Morgunblaðið - 14.07.2022, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.07.2022, Blaðsíða 18
VIÐTAL Gísli Freyr Valdórsson gislifreyr@mbl.is Einfalda þarf stjórnskipulag Land- spítalans og til lengri tíma þarf að breyta því hvernig hann er fjármagn- aður til að hann geti staðið í fremstu röð í samanburði við önnur ríki. Þetta segir Björn Zoëga, forstjóri Karolinska sjúkrahússins í Svíþjóð, í samtali við Morgunblaðið. Björn var í gær skipaður stjórnarformaður Landspítalans samhliða því sem ný stjórn var skipuð. Hann hefur frá því í desember jafnframt sinnt starfi ráð- gjafa heilbrigðisráðherra samhliða störfum sínum á Karolinska, hvar hann mun áfram starfa sem forstjóri. „Landspítalinn hefur um nokkurt skeið staðið frammi fyrir ýmsum áskorunum og það er því ýmislegt sem þarf að gera til efla starfsemi og rekstur sjúkrahússins, auka þjónustu við sjúklinga sem og starfsánægju,“ segir Björn, spurður um helstu verk- efnin framundan. „Við höfum ekki náð að þróa spít- alann og rekstur hans nægilega vel og þurfum að gera betur ef við ætlum að reka nútíma háskólasjúkrahús. Ég hef þó trú á því að það sé hægt að gera og í nýrri stjórn situr öflugt fólk sem getur aðstoðað nýjan forstjóra við að breyta því sem þarf að breyta.“ Flókinn rekstur – Og hvað er það helst? „Fljótt á litið þarf að einfalda stjórnskipulagið,“ svarar Björn að bragði. „Eins og vill oft verða á svona stofnunum, og ég kannast við það frá öðrum sjúkrahúsum líka, erum við komin með of margt fólk sem er ekki að vinna við það að þjónusta sjúk- linga. Fjöldi þeirra hefur aukist meira en þeirra sem vinna í beinu sambandi við sjúklinga, og það geng- ur ekki upp til lengri tíma. Það þarf ákveðið jafnvægi í því. Við þurfum að fækka stjórnlögum og einfalda hlut- ina.“ Björn staldrar sjálfur við þessi orð og útskýrir að rekstur sjúkrahúsa sé flókinn og ólíkur rekstri fyrirtækja. Á meðan fyrirtæki geti framleitt vörur getur sjúklingur sem kemur inn á spítala fengið um 18 þúsund mismun- andi greiningar, 14 þúsund mögu- leika um inngrip og tugi þúsunda val- kosta um lyfjagjöf. Það sé því ekki hægt að ákveða fyrirfram hvernig þjónustu við alla sjúklinga sé háttað. „Umræðan um það hvort sjúkra- húsið sé nægilega vel fjármagnað og hvernig það er fjármagnað hefur staðið yfir lengi, en sambærileg um- ræða á sér einnig stað erlendis í til- fellum þar sem sjúkrahús eru rekin fyrir opinbert fé – þá sérstaklega í að- draganda kosninga. Í grunninn snýst þetta þó um að sjúkrahús fái greitt fyrir þá þjónustu sem þau veita. Það má kalla það framleiðslutengda eða þjónustu- tengda fjármögnun. Þá greiðir ríkið fyrir ákveðna þjónustu og veit hvað það fær fyrir peninginn. Ég hef talað fyrir þessu áður. Það er búið að taka allt of langan tíma að koma á slíku skipulagi hér á landi og við verðum líklega með síðustu þjóðum í hinum vestræna heimi sem taka upp það fyrirkomulag í stað þess að hafa sjúkrahúsið á föstum fjárlögum.“ Björn nefnir að vandamál Karo- linska sjúkrahússins hafi verið sam- bærileg. Sjúkrahúsið var um tíma tekið af framleiðslutengdri fjár- mögnun og sett tímabundið á föst fjárlög. Það leiddi þó til þess að fram- leiðsla þess lækkaði undir 90% af því sem áður var og biðraðir mynduðust. Að sama skapi hafi Karolinska verið með of marga millistjórnendur. „Á ákveðnu árabili voru ráðnir fimm starfsmenn á skrifstofu eða í stjórnendastörf hjá Landspítalanum fyrir hvern einn klínískan starfs- mann. Það gengur ekki til lengri tíma og reynir verulega á þolrif þess fjár- magns sem sjúkrahúsið hefur.