Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 02.07.2022, Síða 30

Morgunblaðið - 02.07.2022, Síða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022 ✝ Ingvi Þór Guð- jónsson fæddist á Akureyri 28. nóv- ember 1939. Ingvi Þór lést á HSN Blönduósi 9. júní 2022. Ingvi var sonur Kristjönu Jakobínu Jakobsdóttur, f. 1917, d. 1997, og Guðjóns Vigfús- sonar, f. 1902, d. 1996. Ingvi Þór átti átta systkini. Al- bróðir Ingva er Birgir Guð- jónsson, f. 1938. Systkini sam- mæðra eru Inga Pratt, f. 1945, Stefán Einarsson, f. 1951, d. 2019 og Jóna Kristín Ein- arsdóttir, f. 1952. Systkini sam- feðra eru Bergþóra, f. 1932, d. 2016, Guðný Svava, f. 1945, Helga, f. 1947 og Sigurður Þór, f. 1947. Björnsson. Þröstur, f. 1971, maki er Þorkatla Sigurðardóttir. Þeirra börn eru Arnar Þór, Sig- urður Þór og Hildur Ósk. Magn- ús Valur, f. 1978, maki er Ragn- heiður Blöndal. Þeirra börn eru Benedikt Þór og Þröstur Már. Fyrstu árin bjuggu Ingvi Þór og Sigríður í Reykjavík. Þar lærði hann málaraiðn. Árið 1973 fluttu þau á Blönduós, þar sem þau bjuggu alla tíð síðan. Sigríð- ur, eftirlifandi eiginkona hans, býr þar enn. Þar byggðu þau hús í Brekkubyggð 21 og fluttu svo á „kærleiksheimilið“ á Flúða- bakka fyrir fjórum árum. Hann vann sem málarameistari á Blönduósi fyrstu árin en gerðist svo ráðsmaður á Héraðshæli A- Húnvetninga og vann þar til starfsloka, ásamt því að keyra sjúkrabíl. Hann starfaði í björg- unarsveitinni Blöndu, í Lions- hreyfingunni á Blönduósi, Rauðakrossdeild A-Húnvetninga auk þess að stofna Skátafélagið Bjarma og gegna þar stöðu skátaforingja í tugi ára. Útför Ingva Þórs fer fram frá Blönduóskirkju í dag, 2. júlí 2022, kl. 14. Ingvi Þór fluttist ungur til Vest- mannaeyja og tal- aði alltaf um Vest- mannaeyjar sem heima, þrátt fyrir að hann hafi verið sendur í vist víða um land og stund- um vetrarlangt. Hann fór ungur til sjós, var í milli- landasiglingum í mörg ár og ferðaðist víða. Ingvi Þór giftist í janúar 1967 Sigríði Berglindi Baldursdóttur, f. 6. júní 1946. Þau eiga fjögur börn. Þau eru: Harpa, f. 1967, maki er Hermann Þór Bald- ursson. Þeirra börn eru Þuríður, Ingvi Þór og Sigríður Berglind. Helga, f. 1969, maki er Margrét Sigurðardóttir. Þeirra börn eru Sunna, Tryggvi og Esjar Himri, barnabarn er Björn Brynjar Elsku afi. Takk fyrir að kenna mér svona margt og segja mér frá svona mörgu áhugaverðu og merkilegu. Þegar ég hugsa til þín hugsa ég um harðduglegan, vinnusam- an, fróðan, hjálpfúsan, stríðinn, skemmtilegan, góðan og mynd- arlegan mann sem vildi allt fyrir alla gera en aldrei láta neitt hafa fyrir sér. Ég lærði mikið af þér og þessa kosti og fleiri hef ég sem fyrirmynd og mun taka með mér áfram inn í framtíðina. Auðvitað minnist ég líka vasa- klútanna, axlabandanna og leð- urvestisins sem aldrei var langt undan. Það var magnað að sjá hversu vel þú settir þig inn í það sem barnabörnin þín voru að gera, sama hvort það var skóli, vinna, íþróttir eða önnur áhugamál. Alltaf fylgdist þú vel og stoltur með. Alltaf var jafn gaman og gott að koma á Blönduós og heim- sækja ykkur ömmu. Fyrirmynd- arhjón með fallegt og hlýtt heim- ili þar sem