Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022 S IGN | FORNUBÚÐIR 1 2 , HAFNARF IRÐ I | S : 5 5 5 0800 | S IGN@S IGN . I S | S IGN . I S G rettir er sá fornkappi sem okkur er kærastur. Stórskáldin hafa ort um hann ódauðleg ljóð og lagt út af sögu hans. Og þessa stöku kvað Stephan G. Stephansson í tilefni af sundi útlagans úr Drangey: Mörg er sagt að sigling glæst, sjást frá Drangey mundi – þó ber Grettis höfðuð hæst úr hafi á Reykjasundi. Sjálfur fór Stephan G. til fundar við Gretti í Drangey í Íslands- heimsókn sinni 1917. Og í maí sl. fór hópur á vegum Félags eldri borg- ara í Reykjavík í þriggja daga ferð á slóðir Grettis. Við komum að Bjargi í Miðfirði og spurðumst fyrir um höfuð kappans sem jarðsett var forðum við kirkjuna þar. Við fórum líka á þingstaðinn í Hegranesi og drukkum minni Grettis sem á Drangeyjarárunum kom þar í dul- argervi og glímdi við tvo sterkustu bræður héraðsins, báða í einu. Og á kvöldvöku á Sauðárkróki lásum við, gömlu pílagrímarnir, úr ljóðum snillinganna, m.a. Illugadrápu Stephans G. Stephanssonar og Í Grettisbúri Hannesar Péturssonar. Þá var einnig farið með kvæði Ein- ars Benediktssonar, Grettisbæli, þar sem þessi eftirminnilega ljóðlína stendur: „að sekur er sá einn sem tapar.“ En áhrifamesti stansinn var gerður í Forsæludal þar sem Grettir tókst á við hinn ferlega draug sem hafði þá nálega eytt allri byggð í grenndinni. Hér minntumst við Matthíasar Jochumssonar sem árið 1897 gerði sér lítið fyrir og orti ljóðabálkinn Grettisljóð þar sem hann rakti helstu atriði Grettis sögu með sínu lagi. Farið var með nokkur er- indi úr þessum mikla bálki. Gretti hafði tekist að hrinda Glámi „á bak aftur“, út úr bæjardyrunum á Þórhallsstöðum í Forsæludal; en sjálfur féll Grettir „á hann ofan“. Nú rak ský frá tunglinu, „en Glámur hvessti augun upp í móti“. Við þetta missti hetj- an máttinn og gat ekki brugðið saxinu. Draugsa gafst þá ráðrúm til að biðja Gretti bölbæna sem með orðum séra Matthíasar hljóða svona – og geri aðrir guðsmenn betur!: Rekast skaltu um reginfjöll, reyna hvers kyns slysaföll; flögð og árar elti þig, ís og heljur svelti þig! Þá skulu augun þessi mín þegar sólar birtan dvín feiknum öllum fylla þig, fæla, kvelja og trylla þig! Afturgöngur æri þig, allt sem lifir særi þig, allir bófar erti þig, allir þjófar sverti þig! Fögur sólin flýi þig, ferleg nóttin vígi þig, völu galdrar veiði þig, vesöl kerling deyði þig! Nú fyrst kom Grettir til sjálfs sín; brá saxinu „og hjó höfuð af Glámi og setti það við þjó honum“. En ræða Gláms varð að áhrínisorðum. Séra Matthías sagði á öðrum stað í Grettisljóðum: Þessi vísa var rædd í hópnum okkar þarna í Forsæludal; og af henni æxlaðist síðan önnur vísa þar sem álíka langt er gengið í túlkun og hjá séra Matta: Ég heyri rödd við hlustir mér (heill og gæfa dvínar): „Þú ert Grettir, en Glámur er: gamlar syndir þínar.“ „Þú ert Grettir …“ Tungutak Baldur Hafstað hafstad.baldur@gmail.com Flosi Ólafsson: Gamlar syndir Þú ert Grettir … en hvað er Glámur? (Svar neðst.) R íkisoddvitafundur NATO í Madrid í vikunni var haldinn á stríðstíma í Evrópu, Rússar beita herafla til landvinninga í nágrannaríki sínu. Á fundinum réðst endanlega að Finnar og Svíar hverfa frá stefnu sinni um stöðu utan hernaðarbandalaga. Þá var samþykkt ný grunnstefna (e. strategic concept) NATO í stað stefnu sem gilt hefur frá 2010. Á toppfundi NATO í Brussel fyrir ári var Jens Stolten- berg, framkvæmdastjóra NATO, falið að hafa forystu um að semja nýja grunnstefnu NATO. Efnt