Morgunblaðið - 02.07.2022, Page 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022
0,75%
Meginvextir
Seðlabankans
Frá 2. maí 2019 til 1. júlí 2022
5%
4%
3%
2%
1%
0%
2019 2020 2021 2022
4,5%
Heimild: SI
4,75%
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Andrés Magnússon, framkvæmda-
stjóri Samtaka verslunar og þjón-
ustu, segir hækkandi greiðslubyrði
íbúðalána munu koma fram í minni
einkaneyslu með haustinu. Það geti
haft mikil áhrif á neyslumynstrið.
„Það hlýtur að vera áhyggjuefni
að kaupmáttur skuli hafa farið
minnkandi, eftir að hafa verið í
hæstu hæðum í upphafi ársins, og
muni að óbreyttu fara minnkandi,“
segir Andrés sem telur aðspurður að
áhrifin af hærri greiðslubyrði íbúða-
lána séu ekki að fullu komin fram í
mælingum á kaupmætti.
En Seðlabankinn hefur hækkað
vexti jafnt og þétt í ár (sjá graf).
„Ef þetta ástand varir lengi, sem
allt bendir því miður til, þá mun það
ekki auðvelda kjarasamningsgerðina
sem hefst eftir sumarið,“ segir Andr-
és og bendir á að síðasta vaxtahækk-
un, 22. júní sl., sé ekki að fullu komin
fram í greiðslubyrðinni.
Mun beina neyslunni annað
Minni ráðstöfunartekjur muni
hafa áhrif á neyslumynstrið.
„Fólk mun áfram þurfa að kaupa
nauðsynjar en aðrar tegundir versl-
unar en þær sem uppfylla grunn-
þarfir munu væntanlega finna fyrir
þessu. Þegar greiðslubyrði íbúða-
lána hækkar jafn mikið og útlit er
fyrir mun það hafa áhrif á það hvert
fólk beinir neyslu sinni.“
Andrés sat aðalfund Evrópusam-
taka verslunarinnar (EuroComm-
erce) í Brussel í júní og segir fulltrúa
verslunar í nágrannalöndum hafa
viðrað sömu áhyggjur. Þar með talið
í Danmörku og Svíþjóð en þar hafi
vextir jafnvel verið neikvæðir áður
en þeir fóru að hækka með neikvæð-
um áhrifum fyrir kaupmátt.
„Verslun og þjónusta í þessum ná-
grannalöndum mun finna hratt fyrir
þessum breytingum og ég tala nú
ekki um verslunina sunnar í Evrópu,
ekki síst í Þýskalandi. Við það bæt-
ast áhyggjur af því hvaða áhrif það
hefur á hagkerfin í Evrópu ef orku-
kostnaður rýkur upp úr öllu valdi í
haust, líkt og margir óttast. Þá er ég
að tala um gas og olíu, og þá fyrst og
fremst gas, en við búum við aðrar að-
stæður hvað varðar orkukostnað.“
Óviss áhrif á ferðavilja
Spurður hvort hækkandi orku-
kostnaður í Evrópu muni birtast í
verslun erlendra ferðamanna með
haustinu segir Andrés ekki gott að
segja hvaða áhrif þetta hafi yfirhöfuð
á ferðavilja Evrópubúa í haust.
Hann bendir á að Þjóðverjar fái
um 40% af sínu jarðgasi frá Rúss-
landi og ef það hækki mikið í haust
geti það dregið úr ferðavilja.
Draga mun úr neyslu heimilanna
- Framkvæmdastjóri SVÞ segir hærri greiðslubyrði íbúðalána hafa mikil áhrif
Þóra Birna Ingvarsdóttir
thorab@mbl.is
Íslenski sálmurinn Heyr himna smið-
ur eftir tónskáldið Þorkel Sigur-
björnsson er leikinn undir atriði í
lokaþætti þriðju seríu af þáttaröðinni
911 Lone star. Um er að ræða þætti
sem framleiddir eru í Bandaríkjunum
af sjónvarpsstöðinni 20th Century
Fox og hafa notið vaxandi vinsælda
að undanförnu, en leikarinn Rob
Lowe fer með aðalhlutverkið.
Guðrún Björk Bjarnadóttir, fram-
kvæmdastjóri STEF, segir það ekki
koma á óvart að sálmurinn rati inn í
þætti eða kvikmyndir.