allir voru velkomnir. Ég minnist líka heimsókna ykkar til mín með gleði og hlýju. Allar góðu minningarnar um þig lifa áfram með mér og fleir- um og ég lofa að halda þeim og þínum fróðleik uppi og deila þeim áfram. Ég er þakklát fyrir tímann sem ég fékk með þér og stolt yfir að hafa átt þig sem afa. Sunna. Í dag er kær bróðir kvaddur hinstu kveðju. Eitt ár og tuttugu dagar eru milli okkar. Hann var nokkrum sentímetrum lægri og því alltaf minn litli bróðir. Ingvi átti erfiða bernsku eftir skilnað foreldra okkar og faðir okkar giftist aftur. Honum var nánast úthýst úr nýju fjölskyld- unni og a.m.k. tvisvar vistaður vetrarlangt utan heimilis. Hann fór snemma á sjóinn og varð bátsmaður á fraktskipum aðeins 19 ára gamall. Sigldi hann um árabil um öll heimsins höf, m.a. til Suður-Ameríku og Asíu. Fjölskylda mín naut þess að fá hann einu sinni í heimsókn til okkar í Connecticut á námsárum mínum þegar skip hans lestaði í New York-borg. Það var gæfa hans að hitta Siggu sína á dansleik og varð úr 55 ára hamingjusamt hjónaband, og eignuðust þau fjögur börn og 10 barnabörn og eitt barna- barnabarn. Hef ég reynt að fyr- irgefa honum að verða langafi á undan mér. Ingvi vildi ekki halda áfram sjómennsku sem fjölskyldumað- ur og fór í málaranám. Hann hafði alltaf taugar til bernsku- slóða okkar í Vestmannaeyjum og hefði viljað setjast þar að en þá kom gosið svo Blönduós var fyrir valinu þar sem Sigríður eig- inkona hans hafði tengsli. Heim- ili þeirra varð þannig stoppistað- ur þegar við hjónin og fjölskylda héldum norður í athvarf okkar í Bárðardal. Afkomendur okkar höfðu gaman af hvað við glettumst hvor við annan á fjölskyldufund- um, t.d. að hæna að okkur barna- börn hvor annars í leik og fjöri. Eina lotuna vann ég, þökk sé magni af súkkulaðirúsínum. Meltingarörvunin hélt afanum og ömmu önnum köfnum við bleyju- skipti um nóttina og mér litlar þakkir færðar. Ingvi sinnti ýmsum störfum á Blönduósi, var m.a. í björgunar- sveit og annaðist t.d. skátastarf fyrir unglinga. Hann varð síðar einnig ráðsmaður sjúkrahússins og ökumaður sjúkrabílsins. Margoft hef ég sagt söguna þeg- ar Ingvi hringdi og við áttum ró- legheitasamtal. Spurði hann um heilsu allrar fjölskyldunnar og varð ég að gera slíkt hið sama um hans. Skynjaði ég að hann væri undir stýri, en örugglega handfrjálst! Að lokum sagði hann á þá leið: ég er á 100 plús, akandi niður Bakkaselsbrekkuna, það er hálka og beygjur fram undan og sjúklingur aftur í! Sem sjúkrabílstjóri kom hann að margfalt fleiri umferðarslys- um og veitti fleirum fyrstu hjálp en bróðir hans læknirinn. Öku- snilld hans á sjúkrabílnum kom mörgum særðum sem fyrst undir læknishendur. Þegar augljóst var hvert stefndi að lífslokum gaf hann af- komendum fyrirmæli um að fara í sín löngu skipulögðu og greiddu frí og kvaddi þennan heim þegar sumir voru að stíga upp í flugvél. Hann kaus brennslu og honum yrði síðan hent í sjóinn í Vest- mannaeyjum. Birgir Guðjónsson. Í dag kveðjum við vin okkar Ingva Þór hinstu kveðju. Minn- ingarnar eru margar um dugleg- an mann sem alla tíð hafði mörg- um störfum að sinna auk fjölmargra áhugamála. Ingvi Þór var menntaður