hefur samlagast. Ef sósan
þykkist of mikið má þynna
hana með ögn af vatni.
Smakkið til með salti.
Þræðið kjúklinginn á spjót-
in og grillið á 200°C heitu
grilli í 10-12 mín. en snúið á 2
mín. fresti.
Saxið hnetur, sneiðið rauð-
kál mjög þunnt, sneiðið chili,
saxið kóríander og sneiðið ag-
úrkur.
Penslið kjúklingaspjótin
með satay-sósu og stráið því
næst chili, kóríander og hnet-
um yfir.
Berið fram með auka
satay-sósu til hliðar og hrís-
grjónum ef vill.
Grilluð satay-
kjúklingaspjót
Meistari Snorri Guðmunds hjá Mat & myndum á heiðurinn af
þessari skemmtilegu uppskrift hér sem hann segir að sé algjör
bragðbomba. Kjúklingur er alltaf vinsæll á grillið og settur í
þennan búning hér að hætti Snorra verður hann algjörlega
ómótstæðilegur.
Ljósmynd/Snorri Guðmundsson
Bragðbomba „Ég elska
þessi kjúklingaspjót og
geri þau reglulega fyrir
okkur fjölskylduna,"
segir Snorri.
- Hreinsaðu grillið áður en þú byrjar. Sumir kjósa að hita
grillið fyrst og brenna þannig af því og renna svo yfir með
bursta. Hvort heldur sem er þá er nauðsynlegt að renna yfir
grindurnar áður en maturinn fer á.
- Passaðu að grillið sé orðið vel heitt. Það er stranglega
bannað að setja matinn á kalt grillið og láta það hitna.
- Olíuberðu grindurnar svo að maturinn festist ekki við. Það
er sorglegt að eyðileggja góðar grillrákir með klaufaskap.
- Ef þú ert með stórt grill getur þú svæðaskipt hitanum; haft
aðra hliðina heitari fyrir prótein og hina á tempraðri hita fyr-
ir meðlæti.
- Notaðu stáláhöld, alls ekki plast. Plast bráðnar, getur losað
efni yfir í kjötið og almennt þykir það ekki gott til afspurnar
að vera plastgrillari.
- Passaðu upp á að allur matur sem fer á grillið sé við stofu-
hita. Kaldur matur á ekkert erindi á grillið. Það ruglar eld-
unartímann og stuðlar að ójafnari eldun.
-Ekki vera grillníðingur. Það er ekkert sorglegra en fólk
sem fjárfestir í forláta grilli fyrir fleiri hundruð þúsund en
sleppir því að kaupa hlíf eða nennir ekki að setja hana á eftir
að grillið hefur kólnað. Slík hegðun skilgreinist sem hámark
metnaðarleysisins. Góður grillari fer vel með grillið sitt og
notar það svo árum skiptir.
-Ekki færa matinn til á grillinu, eða eins lítið og þú getur.
Leyfðu matnum að vera á sínum stað og fá á sig fallegar rákir.
- Ekki kremja kjötið á grillinu. Sú ranghugmynd að það eigi
að þrýsta kjötinu á grindina er gjörsamlega glórulaus. Þetta
er gert til að kreista safann úr kjötinu og reyna að flýta eld-
uninni. Þetta eru hins vegar léleg vinnubrögð og ekki til eft-
irspurnar.
-Fjárfestu í góðum áhöldum. Það er galið að kaupa fokdýrt
grill og grilla svo með heimilisgafflinum. Góðar tangir og góð-
ur spaði eru lykilatriði til að auðveldara sé að meðhöndla mat-
inn og við mælum heilshugar með slíkum búnaði.
Grillboðorðin 10
Til að tryggja að grillmáltíðin heppnist
sem allra best er gott að vera með boð-
orðin tíu á hreinu.
Ljósmynd/Colourbox