Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022 islenskt.is Borðaðu hann í heilu lagi; skorinn í tvennt, í báta eða þunnar sneiðar eða maukaðu hann í djúsí sósu með pastanu. Tómatur Í þínu besta formi. Vatnsmælirinn: Tómatur 94% íslenskt vatn Hálf öld var í gær liðin síðan einvígi aldarinnar fór fram sumarið 1972. Þá mættust Boris Spasskí og Bobby Fischer í skákeinvígi hér á landi. Guðmundur G. Þórarinsson, þáver- andi forseti Skáksambands Íslands, lýsti þessu einvígi sem „merkileg- asta skákviðburði sem haldinn hef- ur verið í veröldinni“ í samtali við Morgunblaðið. Kom vel saman við báða Guðmundur setti einvígið 1. júlí 1972 í Þjóðleikhúsinu og rifjaði upp setningarræðuna á afmælisathöfn í gær í tilefni 50 ára afmælisins. „Ég fór yfir andstæðurnar í veröldinni þegar þetta fór fram,“ segir Guð- mundur og harmar að nú sé aftur komin á töluverð spenna á milli Rússlands og Bandaríkjanna. Að mati Guðmundar voru bæði Spasskí og Fischer merkismenn og segir hann að sér hafi líkað vel við þá báða. „Okkur Bobby kom ágæt- lega saman en hann var samt óánægður með mig og spurði eft- irminnilega hvort við hefðum ekki neinn betri mann en þennan Þór- arinsson til þess að stýra þessu,“ segir Guðmundur kíminn. Magnus Carlsen á mótinu Afmælishátíð verður haldin 25.- 30. október í Reykjavík. Þá verður heimsmeistaramótið í Fischer- slembiskák þar sem sex skákmenn tefla um heimsmeistaratitilinn. Hjörvar Steinn Grétarsson mun keppa á mótinu og segist gífurlega þakklátur fyrir tækifærið. Þar mætir hann Magnúsi Carl- sen, heimsmeistara í skák, og Wes- ley So, núverandi heimsmeistara í Fischer-slembiskák. Segist Hjörvar meira spenntur en stressaður að mæta þessum skákmeisturum í haust. „Þetta er risastórt fyrir mig og ef Ísland væri ekki að halda þetta myndi ég örugglega ekki komast inn á þetta mót, en gott að komast inn bakdyramegin,“ segir Hjörvar og þakkar Skáksamband- inu fyrir að hafa valið sig. Segist hann ætla að leggja allt í sölurnar til að endurgjalda þetta traust. Hjörvar keppir með þeim bestu - Einvígi aldarinnar hálfrar aldar gamalt Morgunblaðið/Árni Sæberg Skák Hjörvar Steinn og Guðmundur G. Þórarinsson takast í hendur. Reikna má með að áfram næstu daga verði raskanir í innlandsflugi Icelandair. Þar er félagið að jafnaði með fjórar vélar í notkun, það er tvær Bombardier Q200 sem tekur 37 farþega og aðrar tvær Q400, 76 manna. Fram eftir viku voru tvær vélar úr leik, hvor af sinni gerð. Nú eru báðar Q200-vélarnar fleygar en áfram beðið hinnar Q400-vélar- innar, sem er erlendis í skoðun. Á meðan gæti orðið hökt í flugi innan- lands, þ.e. til Ísafjarðar, Akureyrar og Egilsstaða. Á fimmtudag var Bo- eing-757-þota notuð til að létta á biðlistum en í gær var ekki svigrúm til slíks. Hörð gagnrýni, meðal ann- ars frá landsbyggðarfólki, hefur komið fram á þessa röskun í fluginu sem stólað er á sem lífæð í sam- göngum. Ásdís Ýr Pétursdóttir, talsmaður Icelandair, segir þær umkvartanir teknar alvarlega. Reynt sé að gera hið besta úr stöðunni hverju sinni og bætt upplýsingamiðlun til far- þega sé forgangsmál í núverandi ástandi. sbs@mbl.is Seinkanir áfram í innanlandsfluginu Morgunblaðið/Árni Sæberg Reykjavík Boeing 757-þota Icelandair var notuð í innanlandsflugi í fyrradag en stóð ekki til boða í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.