“ Áskorun að hitta á núllið Það virðist óhjákvæmilegt að ræða um rekstur spítalans og fjármögnun, eins og hér hefur verið gert að hluta, enda snýst meginþorri umræðunnar um þá þætti. Björn tekur undir það en ítrekar að það eigi ekki bara við hér á landi. „Það má segja að það sé áskorun að hitta á núllið í svona rekstri,“ segir hann. „Ég get nefnt sem dæmi að mér var ætlað að skila 63 milljónum sænskra króna í hagnað á Karolinska í fyrra en skilaði að lokum 740 millj- ónum í hagnað. Þá fékk ég gagnrýni á mig fyrir að skila of miklum hagnaði, meðal annars frá stéttarfélögunum og öðrum sem spurðu af hverju ég hefði ekki eytt þessu fjármagni. Hagnaðurinn var síðan tekinn af sjúkrahúsinu og nýttur með öðrum hætti af sýslunni sem sjúkrahúsið til- heyrir og nýtist því ekki í ár, hvorki til fjárfestinga né í annað. Þetta kem- ur í veg fyrir hvata til að skila góðum rekstri og er ástæða þess að sjúkra- hús erlendis eru nú rekin sem fyrir- tæki í fullri eigu ríkisins eða annarra opinberra aðila, en með þeim hætti verður hagnaðurinn eftir í rekstr- inum og nýtist sem slíkur.“ – Við fáum reglulegar fréttir af því að rekstur Landspítalans sé í járnum með tilheyrandi myndum af sjúkra- rúmum í bílageymslum og fleira. Er einhver von til þess að spítalinn verði vel rekinn? „Já, við náðum þeim árangri á ár- unum eftir hrun. Við fengum að vísu stuðning frá stjórnvöldum til að fara í gegnum hrunið en reksturinn var góður og okkur tókst að skila afgangi af rekstrinum,“ segir Björn. „Það er hægt með góðu skipulagi og vönduðum vinnubrögðum. Sumir tala eins og þetta sé skip sem sé ekki hægt að snúa við en ég er ekki sam- mála því. Mesta áskorunin er að við- halda ákveðnum stöðugleika. Um leið og eitthvað byrjar að ganga vel þá byrjar strax krafan um að fara í fjöl- breytt verkefni sem standa mögulega ekki undir sér.“ Meta starfsmannaþörfina – Þú talar um að einfalda skipulag og minnka umfang í stjórnskipulagi spítalans. Það hefur áður verið fjallað um að stjórnendum á Karolinska var undir þinni stjórn fækkað um rúm- lega 500. Þarf ekki að fara í sambæri- legar aðgerðir hér til að bæta rekstur Landspítalans? „Við þurfum að bregðast við því hvernig spítalinn er rekinn, meta starfsmannaþörfina og einfalda reksturinn. Það er hlutverk þeirra sem veita honum forystu,“ segir Björn. „Við þurfum óhjákvæmilega að spyrja okkur að því hvort við séum með of marga millistjórnendur á spít- alanum. Ef það er raunin þá þyngir það rekstur spítalans og ákvarðanir eru teknar of langt frá starfsfólkinu á gólfinu – sem á að stýra ansi miklu, enda með sjúklinginn við hliðina á sér og veit hvað þarf að gera. Við breytt- um þessu á sínum tíma en svo hefur því verið breytt nokkrum sinnum til baka.“ Björn segir líka mikilvægt að velta því upp hvernig verkaskiptingu innan spítalans sé háttað. „Það eru fleiri spítalar að fara í gegnum þá nafla- skoðun um þessar mundir og reyna að finna rétta jafnvægið í því hvaða stétt á að gera hvað,“ segir Björn. „Við höfum ekki endalaust af starfsfólki til að sinna öllum verk- efnum. Þetta er vissulega viðkvæmt, líka erlendis, og því ekki séríslenskt vandamál. Ég var nýlega á fundi með evrópskum stjórnendum háskóla- sjúkrahúsa og þar var bara eitt mál á dagskrá; hvernig við ætlum að manna spítalana næstu árin eftir Covid- faraldurinn og hver á að gera hvað. Þetta er stærsta málið í öllum helstu ríkjum Evrópu.