Morgunblaðið - 14.07.2022, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022
18
Til hamingju - þú hefur fundið happatöluna!
Farðu inn á mbl.is/happatölur, fylltu út upplýsingar um þig og sláðu inn Happatöluna.
Vinningshafar verða dregnir út í þættinum Ísland Vaknar á K100 í fyrramálið.
Að sjálfsögðu hvetjum við þig til að tala þátt á hverjum fimmtudegi, því það er til mikils að vinna.
www.vest.is • Ármúli 17 • Sími: 620 7200
Hjelle
Handgerð norsk hönnunartákn
sem standast tímans tönn.
Tómas Arnar Þorláksson
tomasarnar@mbl.is
Öll borð á veitingastaðnum Óx eru
bókuð næstu þrjá mánuðina eftir að
staðurinn var heiðraður með Michel-
in-stjörnu í byrjun júlí í Stafangri í
Noregi. Staðurinn, sem er inn af Su-
mac á Laugavegi 28, mun færa sig
um set í september en þá munu fimm
sæti bætast við sætafjöldann á staðn-
um. Þráinn Freyr Vigfússon, eigandi
Óx, reiknar með að hægt verði að
panta borð á staðnum þegar að því
kemur.
Aðspurður segir Þráinn að þau hafi
fengið ansi mikið af bókunum eftir að
Óx fékk stjörnuna eftirsóttu. Næsta
sólarhring á eftir hefðu borist fyr-
irspurnir frá rúmlega 230 manns.
Hann bætir við að margir þeirra sem
hringdu neyddust til þess að skrá sig
á biðlista. „Það er næstum uppbókað
hjá okkur næstu þrjá mánuðina og
margir á biðlista,“ segir Þráinn og
bætir við að mögulega sé eitthvað
laust í október.
Óx í nýtt húsnæði
Nú styttist í að Óx muni færa sig
um set og stækka við sig en að sögn
Þráins standa framkvæmdir yfir í
nýju húsnæði.
Bendir hann á að þau hjá Óx leiti
ekki langt yfir skammt en nýja hús-
næðið er á Laugaveginum, aðeins 300
metra frá núverandi húsnæði. Þráinn
segir að þrátt fyrir aukinn sætafjölda
muni þau enn halda í sömu gæði og
grunnhugmynd staðarins.
Munu gestir því enn sitja allir við
sama borð fyrir framan kokka sem
elda fyrir þá í nýja húsnæðinu. Helsta
breytingin á nýjum stað er sú að nú
munu 16 sitja við borðið í stað 11. Óx
mun byrja í nýju húsnæði í lok sept-
ember ef allt gengur eftir.
Þráinn segir að með nýja staðnum
verði enn meiri ævintýrablær yfir
upplifuninni að borða á Óx.
„Á nýja staðnum verður kokteilbar
fyrir framan Óx. Maður labbar fyrst
inn um litlar dyr inn í port og þaðan
niður stiga í garðskála og þaðan inn í
kokteilbarinn fyrir framan Óx.“ Þrá-
inn segir kokteilbarinn vera innrétt-
aðan í stíl við áttunda áratuginn og
segir hann þetta vera eins og að labba
inn í stofu hjá vel stæðri ömmu. „Það
er ekki barútlit yfir þessum kokteil-
bar.“ Hefur kokteilbarinn fengið
nafnið Amma Don.
Allt uppbókað eftir Michelin-stjörnu
- Óx stækkar við sig til að mæta gíf-
urlegri eftirspurn en heldur í gæði
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meistarakokkur Þráinn Freyr Vigfússon er maðurinn á bak við Óx en veit-
ingastaðurinn varð nýlega annar á Íslandi til að hljóta Michelin-stjörnu.
Skálholtshátíð fer fram helgina 16.
til 17. júlí. Meginefni hátíðarinnar
að þessu sinni verður „kliður af
köllun okkar til friðar í heiminum“
eins og segir í tilkynningu.
Eftir endurbætur verða kirkju-
klukkurnar vígðar með nýjum bún-
aði. Um 20 ár eru síðan danska
klukkan féll niður og brotnaði.
Skálholtshátíð er haldin sem
næst Þorláksmessu á sumri, sem er
20. júlí. Þorláksmessan 23. desem-
ber er dánardagur heilags Þorláks
Þórhallssonar Skálholtsbiskups árið
1193 en 20. júlí er þess er minnst er
bein hans voru lögð í skrínið árið
1198.