málarameistari og vann alla tíð við iðngrein sína. Hann starfaði einnig áratugi sem ráðsmaður Heilbrigðisstofnunar- innar á Blönduósi og var yfir þrjátíu ár samtímis því starfi sjúkraflutningamaður fyrir Rauðakrossdeild Austur-Hún- vetninga. Þá var hann skátafor- ingi Blönduósinga og hélt uppi skátastarfi meðal barna og ung- menna. Ingvi Þór rak einnig ferðaskrifstofu og var lengi um- boðsmaður Icelandair. Hann var einnig mikill fjölskyldumaður og hélt vel utan um sitt fólk. En auk þessa alls var Ingvi Þór í fé- lagsskap með okkur, sem við köllum Norðansaumó. Þessi fé- lagsskapur byrjaði sem hefð- bundinn saumaklúbbur. Í upp- hafi voru það skólasystur Siggu eiginkonu Ingva Þórs úr Kvennaskólanum á Blönduósi sem stofnuðu klúbbinn fyrir mörgum áratugum. Síðan með árunum og dreifingu meðlima víða um landið breyttist starf- semin í matar- og ferðaklúbb og makar urðu þátttakendur. Við höfum farið í mörg ferðalög sam- an bæði innanlands og utan. Tvær utanlandsferðir sem Ingvi Þór skipulagði eru mjög minn- isstæðar. Það eru ferðirnar til Torquay á Englandi og til perlu Ingva Þórs og Siggu, Tossa de Mar á Costa Brava-strönd Spán- ar. Þá var Ingvi Þór á heimavelli og í broddi fylkingar. Saumaklúbbsfélagar minnast Ingva Þórs með þakklæti fyrir liðnar samverustundir. Við vott- um Siggu og fjölskyldu hennar okkar dýpstu samúð. Margrét og Sigurður, Ásrún og Gunnar, Margrét og Guðmundur, Hólmfríður og Sveinn, Ragnhildur, Kristín og Sigvaldi, Böðvar og Gestný. Elsku kallinn, loksins ertu bú- inn að fá hvíldina eftir langa og stranga baráttu og þú tilbúinn, vissir að allt var í lagi með hana Siggu þína. Við vorum búin að vera vinnu- félagar til margra ára á Heil- brigðisstofnuninni á Blönduósi, þú sem ráðsmaður og sjúkrabíl- stjóri og ég í þvottahúsinu á vinnustað þar sem skiptast á skin og skúrir en þannig er það nú bara á svona vinnustað. Þrátt fyrir það var alltaf reynt að halda í húmorinn og margir hrekkir í gangi og þar varst þú nú í essinu þínu. Einn af svo mörgum er mér samt sérstaklega minnisstæður, en þá var stór gámur á planinu hjá okkur, í honum hafði komið lyfta sem var verið að setja upp og einu sinni sem oftar þegar ég fór út að skoða veðrið tók ég eftir því að bíllinn minn var horfinn og allt kjallarastarfsfólkið komið út á eftir mér og nokkuð ljóst að ekkert þeirra hefði farið á hon- um. Ég var nokkuð fljót að átta mig á hvar bíllinn væri og skoð- aði í gáminn og auðvitað var hann þar. En mikið hafðir þú lagt á þig til að komast út úr bíln- um og inn í hann aftur, því þetta var mjög þröngt, en hvað leggur maður ekki á sig fyrir góðan hrekk! En árin liðu og leiðir okkar lágu saman aftur þegar ég flutti á kærleiksheimilið Flúðabakka 3 en þið Sigga voruð flutt nokkru áður. Þú sagðir að þetta væri æf- ing áður en við færum á elliheim- ilið. Eitt var það sem við vorum al- veg sammála um og það var að vera alltaf ósammála og okkur tókst það bara nokkuð vel. Þótt þú værir orðinn mikið veikur síðustu vikurnar varstu alltaf tilbúinn í smá stuð með stórfjölskyldunni þinni hérna á kærleiksheimilinu og þín verður sárt saknað. Takk fyrir góða og trausta vináttu. Elsku Sigga mín og fjölskylda. Þið eruð búin að vera svo miklar hetjur. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra og megi allt það góða vaka yfir ykkur. Ingvi minn. Það væri allt í lagi að þú værir búinn að hella á könnuna þegar ég mæti og tilbú- inn með Fréttablaðið. Góða ferð. Bóthildur Halldórsdóttir. Ingvi Þór Guðjónsson Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og einstaka hlýju við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, INGIBJARGAR ÁRNADÓTTUR frá Hóli í Sæmundarhlíð, Jöklatúni 14, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki heimahjúkrunar og starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra, deild 5, á Heilbrigðis- stofnuninni á Sauðárkróki fyrir einstaka umönnun, vináttu, velvild og hlýju. Petrea Grétarsdóttir Margrét Grétarsdóttir Páll Sighvatsson Jóhanna Grétarsdóttir Jón Grétarsson Hrefna Hafsteinsdóttir og barnabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu samúð og hlýhug við andlát ÓLAFS ÓLAFSSONAR, fv. landlæknis. Aðstandendur senda starfsfólki Grundar þakkir fyrir umönnun síðasta æviár Ólafs. Ólafur Ólafsson Magnfríður S. Sigurðardóttir Ásta Sólveig Ólafsdóttir Ágúst Kárason Ingibjörg Ólafsdóttir Bjarni Ólafur Ólafsson Margrét Sigmundsdóttir Páll Ólafsson Sigríður Dóra Gísladóttir Gunnar Alexander Ólafsson Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir Grímur Ólafur Eiríksson Bryndís U. Sveinbjörnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, MARKÚS LJUBODRAG MARKOVIC, Markó, bátasmiður, lést á Grensásdeild Landspítalans aðfaranótt laugardags 25. júní í faðmi barna sinna. Útförin fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi miðvikudaginn 6. júlí klukkan 11. Svetlana Markovic María Markovic Dusan Loki Markovic Sanja Líf Markovic Ívar Örn Sigurðsson og afabörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR, Hlíf 2, verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 9. júlí klukkan 14.00. Bjarni Jóhannsson Guðrún Guðmannsdóttir Sigrún María Bjarnadóttir Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir Jóhann T. Guðmundsson Tryggvi Snær Guðmundsson og langömmubörn Elsku pabbi okkar, tengdapabbi, afi og bróðir, HREINN HJARTARSON, lést á heimili sínu miðvikudaginn 15. júní. Kveðjustundin fer fram í Grafarvogskirkju þriðjudaginn 5. júlí klukkan 13. Ásta Huld Hreinsdóttir Hjördís Gígja Hreinsdóttir Arnór Ingi Brynjarsson Hreinn Orri Hreinsson Vigdís Hjartardóttir Þórður Grétar Árnason og barnabörn Elskulegur faðir minn og tengdafaðir, BALDVIN ÁRSÆLSSON, fyrrverandi prentari, Fálkagötu 21, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund 22. júní, verður jarðsunginn frá Landa- kotskirkju mánudaginn 4. júlí klukkan 15. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarkort Grundarheimilanna. Fyrir hönd barna okkar, tengdabarna og barnabarna, Ása Baldvinsdóttir og Albert Jónsson Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR HJÖRDÍSAR INDRIÐADÓTTUR. Þórir Hallgrímsson Indriði Þórisson Anna Jóna Geirsdóttir Elísabet Þórey Þórisdóttir Flóki Halldórsson ömmubörn og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.