Árið 2013 birti hljómsveitin Árstíð-
ir myndband á Youtube af því þegar
meðlimir hennar sungu Heyr, himna
smiður, án undirspils, á neðanjarð-
arlestarstöð við aðdáun viðstaddra. Í
dag hafa tæplega átta milljónir
manna séð myndbandið. „Lagið varð
í kjölfarið vinsælt í alls konar verk-
efni, sem leiddi til þess að erfingjar
Þorkels sömdu við erlendan tónlistar-
forleggjara til að hjálpa til við leyfis-
veitinguna,“ segir Guðrún.
Dóttir Þorkels, Mist Barbara, var
rétthafinn að laginu þar til hún samdi
við breska forleggjarann Faber mus-
ic, og var því ekki með í ráðum þegar
veitt var leyfi fyrir notkun á laginu í
umræddum þáttum. Hún segir það
þó skemmtilegt að heyra hvernig lag-
ið hefur öðlast nýtt líf.
Gersemar í skúffum
Guðrún segir íslenska tónhöfunda
hafa verið að hasla sér völl á stóra
sviði kvikmyndatónlistar undanfarin
ár.
„Innviðir hér á landi hafa verið að
styrkjast og þekking að aukast og svo
höfum við staðið fyrir vinnustofum í
samstarfi við ÚTÓN á hverju ári.“
Þær vinnustofur ganga út á að kynna
íslenska tónlist fyrir erlendum for-
leggjurum og ráðgjöfum. „Við eigum
þvílíkar gersemar sem liggja allt of
mikið ofan í skúffum, það þarf að gera
meira til að opna þessar skúffur og
sýna heiminum það sem er til.“
Heyr, himna smiður í Hollywood
- Íslenskur sálmur í þætti með Rob Lowe - Árstíðir komu laginu á kortið - Forleggjarinn Faber
music rétthafinn í dag - Íslenskir tónhöfundar að hasla sér völl á stóra sviði kvikmyndatónlistar
Skjáskot/Youtube
Tónar Árstíðir flytja Heyr, himna smiður í neðanjarðarlestarstöð.
Þorkell
Sigurbjörnsson
Rob
Lowe
Biskup úr
turninum
Í skoðun er að starfsemi Biskups-
stofu verði á næstunni flutt í annað
húsnæði. Skrifstofurými í Grensás-
kirkju þykir þar koma vel til greina,
betur en annað sem skoðað hefur
verið.
Frá haustinu 2019 hafa skrifstofur
þjóðkirkjunnar verið í turninum á
Höfðatorgi í Reykjavík, skv. leigu-
samningi til sjö ára. Nú þegar stíf
aðhaldskrafa gildir í öllu starfi þjóð-
kirkjunnar er öllum steinum velt við
og leiða til sparnaðar leitað. Hluti af
þeirri viðleitni er að fara í ódýrara
og jafnframt hentugra húsnæði.
„Leiðarljósið er að starfsfólk
Biskupsstofu, þar með talið rekstr-
arskrifstofu, geti á nýjum stað verið
í góðum tengslum við grasrótina og
kirkjustarf úti í samfélaginu. Þess
vegna höfum við horft á húsnæði
Grensáskirkju, þar sem ýmis starf-
semi þjóðkirkjunnar hefur verið fyr-
ir,“ segir Pétur Markan biskups-
ritari. sbs@mbl.is
Grensáskirkja Til skoðunar er að
Biskupsstofa flytjist hér inn.
- Skoða flutninga
í Grensáskirkju
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Framkvæmdir við nýtt flugskýli Landhelg-
isgæslunnar (LHG) á Reykjavíkurflugvelli
hafa gengið mjög vel. Húsið kemur frá verk-
smiðju Límtrés vírnets og verktakar hafa reist
húsið á mettíma, að sögn Landhelgisgæsl-
unnar.
Fyrsta sperran var reist 9. júní . Þremur
vikum síðar er húsið farið að taka á sig mynd
og klæðning þess komin vel á veg. Gert er ráð
fyrir að þyrlur LHG geti farið í nýja flugskýlið
þegar í ágúst.
Núverandi flugskýli LHG var byggt 1942 og
er með öllu ófullnægjandi. Það uppfyllir t.d.
ekki lágmarkskröfur um brunavarnir. Ráðist
verður í gagngerar endurbætur á því. Áhersla
er lögð á að ljúka þeim verkþætti fyrir haust-
ið. Brýnt er að framkvæmdirnar gangi sem
hraðast enda ekki boðlegt að björgunartæki
þjóðarinnar séu saman í rými sem uppfyllir
ekki kröfur um eldvarnir. Verðmæti tækjanna
er um 20 milljarðar króna. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýja flugskýlið bókstaflega flýgur upp
Framkvæmdir Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli ganga vel