“ – Og liggur einhvern lausn fyrir? „Það er engin ein heildarlausn en fólk getur miðlað af reynslu enda eru nokkrar þjóðir sem hafa byrjað að vinna í þessu á undan okkur,“ segir Björn og nefnir sérstaklega Finnland þar sem stjórnendur sjúkrahúsa þar í landi séu komnir lengra í þessari þró- un en margir aðrir. „Þeirra þekktasta dæmi er að þeg- ar hjúkrunarfræðingur er ráðinn þá er hann ráðinn á spítalann, ekki bara ákveðna deild. Við þurfum að hafa sveigjanleika þannig að hjúkrunar- fræðingur hafi þekkingu til að sinna störfum á einstaka deildum en geti líka unnið á milli deilda. Mér sýnist að við getum lært mikið af Finnum hvað þetta varðar. Þeir hafa lengi haft minna fjármagn á milli handanna og hafa því þurft að skoða þessi mál. Það eru hins vegar flestir spítalar að glíma við þörf á starfsfólki eftir faraldurinn. Það er ekki nóg að bæta bara fjár- magni inn í rekstur spítala, það þarf líka að vera starfsfólk til staðar.“ Huga að rannsóknarstarfi Spurður um stöðu spítalans í al- þjóðlegum samanburði og aðrar áskoranir, segir Björn að huga þurfi vel að rannsóknarstarfi hans í sam- starfi við Háskóla Íslands. „Það er ýmislegt sem bendir til þess að við höfum dregist aftur úr í þeim efnum, sem er líka slæmt fyrir háskólann og alþjóðlegan samanburð hans við aðra skóla,“ segir Björn. „Það þarf líka að endurskoða og meta menntun heilbrigðisstarfsfólks. Það skýtur óneitanlega skökku við að vera með kvóta á fjölda nemenda í greinum þar sem þörf verður á auknu vinnuafli næstu árin. Sumir segja að spítalinn geti ekki menntað fleiri en ég er ekki sammála því. Við þurfum að hugsa út fyrir boxið til að leysa þessi mál, það er hægt að mennta fólk á öllum tíma sólarhringsins en ekki bara á skrifstofutíma yfir veturinn. Þá má líka velta upp þáttum eins og því að við þurfum ekki að sérhæfa okkur í öllu. Við eigum að geta sent sjúklinga út í flóknari aðgerðir eða flutt sérfræðinga til landsins hlut úr ári til að gera þær aðgerðir. Það má nefna sem dæmi að í Svíþjóð er búið að ákveða að 5% af flóknustu aðgerð- unum verða gerðar á örfáum sjúkra- húsum. Það þýðir vissulega að ein- hverjir þurfa að ferðast langt til að komast í aðgerð en á móti kemur að við náum að búa til betri sérfræðinga með aukinni sérhæfingu og reynslu. Við höfum ekki stærðarhagkvæmnina til að gera allt sjálf hér á landi.“ Björn segir þó að lokum hann hafi mikla trú á því að hægt sé að breyta heilbrigðiskerfinu hér á landi til betri vegar. „Við þurfum að vera óhrædd við að prófa nýja hluti og breyta hlutunum. Við eigum aldrei að sætta okkur við stöðnun,“ segir hann. „Fólk sem vinnur með sjúklingum er með tilgang sinn á hreinu, það vill sinna sjúklingum vel. Stjórnendur spítalanna þurfa að styðja það mark- mið þeirra og skapa þeim góð starfs- skilyrði.“ Einfalda þarf stjórnskipulag - Björn Zoëga var í gær skipaður stjórnarformaður Landspítalans - Spítalinn staðið frammi fyrir áskorunum- Snýst í grunninn um að sjúkrahús fái greitt fyrir þá þjónustu sem þau veita Morgunblaðið/Árni Sæberg Landspítalinn Björn Zoëga, fv. forstjóri Landspítalans, hefur verið skipaður formaður stjórnar spítalans. 18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022 Starfsmannafatnaður fyrir hótel og veitingahús Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | www.eddaehf.is Hótelrúmföt kristin@run.is | Starfsmannafatnaður thorhildur@run.is Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Hótelstjórnandann Hótelrúmföt Sérhæfum okkur í sölu á rúm- fatnaði og öðru líni fyrir hótel
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.