var til fjölþjóð- legs samráðs innan og utan NATO í því skyni að móta stefnu bandalagsins til framtíðar. Verkefnið tók á sig skarpari mynd vegna innrásar Rússa í Úkraínu 24. febr- úar 2022. Í stefnunni frá 2010 var litið á Rússa sem „strategískan samstarfsaðila“ nú segir að Rússar hafi brotið gegn öllu sem standi að baki stöðugleika og fyrirsjáanleika í evr- ópskum öryggismálum. Ekki sé unnt að útiloka að Rússar ráðist á fullveldi og landsvæði einhvers NATO-ríkis. Bein ógn frá Rússum steðji að öryggi bandalagsþjóðanna og friði og stöðugleika á Evró-Atlantshafs- svæðinu. Rússar reyni að skapa sér áhrifasvæði og beina stjórn með nauðung, undirróðri, árás og innlimun. Þeir beiti hefð- bundnum, netvæddum og fjöl- þátta aðferðum gegn NATO- þjóðunum og samstarfsþjóðum þeirra. Það sé strategísk áskor- un fyrir NATO að takast á við hernaðarlegan styrk Rússa sem beitt yrði til að hindra liðsflutninga bandalagsþjóða til landsvæða á norður- slóðum (e. High North) og frjálsar siglingar yfir Norður- Atlantshaf. Þá segir einnig í grunnstefnunni að öryggi á höfunum sé lykill að friði og farsæld NATO-ríkjanna. Boðað er að efldur verði herstyrkur og ástandsmat til fráfælandi að- gerða og varna gegn ógnum á höfum úti, til að tryggja frjálsar siglingar, skapa öryggi á siglingaleiðum og vernda helstu fjarskiptaleiðir þjóðanna. Þetta eru nýmæli í grunnstefnu NATO og þarna er vís- að beint til þess sem snertir öryggisumhverfi Íslands. Í orðunum er í raun áréttað hve mikil skammsýni felst í því að halda að innrásin í Úkraínu hafi ekki áhrif hér á Norð- ur-Atlantshafi eins og hvarvetna annars staðar þegar litið er til öryggismála í Evrópu. Hún kallar á að ný viðmið séu sett þegar litið er til þjóðaröryggis okkar Íslendinga. Samkvæmt varnarmálalögunum frá árinu 2008 ber ut- anríkisráðherra „ábyrgð á gerð hættumats á sviði varnar- mála og mótun og framkvæmd öryggis- og varnarstefnu Íslands á alþjóðavettvangi“. Grunnstefna NATO sem samþykkt var í Madrid af íslensku ríkisstjórninni og stað- fest með þátttöku forsætisráðherra og utanríkisráðherra í ríkisoddvitafundinum leggur þá skyldu á herðar utanrík- isráðherra að haga ofangreindu mati sínu á grundvelli hennar og kynna það innan lands og utan. Þetta er skýrasta opinbera endurmatið á stöðu Íslands í öryggismálum sem ríkisstjórnin og NATO-ríkin hafa sam- þykkt og birt frá því að varnarliðið hvarf úr landi árið 2006 og gert var áhættumat af íslenskum stjórnvöldum árið 2009. Gildi rússneska Norðurflotans sem sækir út á Atlants- haf frá Kólaskaganum fyrir austan Noreg eykst eftir því sem styrkur landhers Rússa minnkar. Sýnir Pútin vald sitt með þessum flota? Enginn getur svarað þeirri spurn- ingu. Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, sagði oft í aðdraganda Madrid-fundarins að þar yrðu þáttaskil, „grundvallarbreyting á afstöðu“ til þess hvernig standa ætti að hlutverki NATO sem varnarbandalags. Bandalag- ið leggur nú að nýju höfuðáherslu á fælingarmátt og varnir (e. de- terrence – defence). Á sjöunda áratugnum þegar utanríkis- ráðherrar NATO-ríkjanna komu saman til fundar hér á landi í fyrsta sinn árið 1968 var ákveðið að leggja deterrence – defence – détente, það er fælingarmátt, varnir og slökun á spennu, til grundvallar í afstöðu NATO- þjóðanna til Sovétmanna. Þá eins og nú vilja bandalags- þjóðirnar leysa mál á frið- samlegan. Vonin um að unnt sé að eiga samskipti á þeim grundvelli við Vladimir Pútin Rússlandsforseta brást og óvissa setur svip sinn á öryggismál í