Morgunblaðið - 14.07.2022, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022
2nd Cozmo
12.995 kr. / St. 37-42
2nd Cozmo
12.995 kr. / St. 36-43
2nd Cozmo
12.995 kr. / St. 39-49
2nd Cozmo
6.995 kr. / St. 19-2612.995 kr. / St. 40-47
2nd Cozmo
6.995 kr. / St. 19-26
n ozmo
12.995 kr. / St. 36-42
2nd Cozmo
12.995 kr. / St. 36-43
SANDALAR Á ALLA FJÖLSKYLDUNA
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.ISKRINGLAN - SKÓR.IS
STEINAR WAAGE
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt að aug-
lýsa breytingu á deiliskipulagi
Kirkjusands vegna lóðarinnar nr. 2. Í
henni felst breytt landnotkun og
byggingarmagn. Á lóðinni stendur
fimm hæða hús sem kennt er við Ís-
landsbanka. Það hefur verið dæmt
ónýtt vegna raka og myglu og verður
rifið til að rýma fyrir nýrri íbúða-
byggð. Á Kirkjusandi hafa á und-
anförnum árum risið stór íbúðarhús
og sömuleiðis atvinnuhúsnæði.
Íslandsbankabyggingin var upp-
haflega frystihús, sem reist var á ár-
unum 1955-1962 af hlutafélögunum
Júpíter og Mars. Byggingin á Kirkju-
sandi er 7.719 fermetrar að stærð.
Frystihúsið var síðar innréttað sem
skrifstofuhús fyrir alaðstöðvar Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga
(SÍS). Síðast voru þarna aðalstöðvar
Íslandsbanka til ársins 2017 er hann
flutti í Kópavog.
Fram kemur í greinargerð með
deiliskipulagstillögunni að viðfangs-
efni breytts deiliskipulags séu breyt-
ingar á notkun, byggingarmagni,
byggingarreitum og skilmálum lóðar.
Aðdragandi þessara breytinga er að
þegar gildandi skipulag var unnið
2016, var gert ráð fyrir að núverandi
skrifstofuhús myndi standa áfram
ásamt heimiluðum viðbótum. Eftir
sem áður væri eingöngu um atvinnu-
húsnæði að ræða. „Síðan gildandi
deiliskipulag tók gildi hefur komið í
ljós að núverandi hús er með öllu
ónothæft vegna rakaskemmda að því
marki að það verður ekki bætt og
einsýnt að það verður rifið. Húsið
hefur þegar verið skráð sem ónýtt,“
segir orðrétt í greinargerðinni. Það
sé því ljóst að grundvallar forsenda
fyrir skipulagi lóðarinnar sé ekki
lengur til staðar, þ. á m. hvað varðar
starfsemi. Við undirbúning deili-
skipulagsins var horft til aðliggjandi
byggðar og að starfsemi á lóð væri í
samræmi við hana.
Á vordögum 2020, eftir samtal við
Reykjavíkurborg, efndi lóðarhafinn
Langbrók til lokaðrar arkitekta-
samkeppni um nýtt deiliskipulag, en
forsögn hennar var unnin af lóðar-
hafa í samstarfi við umhverfis- og
skipulagssvið Reykjavíkurborgar.
Langbrók er í eigu Íslandssjóða.
Fjórum arkitektastofum var boðið að
leggja fram tillögur og var tillaga
Kurtogpi valin. Er hún grundvöllur
breytts deiliskipulags.
Meginbreytingin felst í breyttri
starfsemi á lóðinni þar sem verður
blanda íbúðar- og atvinnuhúsnæðis, í
samræmi við aðra hluta deiliskipu-
lagssvæðisins. Með breyttum for-
sendum opnist þannig tækifæri til að
samræma fyrirhugaða uppbyggingu
á lóðinni við þá byggð sem fyrir er á
svæðinu. Þar sem núverandi hús vík-
ur verður einnig mögulegt að vera
með bílakjallara undir allri lóðinni og
draga þannig úr umfangi bílastæða.
Byggingarreitir á lóðinni verða
fjórir (A1-A4) en stærð, lega og fyr-
irkomulag reitanna breytist. Gert er
ráð fyrir að byggingarnar verði
fimm, 4-7 hæðir, og heimilt verði að
vera með kjallara á tveimur hæðum.
Rampur að bílageymslu verði í norð-
vesturhorni lóðarinnar og kvöð er á
jaðri hennar, samsíða Kirkjusandi.
Heildarstærð lóðar er óbreytt,
12.702 fermetrar. Samkvæmt
breyttu deiliskipulagi verður heimilt
að byggja 27.100 fermetra ofanjarðar
og 24.400 fermetra neðanjarðar.
Leyfilegt heildarbyggingarmagn
verður 51.500 m2. Nýtingarhlutfall
skv. beyttu deiliskipulagi verður 2,1
ofanjarðar og 4,1 í heild. Heimilaður
heildarfjöldi íbúða verður 225. Samið
hefur verið um að 20% íbúða verði
skilgreind sem leiguíbúðir, stúd-
entaíbúðir, leiguíbúðir Félagsbú-
staða hf., búseturéttaríbúðir og/eða
íbúðir fyrir aldraða.
Líkist gamla frystihúsinu
Í greinargerðinni er fjallað um ein-
staka byggingareiti á lóðinni. Á reitn-
um A1, sem er á norðvesturjaðri lóð-
arinnar, má byggja eitt hús á sex
hæðum auk þess sem heimilt er að
byggja inndregna þakhæð. Form-
gerð, hrynjandi, efniskennd og yfir-
bragð byggingarinnar skulu vísa á af-
gerandi hátt í gamla frystihúsið sem
áður stóð á reitnum og skal fylgja
þeim áherslum sem koma fram á
skýringaruppdrætti og eru byggðar
á vinningstillögu í samkeppni um
uppbyggingu á lóðinni. Ytra byrði
byggingarinnar skal vera einföld og
látlaus steypt hvítmáluð skel.
Tölvumynd/Kurtogpí
Breytt ásýnd Sæbrautar Hér má sjá hvar hið nýja hús (hvítt) hefur verið sett inn í götumyndina. Húsið verður nær götunni en það gamla. Húsið verður ekki ósvipað og það gamla var upphaflega.
Íbúðir í stað gamla frystihússins
Morgunblaðið/sisi
Íslandsbankahúsið Það hefur staðið ónotað í fimm ár og oft orðið skemmd-
arverkamönnum að bráð. Stórvirkar vinnuvélar munu brjóta það niður.
- Borgarráð samþykkir að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Kirkjusands - Íslandsbankahúsið,
sem upphaflega var frystihús, víkur fyrir fjölbýlishúsum - Fimm hús með 225 íbúðum rísa á reitnum