Hátíðarmessa og hátíðardagskrá
verður sunnudaginn 17. júlí. Mess-
an hefst kl. 14 og er kirkjukaffi á
veitingastaðnum Hvönn í Skálholts-
skóla í boði staðarins. Hátíðardag-
skrá er í kirkjunni kl. 16. Aðalerindi
flytja þau Eva María Jónsdóttir,
miðaldafræðingur og verkefnastjóri
á Árnastofnun, og dr. Gunnlaugur
A. Jónsson, fv. prófessor. Erindi
Evu Maríu er „Orð sem skreppur
undan merkingu“ og erindi Gunn-
laugs nefnist „Sáttmáli og Saltari“.
Ávörp flytja Áslaug Arna Sigur-
björnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra, og frú Agnes
M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.
Vígslubiskupinn í Skálholti, sr.
Kristján Björnsson, stýrir dag-
skránni og segir fréttir af staðnum.
Skálholtskórinn syngur undir stjórn
Jóns Bjarnasonar organista.
Í hátíðarmessunni prédikar
Kristján vígslubiskup og þjónar fyr-
ir altari ásamt sr. Sveini Valgeirs-
syni, sr. Örnu Grétarsdóttur og öðr-
um vígðum og óvígðum.
Skálholtskórinn syngur og Jón
Bjarnason organisti leikur m.a. úr
Þorlákstíðum og stýrir tónlistinni.
Trompetleikarar eru Svanhildur Sól
Sigurbjarnardóttir og Jóhann I.
Stefánsson.
Pílagrímaganga úr Kjós
Á laugardaginn kl. 16 eru hátíð-
artónleikar Skálholtkórsins og Jóns
Bjarnasonar þar sem öll tónlistin
verður eftir J.S. Bach, sónötur og
fögur kórverk við íslenskar perlur
ljóðlistar. Sunnudaginn 17. júlí kl.
11 verða orgeltónleikar Jóns með
áhersu á Bach. Tíðarsöngur verður
kvölds og morgna undir stjórn Ís-
leifsreglunnar en formaður hennar
er sr. Kristján Valur Ingólfsson
biskup. Pílagrímaganga verður
gengin frá Reynivöllum í Kjós
nokkra daga fyrir hátíðina undir
leiðsögn sr. Örnu Grétarsdóttur og
endar hún með því ganga inn undir
pílagrímasálminum Friður á foldu í
upphafi messu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skálholt Mikið verður um dýrðir á staðnum helga um helgina.
Kliður af köllun
friðar í Skálholti
- Skálholtshátíð haldin um helgina
Íslenska fyrirtækið Carbfix hefur
fengið styrk sem nemur um 16
milljörðum íslenskra króna úr Ný-
sköpunarsjóði Evrópusambandsins
(ESB) til uppbyggingar á móttöku-
og förgunarmiðstöðinni Coda
Terminal, Sódastöðinni, í Straums-
vík. Miðstöðin verður sú fyrsta
sinnar tegundar í heiminum.
Áætlað er að starfsemi hefjist þar
um mitt ár 2026 og nái fullum af-
köstum árið 2031. Mun þá allt að
þremur milljónum tonna af kol-
tvíoxíði, CO2, verða fargað á ári
hverju. Það nemur um 65% af heild-
arlosun Íslands árið 2019.
Styrkurinn sem Carbfix hlýtur er
sá stærsti sem íslenskt fyrirtæki
hefur fengið úr sjóðum ESB. Er
hann veittur úr Nýsköpunarsjóði
ESB sem er einn stærsti styrktarað-
ili grænna nýsköpunarverkefna og
fellur undir stjórn Loftslags- og
umhverfisstofnunar ESB (CINEA).
Haft er eftir Eddu Sif Pind Ara-
dóttur, framkvæmdastýru Carbfix,
í tilkynningu að styrkurinn sé fyrst
og fremst mikil viðurkenning fyrir
fyrirtækið. Hann hjálpi til við að
koma Coda Terminal vel af stað.
„Við viljum að Ísland sé í ákveðnu
forystuhlutverki þegar kemur að
föngun og förgun því hér eru kjör-
aðstæður til varanlegrar og
öruggrar kolefnisförgunar,“ segir
Edda Sif ennfremur.
Carbfix fær 16 milljarða styrk frá Evrópusambandinu
Carbfix Edda Sif Pind Aradóttir, fram-
kvæmdastýra fyrirtækisins, í Straumsvík.