stað stöðugleika. Einmitt þess vegna sóttu Finnar og Svíar um aðild að NATO. Allt það ferli tók ótrúlega skamman tíma. Það liðu ekki heldur nema fáeinir dagar frá því að Pútin réðst inn í Úkraínu þar til Olaf Scholz Þýskalandskanslari kynnti vatnaskil í þýskum öryggismálum með stórauknum fjár- veitingum til varnarmála sem samþykktar voru með stjórnarskrárbreytingu. Þá hefur ESB með hraði sam- þykkt Úkraínu og Moldovu sem umsóknarríki. Söguleg umskipti hafa orðið á skömmum tíma. Pólitíska umboðið sem Madrid-grunnstefnan veitir herstjórnum NATO er mun róttækara en við blasti í ársbyrjun. Við það bætist síðan ákvörðunin um að fjölga mönnum í herafla NATO í viðbragðsstöðu úr 40.000 í 300.000. Auk þess ætl- ar Bandaríkjastjórn að senda til Evrópu fleiri hermenn, fleiri orrustuþotur og fjölga tundurspillum úr fjórum í sex. Framvarðarsveitir verða efldar nærri landamærum Rúss- lands og Pólverjar fá bandaríska herstjórn í landi sínu eins og þeir hafa lengi viljað. Hér á landi skortir aðila, fræðilegan og innan stjórn- kerfisins, sem aflar upplýsinga og leggur mat á breytingar sem snerta ytra öryggi ríkisins og gerir tillögur til stjórn- valda um aðgerðir vegna þeirra. Einmitt þess vegna eru ályktanir NATO-funda og grunnstefna bandalagsins mik- ilvægari leiðarvísir en ella fyrir íslensk stjórnvöld. Þar fer ekki á milli mála hvaða skuldbindingar NATO-ríkisstjórn- irnar hafa axlað til að tryggja eigin borgurum öryggi. Grunnstefna um öryggi Íslands Í grunnstefnu NATO er áréttað að innrásin í Úkraínu hefur áhrif á öryggi okkar hér á Norð- ur-Atlantshafi eins og hvar- vetna annars staðar þegar litið er til öryggismála í Evrópu. Björn Bjarnason bjorn@bjorn.is Einveldinu danska lauk snögg- lega vorið 1848, og boðaði kon- ungur til stjórnlagaþings þá um haustið í Kaupmannahöfn. Til þess kvaddi hann fimm Íslendinga, Brynjólf Pétursson skrifstofustjóra, Jón Guðmundsson ritstjóra, Jón Johnsen bæjarfógeta, Jón Sigurðs- son sagnfræðing og Konráð Gísla- son málfræðing. Þeir reyndu eins og þeir gátu að halda Íslandi utan við allar ákvarðanir, sem teknar yrðu á þinginu um framtíð Danaveldis, en það náði þá ekki aðeins yfir Dan- mörku og eyjar í Norður-Atlants- hafi og Karíbahafi, heldur líka her- togadæmin Slésvík og Holtsetaland. Íslendingarnir vissu, að danskir áhrifamenn vildu innlima Slésvík, sem var hálfdönsk, en sleppa hinu alþýska Holtsetalandi. Heimastjórn fyrir Ísland kom vart til greina, ef innlima átti Slésvík. Raunar var N.F.S. Grundtvig eini málsmetandi Daninn, sem fylgdi skynsamlegri stefnu í Slésvíkurmálinu. Hún var að skipta Slésvík og innlima aðeins hinn dönskumælandi hluta hennar að fengnu samþykki íbúanna. Varð sú raunin 1920. Hitt skiptir þó meira máli í ljósi sögunnar, að danska stjórnarskráin, sem stjórnlagaþingið samþykkti og konungur skrifaði undir 5. júní 1849, var mjög frjálsleg. Í krafti at- vinnufrelsis urðu stórstígar fram- farir í Danmörku næstu áratugina. Ég sé í þingtíðindum, að þrír Ís- lendinganna greiddu atkvæði með stjórnarskránni, Brynjólfur, Jón rit- stjóri og Jón bæjarfógeti, en þeir Jón forseti og Konráð voru fjarver- andi. Það var þó væntanlega ekki vegna þess, að þeir væru ósam- þykkir henni, heldur vildu þeir hafa sem minnst afskipti af innanrík- ismálum Dana. Íslenska stjórn- arskráin frá 1874 var sniðin eftir hinni dönsku og hefur eins og hún reynst hið besta. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Afstaða Íslendinga 1848

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.