Morgunblaðið - 02.07.2022, Side 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022
SAMAN Í SÓL
07. - 18. JÚLÍ
NEPTUNO HOTEL 4*
TVÍBÝLI MEÐ MORGUNVERÐI
VERÐ FRÁ99.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 110.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
11. - 21. JÚLÍ
HOTEL PALMASOL 4*
TVÍBÝLI
VERÐ FRÁ115.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 153.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
INNIFALIÐ Í VERÐI, FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR. BÓKAÐU ÞITT SÆTI Á UU.IS
VIN
SÆ
LT
TILBOÐ
TAKMARKAÐ
FRAMBOÐ
ALMERÍA COSTA DEL SOL
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Stefán Eiríksson
útvarpsstjóri seg-
ist vera sammála
úrskurði fjöl-
miðlanefndar um
að Ríkisútvarpið
ohf. hafi brotið
gegn lögum um
Ríkisútvarpið
með kostun á
þáttunum Tóna-
flóði um landið, sem sýndir voru í
sjónvarpinu sumrin 2020 og 2021.
„Eftir að hafa farið yfir þetta erum
við sammála því sem þar kemur
fram,“ segir Stefán en brotið snýr að
því að þættirnir gætu ekki talist
íburðarmiklir dagskrárliðir í skilningi
undantekningarákvæðis 2. mgr. 7. gr.
laga um Ríkisútvarpið. Því hefðu þeir
ekki heimild til þess að rjúfa dagskrá
með auglýsingahléum.
„Þetta gerist í miðju Covid þegar
verið er að bregðast við með breyt-
ingum á dagskrá í samræmi við sótt-
varnatakmarkanir. Það var ekki gætt
nægilega vel að þessu í mati á því
hvernig væri hægt að haga þessu,“
segir Stefán. Taldi nefndin hæfilegt
að stjórnvaldssekt vegna brotsins
næmi 1.500.000 kr. urdur@mbl.is
Sammála
niðurstöðu
um lögbrot
Stefán Eiríksson
- Rúv. braut lög um
kostun Tónaflóðs
Arnar Grant neitar því að hafa hót-
að eða kúgað nokkurn mann og
svarar á þann hátt kæru sem þeir
Ari Edwald, Hreggviður Jónsson
og Þórður Már Jóhannesson lögðu
fram á hendur honum og Vítalíu
Lazarevu, fyrir tilraun til fjárkúg-
unar, hótanir og brot gegn frið-
helgi einkalífsins. Í viðtali við Rúv. í
gærkvöldi sagði Arnar að kæran
hefði komið sér mjög á óvart. Þá
sagði hann að það hefði verið að
frumkvæði þremenninganna að ná
sátt í málinu.
Neitar að hafa hótað
og kúgað mennina
Eldur kom upp í gærkvöldi inni á
milli hitaveitutankanna í Grafar-
holti í Reykjavík. Svo virðist sem
eldurinn hafi kviknað í tækjabún-
aði, sem hefur líklega verið notaður
við viðgerð á tönkunum.
Þetta segir Kristján Sigfússon,
varðstjóri stoðdeildar hjá slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins. Töluverður
svartur reykur steig upp af svæð-
inu og voru því bílar frá öllum
stöðvum slökkviliðsins sendir á
staðinn.
Slökkviliðsmenn voru fljótir að
ráða niðurlögum eldsins, en upptök
hans voru enn ókunn í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Grafarholt Slökkviliðið réð niðurlögum eldsins sem kom upp í gærkvöldi.
Eldur við hita-
veitutankana
Líf og fjör er í blíðviðrinu á Gos-
lokahátíð í Vestmannaeyjum sem
hófst á fimmtudaginn. Hátíðin er
haldin fyrstu helgina í júlí ár hvert
en þá er því fagnað að eldgosinu
árið 1973 lauk um sumarið það ár.
Fjölbreytt dagskrá er um helgina
og ættu allir að geta fundið sér ein-
hverja afþreyingu við hæfi, ungir
sem aldnir.
Á boðstólum er fjölbreytt úrval
tónleika, hönnunar- og listsýninga,
leiksýninga og fyrirlestra en einnig
verður hægt að fara í skipulagðar
göngur og ýmislegt annað spenn-
andi.
Gunni og Felix skemmtu yngstu
kynslóðinni í gær á barnaskemmt-
un í boði Ísfélags Vestmannaeyja á
Stakkagerðistúni, viðstöddum til
mikillar gleði. Þá komu einnig fram
á Stakkagerðistúninu Sumarsirkus
Húlladúllunnar, Latibær og BMX
brós. Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Gunni og
Felix stigu
á svið
Fjölbreytt dagskrá í Eyjum um helgina í tilefni þess að 49 ár eru síðan eldgosinu á Heimaey lauk árið 1973
„Mér vitanlega hefur engin
niðurstaða komið sem gefur
tilefni til að kalla eftir varan-
legu herliði á Íslandi,“ segir
Jón Gunnarsson dómsmála-
ráðherra, en hann á sæti í þjóð-
aröryggisráði ásamt Katrínu
Jakobsdóttur forsætisráð-
herra og Þórdísi Kolbrúnu
Reykfjörð Gylfadóttur utan-
ríkisráðherra. Hann segir það
mál alltaf vera til skoðunar í þjóðaröryggisráði,
eins og fram hafi komið, en um það sé ekkert
meira að segja á þessari stundu. „Þetta er auðvit-
að alltaf bara mat sem fer fram í samvinnu við
okkar bandalagsþjóðir en í dag liggur ekkert fyrir
um það.“
Eftirlit við Ísland farið vaxandi
Ísland mun vinna áfram í þéttu samráði við
bandalagsþjóðir sínar að sögn Jóns. Ef forsendur
breytast verði skoðað að grípa til ráðstafana í
samræmi við það.
Haft var eftir Baldri Þórhallssyni í Morgun-
blaðinu í gær að hann teldi Ísland í verulegri
hættu ef átök breiddust út. „Það er ekki að
ástæðulausu að bandalagsþjóðir okkar hafa sett
allan sinn viðbúnað á hærra stig út af þeirri stöðu
sem nú er uppi,“ segir Jón, inntur eftir viðbrögðum
við þessu. Hann bendir á að það sé ekkert launung-
armál að eftirlit í námunda við Ísland hafi farið vax-
andi, einkum með aukinni loftrýmisgæslu, og telur
ekki ástæðu til að ætla að sú þróun breytist. Þessi
aukni viðbúnaður eigi sér samt stað um alla Evr-
ópu, en til að mynda séu ýmsar bandalagsþjóðir að
senda herlið til landa í austanverðri Evrópu.
„Við erum herlaus þjóð svo við verðum að leggja
okkar lóð á vogarskálarnar með öðrum hætti.“ Þá
sé Ísland sem fyrr með varnarsamning við Banda-
ríkjamenn. „Það er svo stöðumat hverju sinni
hvaða viðbragð þarf að vera fyrir hendi svo örygg-
inu sé fullnægt.“
Vaxandi eftirlit við Ísland
- Ekki tilefni til að kalla eftir varanlegu herliði á þessu stigi - „Alltaf til skoðunar“
Jón Gunnarsson